Óðinn - 01.10.1910, Blaðsíða 8

Óðinn - 01.10.1910, Blaðsíða 8
56 ÓÐINN Eyjarnar fögru, æfl þinnar vagga, heim fá nú dáinn höfðingja sinn. Þar fyrir störfln þörfu, æfllöngu mun lengi vara lofstír þinn. far fj'rir manndáð mun þín lengi getið. Öllum í minning ertu þar kær. Þar eftir afrek ára fjörutíu þjer verður síðsti svefninn vær. Rökkurhugsanir. Dansa grábólstrar »vals« yfir gnýpum hvers fjalls, ólmast geisandi vindar á miðskeiði nætur. Mörg er sálin nú breytt, — orðin syfjuð og þreylt eflir sífeldan brimnið og stormanna þrætur. Þeim er sólskinið gleymt og þeim sýnist nú reimt yfir sveitum, — menn dreymir um örlagaslögin, — þykir ótryggur her læðast aftan að þjer, þjóð, sem átt engin vopn til að bera’ af þjer lögin. Hvaða vopn sein þú ált, vanti viija þinn mátf, geta viknað í eggjum og sljóvast og svignað. Einlægt áhugamál er hið staðbesta stál; það er stál, sem að getur ei brostið nje dignað. Fræga, stofntigna grein, er þjer eilíft það mein, hvernig alt vill á Gissurar hugsjónir minna? Sýnir öll þessi öld að eins vegtyllur — völd takmörk vasklegrar framsóknar leiðtoga þinna? Allir þykjast þeir eitt, sem sje elska þig lieitt, þínir ungu og gömlu og miðaldra synir, og þeir rita svo bjart og þeir rugla svo margt um að reynast þjer Jónslegir, einskærir vinir. Margir sungum við dátt um að hefja þig hatt; okkar hjörvar þjer virtust úr ósviknum málmi; en þjer hitnaði’ og brá, er við hólminum á ljetum hersönginn kafna í — skriðdýra mjálmi. Engin furða er það, að við stöndum í stað, fyrst við stöppum og æpum, er býðst okkur frelsið. — Fyrir einstaklingsvöld má ei greiða þau gjöld, að við geymum að leysa af íslandi helsið. ísland, ástkæra land, af þjer brysti hvert band, ef sem bræður við reyndum að fylgjast að verki. Þínir hájöklar þá munu hlýna’, er þeir sjá að við hefjum í bróðerni gengis þins merki. Og við hvetjum nú spor, næst, er vitrast það vor, sem að vegina greiðir að markinu þráða, — klakann þíðir í hjóm, svo að þjóðlífsins blóm megi þroskast í sólskini frelsis og dáða. Jakob Thorarensen. Sl Vorvísur. Föx á völlum vaxa vors af rósum ljósum. Blíður blærinn lilíðar blómaríkar strýkur. Þjettar fossa-fljettur fjöllin liðast niður. Læðist fram að flæði fótsmá lind úr tindi. Heiður himinn breiðir hreina bjarma-arma yfir alt, sem Iiíir, yfir fjöll og völlu. Loga lygnir vogar; líttu’ á sæinn hlægja! Nóttin er á óttu eins og fagur dagur. Daggardrukkin vagga dala blóm og ljóma. Þinga’ og saman synja svanur, spói, lóa. Heyrist ölluin eyrum inndæll friðar-kliður: ísland er að prísa ástúð suðurs guða. Jakob Thorarensen. % Vornætur á Elg’sheiðnm heitir safn af stuttum skáld- sögum (frá Nýja Skotlandi) eftir .1. M. Bjarnason, og hefur bókav. Sigf. Eymundssonar geflð út. Höf. er áður að góðu kunnur fyrir skáldsögur sínar. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.