Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 10.04.1943, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 10.04.1943, Blaðsíða 4
4 VERKAMAÐURINN AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA verður haldinn á Akureyri mánudaginn 19. og | þriðjudaginn 20. apríl næstk. Fundurinn hefst | | í Samkomuhúsi bæjarins kl. 10 f. h. mánudag- | | inn 19. apríl. | I DAGSKRÁ: | 1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfs- | manna fundarins. | | 2. Skýrsla stjórnarinnar. | 1 3. Skýrsla framkvæmdastjöra. Reikningar fé- | lagsins. Umsögn endurskoðenda. i| | 4. Ráðstöfun ársarðsins og innstæðna inn- ;;; I lendra vörureikninga. iji | 5. Erindi deilda. | | 6. Framtíðarstarfsemi. iji | 7. Önnur mál. !;!; | 8. Kosningar. Akureyri, 31. marz 1943. 1 • Félagsstjórnin. | js$í$555í55555555555555555S5S5555555555555555555555á55555555555555555555555555555555: þýðusambandsins bréf, þar sem skýrt kom í ljós, að Erlingur og klíka hans þverskallaðist enn (þrátt fyrir úrslitakosti miðstjórnarinnar) við því, að semja og breyta Verka- lýðsfélaginu í lýðræðislegt félag. í þessu síðasta svari Erlings og Halldórs buðust þeir til að Verka- lýðsfélagið skyldi opnað aðeins fyr- ir þeim verkamönnum, er „að áliti meirihluta trúnaðarráðs“ (þ. e. bræðranna og Co.) teldust hæfir til inngöngu í þessa ,,paradís“, en þó ekki fyr en þeir hefðu fengið lög- legt afsal fyrir eignum Verka- mannafélags Akureyrar. Þetta viturlega svar barst full- trúum Alþýðusambandsins kl. 1E07 að kvöldi 3. apríl. Þar sem í því var ekki annað en það, sem þeir bræður höfðu undangengnar tvær vikur boðist til að semja um, þ. e. að Verkalýðsfélagið fengi allar eignir Verkamannafélagsins, en Verkalýðsfélagið yrði áfram lokað fyrir þeim verkamönnum, .sem Erlingi og fialldóri og Co. þóknað- ist að útiloka, þá ákváðu fulltrúar Alþýðusambandsins að senda þeim eftirfarandi bréf 30 mín. áður en frestur Alþýðusambandsins var út- runninn, í þeirri veiku von, að þeir bræður hefðu vit á að nota þessa mínútur til að bæta ráð sitt. Ak., 3. apr. kl. 11,30 1943 Með skírskotun til síðustu sam- komulagstillagna okkar og bréfs dags. 2. apr. s.l., lýsum við því hér með yfir, að með bréfi yðar, mót- teknu kl. 11.07, er lokið af okkar hálfu samningaumleitunum við yður. Virðingarfyllst. F. h. Alþsb. íslands. Jón Sigurðsson. Jón Rafnsson. Til stjórnar Verkalýðsfél. Akureyrar, Akureyri. Eins og öllum er nú kunnugt notuðu þeir bræður ekki þann frest á skynsamlegan hátt, enda var þess helst að vænta, að svo færi. Var áhuginn fyrir því, að nota þennan frest, til að breyta um stefnu, ekki meiri en það, að formaður félagsins var að eigin sögn genginn til hvílu, er honum barst þetta bréf. Nýtt félag stofnað. Eftir brottrekstur Verkalýðsfélags- ins úr Alþýðusambandinu lá ekki annað fyrir en stofna nýtt félag í staðinn, félag, sem væri grundvall- að á lýðræði, skoðanafrelsi og jafn- rétti eins og sambandið og félög þess. Boðuðu fulltrúar Alþýðusam- bandsins til stofnfundar í Verklýðs- húsinu s.l. þriðjudagskvöld. Sýndu verkamenn á Akureyri þá enn einu sinni, að þeir láta ekki sinn hlut eft- ir liggja, þegar á reynir. Var húsið troðfult af verkamönnum. Sam- þykti fundurinn einróma að stofna verkamannafélag og hlaut það nafnið Verkamannafélag Akureyr- arkaupstaðar. Voru stofnendur þeg- ar á þeim fundi 210. Samþykti þessi fundur lög fyrir félagið, en auk þess fór fram kosn- ing stjórnar og varastjórnar og var stjórnin kosin í einu hljóði. Þá fór fram kosning á 6 mönn- um í trúnaðarráð og hlutu þessir kosningu: Haraldur Þorvaldsson. Steingrímur Eggertsson. Stefán Árnason. # Áskell Snorrason. Árni Þorgrímsson. Loftur Meldal. Varamenn: Björn Jónsson. Pálmi Jónsson. Sigurjón Jóhannesson. Kristinn Árnason. Daníel Guðjónsson. Tryggvi Emilsson. Endurskoðendur voru kosnir: Áskell Snorrason. Árni Þorgrímsson. Til vara: Sigurður Róbertsson. Jón Rafnsson flutti snjalla ræðu um tildrög og tilgang þessarar fé- lagsstofnunar og var ræðu hans fagnað með dynjandi lófataki. Auk hans töluðu formaður félagsins, Hafsteinn Halldórsson, Haraldur Þorvaldsson og Loftur Meldal, er lýsti því yfir í nafni stjórnar Verka- mannafélags Akureyrar, að það væri lagt niður með stofnun þessa nýja félags og myndu allar eigur þess renna til hins nýstofnaða verkamannafélags. i Ríkti einróma stemning og áhugi meðal fundarmanna og var fundin- um slitið með þeirri ákvörðun, að hafa framhaldsstofnfund fimtudag- inn 8. þ. m. F ramhaldsstof nfundurinn. Hann hófst með inntöku nýrra meðlima og gengu 40 inn á fundin- um og voru stofnendur félagsins þá orðnir alls 250. Er það glæsileg byrjun. Fundurinn kaus 3 menn í Full- trúaráð verkalýðsfélaganna og hlutu þessir kosningu: Marteinn Sigurðsson. Jóhannes Jósefsson. Björn Einarsson. Til vara: Haraldur Þorvaldsson. Jón Hallgrímsson. Áskell Snorrason. í húsnefnd voru kosnir: Steingrímur Eggertsson. Loftur Meldal. Svavar Jóhannesson. Þá fór einnig fram kosning dóm- nefndar, og er hún þannig skipuð: Haraldur Þorvaldsson. Áskell Snorrason. Árni Þorgrímsson. Tryggvi Emilsson. Stefán Árnason. Til vara: Jón Þórðarson. Axel Ásgeirsson. Steindór Jóhannsson. 1. maí. Jón Rafnsson skýrði frá þvx, að Alþýðusambandið mundi að þessu sinni hafa forgöngu með undirbún- ing og framkvæmd hátíðahald- anna 1. maí n. k. Kvaðst hann vilja minna fundarmenn á að 1. maí væri ekki dagur neins sérstaks stjórn- málaflokks heldur verkalýðsstéttar- innar, og hvatti verkamenn til að taka virkan þátt í hátíðahöldunum hér þennan dag. Var eftirfarandi tillaga frá for- manni samþykt einróma. „Fundurinn samþýkkir að leita samstarfs annara stéttarfélaga hér á Akureyri um hátíðahöld 1. maí, í samráði við fulltrúaráð og skorar á það að hafa forgöngu um undir- 'búning hátíðahalda." Þá samþykti fundurinn einróma að fela stjórninni að sækja um inn- göngu félagsins í Alþýðusambandið og hefir félagsstjórn þegar sent sambandsstjórn upptökubeiðni. í lok fundarins fluttu þeir Jón Rafnsson og Jón Sigurðsson hvatn- ingaræður til fundarmanna og þökkuðu fyrir ágæta samvinnu við verkamenn. Áskell Snorrason þakk- aði Alþýðusambandinu og fulltrú- um þess fyrir ágætan stuðning og samstarf og lauk síðan fundinum ineð því að fundarmenn hrópuðu ferfalt ln'xrra fyrir Alþýðusambandi íslands og fulltrúum þess. Fundurinn var mjög fjölmenn- ur og ríkti þar sami áhuginn og einingarviljinn og á fyrri fundin- um. Til marks um áhuga verka- manna fyrir þessum málum má geta þess, að 1900 kr. komu inn í félagsgjöldum á framhaldsstofn- fundinum. Mun félagið halda fund aftur von bráðar og taka þar til meðferð- ar kaupgjaldsmál og önnur þau mál, er bíða úrlausnar á næstunni. Fer stofnun þessa félags mjög giftusamlega af stað og ber þess öll merki, að verkamenn eru staðráðn- ir í að uppræta gjörsamlega þann klofning, sem um tíu ára skeið hef- ir staðið samtökum þeirra fyrir þrifum. Mun þess því skamt að bíða að allir landverkamenn bæjarins verði orðnir meðlimir Verkamanna- félags Akureyrarkaupstaðar. Kveníélagið „Hlíf“ heldur fund mið- vikudaginn 14. apríl kl. 8V2 e. h. í Skjald- borg. Frumsýniné á Fjalla-Eyvindi var í fyrrakvöld í Samkomuhúsi bæjarins. — Verður leiksýningarinnar nánar ‘getið í næsta blaði. Sjötuéur varð í fyrradag Ingimar Ey- dal, ritstjóri. Var gestkvæmt á heimili hans í því tilefni. §élgler í 15 metra rúilum á kr 8,50 metrinn. VÖRUHÚS AKUREYRAR KJÓLABLÓM Pöntunarfélagið Karlmannanáttföt Æðardúnn Sirs Pöntunarfélagið

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.