Verkamaðurinn - 10.05.1957, Blaðsíða 1
VERKflmnDUFinn
XXXX. árg.
Akureyri, föstudaginn 10. maí 1957
17. tbl.
KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN.
Hann er ómissandi öllum
þeim, sem fylgjast vilja með
íslenikum stjóramálum. —
Áskriftarsími á Ak. 1516.
Full starfræksla tunnuverksmiðjanna
fryggir saltsíldarframleiðsluna og spar-
ar milljónir í gjaldeyri
Áður hefur verið skýrt hér allýtarlega frá frumvarpi þeirra
Iljörns Jónssonar, Friðjóns Skaiy)héðinssonar og llemharðs
Stefánssonar um Tunnuverksmiðjur ríkisins, þar sem meðal
annars er gert ráð fyrir, að byggt verði tunnugeymsluskýli við
tunnuverksmiðjuna hér og hún endurbætt að öðru leyti. —
Frumvarp J>etta hefur nú verið afgreitt frá efri deild og var
einróma samþykkt J>ar óbreytt,,að öðru en því, að rikisstjórn-
inni heiinilast að láta byggja þriðju tunnuverksmiðjuna (á
Austurlandi), ef hiin telur þörf á fleiri slíkum verksiniðjum.
I rumvarpið hefur þegar verið tekið til íyrstu umiæðu og
nefndaraígreiðslu í neðri deild, og má því fullvíst telja, að
J>að verði að lögum á þessu þingi. Samkvæmt frumvarpinu er
gert ráð fyrir 5 milljón króna lántöku til framkvæmda við
tunnuverksmiðjuna hér.
Hér fer á eftir ræða, er Björn Jónsson flutti við aðra um-
íæðu efri deildar um írumvarp J>etta, en hann hafði þá fram-
sögu af hálfu iðnaðamefndar.
Herra forseti!
Frumvarp það til laga um
Tunnuverksmiðjur ríkisins, sem
hér liggur fyrir til 2. umræðu,
hefur alllengi verið til athugunar
í iðnaðarnefnd og mælir hún ein-
dregið með samþykkt þess, að
gerðum þeim breytingum, sem
till. á þskj. 469 ber með sér.
Enda þótt afgreiðsla úr nefnd-
inni hafi tekið langan tíma vil eg
þakka hv. meðnefndarmönnum
mínum þar skilning þeirra á mál-
inu og vil vona, að einróma
stuðningur þeirra, og væntanlega
annarra hv. þingmanna, endist
málinu til fullrar afgreiðslu á
þessu þingi.
Tunnusmíði er orðin nokkuð
gömul iðnaðargrein hérlendis, og
fengin af henni reynzla, sem
ótvírætt sannar, að hún á ekki
einasta fyllsta rétt á sér, heldur
er hún einnig óhjákvæmileg
nauðsyn, ef ein mikilvægasta
framleiðslugrein sjávarútvegsins,
saltsíldarframleiðslan, á að geta
skilað örugglega þeim verðmæt-
um til útflutnings, sem kostur er
að draga að landi. í annan stað er
hér um iðnað að ræða, sem er
sérstaklega hentugur til þess að
stuðla verulega að útrýmingu
landlægs vetraratvinnuleysis á
þeim stöðum, þar sem hann er
starfræktur, sem til þessa hafa
verið Akureyri og Siglufjörður.
í þriðja lagi sparar þessi iðnaður
milljónir króna erlends gjaldeyr-
is.
Þessi augljósu og auðskildu
rök lágu til þess að ríkið réðist í
Bragi kominn á þing
Bragi Sigurjónsson, ritstjóri
Alþýðumannsins, tók sæti á Al-
þingi sl. mánudag. Kom hann inn
í staðinn fyrir Pétur Pétursson,
sem mun dveljast erlendis
um
það 1946 að kaupa tunnuverk-
smiðjurnar á Siglufirði og Akur
eyri, sem þá höfðu alllengi verið
starfræktar, á Siglufirði af ein-
staklingum og á Akureyri af bæj
arfélaginu. Var það skoðun
manna þá, að ríkisrekstur þess-
ara fyrirtækja tryggði betur
starfsemi verksmiðjanna en ein
staklinga og bæjarfélags, ser
hvorir tveggja höfðu takmörkuð
fjárráð, og einnig að með þeim
hætti yrði hagstæðara samræmi
í milli tunnusmíðinnar og síldar-
framleiðslunnar, ef báðar þessar
nátengdu greinar lytu sömu for-
sjá.
10 niilljón króna gjaldeyris-
sparnaðinr.
Tíu ára reynzla er nú fengin
fyrir rekstri tunnuverkverksmiðj
anna á vegum ríkisins og er hún
í stuttu máli sú, að fullvíst er að
framleiðsla þeirra getur, bæði að
því er verð og gæði snertir, stað-
izt allan samanburð við erlenda
framleiðslu, ef sómasamlega er
að henni búið, að því er snertir
húsnæði, vélakost og skipulagn-
ingu.
Þrátt fyrir það, að verulegur
misbrestur hefur verið á því, að
þessum skilyrðum hafi verið
fullnægt, varð verðmismunur á
hverja tunnu, miðað við norskar
tunnur, aðeins sex krónur á sl.
ári. Lítill eða enginn vafi er á, að
þennan mismun mætti minnka
eða jafnvel jafna með öllu með
endurbótum. Þessu til sönnunar
má nefna að afkastageta Akur-
eyrarverksmiðjunnar er talin
vera um 2000 tunnum minni á
mánuði en Siglufjarðarverk-
smiðjunnar og stafar sá munur
nær einvörðungu af rangri nið-
urröðun véla, en úr því mun nú
ætlunin að bæta.
Við verðsamanburð er líka
réttmætt að hafa í huga að engin
Dalvíkingar vilja fá togaraafla
til vinnslu
Atvinna mjög lítil í vetur
tollvernd er á tunnusmíðinni, svo
scm á mörgum öðrum greinum
iðnaðar, sem ekki verða taldar
jafn nauðsynlegar, en gjaldeyris-
sparnaður er um 36 kr. á hverja
smíðaða tunnu, eða ítæpar
milljónir króna miðað við fram-
leiðslu sl. árs, sem var rúml. 103
þús. tunnur. Væri hins vegar
miðað við framleiðslugetu verk
smiðjanna og þarfir síldarsöltun-
arinnar eins og hún getur orðið
sæmilegum árum yrði gjaldeyr-
issparnaðurinn ekki undir 10
milljónum króna.
Nauðsyn fyrir síldarfram-
leiðsluna.
Þegar svo við bætist, að verð-
mætisaukning þessi er að mestu
fengin með vinnuafli, sem ella
færi forgörðum í atvinnuleysi, þá
er augljósara en um sé þörf að
deila, að stefna ber að því að öll
tunnusmíðin fari fram hér innan
lands að svo miklu leyti, sem
nokkrir möguleikar eru til.
(Framhald á 4. síðu.)
Atvinnuástand á Dalvík var
mjög slæmt á liðnum vetri og
með versta móti. Verkamanna-
vinna í janúar, febrúar og marz
var nánast engin önnur en
vinnsla þess fiskjar, sem þrír 8
til 9 lesta vélbátar öfluðu, en afli
þeirra var unninn í frystihúsi
því, sem Kaupfélag Eyfirðinga á
á staðnum.
Að venju leituðu margir Dal-
víkingar vinnu sunnanlands ó
vertíðinni, en fjölmargir eiga að
sjálfsögðu ekki heimangengt og
verða að gera sér að góðu þá
litlu vinnu, sem til fellur heima.
Er mikill óhugi ríkjandi fyrir
því, að gerðar verði ráðstafanir,
sem að gagni komi til að ráða
bót á því atvinnuleysi, sem jafn-
an verður á Dalvík á vetrum.
Telja Dalvíkingar, að það, sem
fyrst og fremst mætti að gagni
koma í því efni væri, að þar
kæmi upp fullkomið frystihús,
sem fengi togaraafla til vinnslu
að vetrinum, eða þá tíma, sem
atvinnuástandið er lakast. Munu
þeir í því sambandi binda nokkr-
ar vonir við ríkisútgerð togara til
atvinnujöfnunar. — Jafnframt
þyrfti að bæta hafnarskilyrði
með tilliti til aukinnar útgerðar
að vetrinum.
Tilbrcytni í skenunt-
analífinu
Á sunnudaginn kemur munu
Syngjandi páskar, sem er
skemmtiflokkur frá Félagi ís-
lenzkra einsöngvara, efna til
söngskemmtana hér í Nýja-Bíó.
Söngvarar eru: Kristinn Halls-
son, Þuríður Pálsdóttir, Guð-
munda Elíasdóttir, Jón Sigur-
björnsson, Gunnar Kristinsson,
Ketill Jensson og Guðmundur
Guðjónsson.
Ennfremur mun hljómsveit
Björns R. Einarssonar skemmta
og aðstoða söngfólkið og Gestur
Þorgrímsson flytja ósvikið gam-
an.
Skemmtisamkomurnar verða kl.
5, 9 og 11.15 á sunnudaginn. AS-
göngumiðar eru seldir í BókabúS
Rikku.
Stór vörusýning í Rvík í sumar
Allir þeir, sem áttu þess kost,
að sjá hinar miklu vörusýningar
Sovétríkjanna, Tékkóslóvakíu og
Kína í Reykjavík sumarið 1955,
munu enn minnast þeirra.
Fyrirtækið Kaupstefnan, sem
annaðist þær sýningar, hefur nú
ákveðið að gangast fyrir um-
Fyrstu knattspyrnuleikir ársins
Keflvíkingar í heimsókn
Ákveðið er, að nú um helgina
komi knattspyrnumenn Keflvík-
inga í heimsókn til Akureyrar,
og munu þeir heyja tvo kappleiki
við lið Akureyrarfélaganna. Verð
ur sá fyrri kl. 5 á laugardaginn,
en sá síðari kl. 2 á sunnudag. —
Verða þetta fyrstu kappleikir
sumarsins hér og munu þeir
verða háðir á gamla Þórsvellin-
um, þar sem ekki þykir fært að
svo stöddu að leika á grasvellin-
um vegna hættu á að hann
skemmist verulega.
Ollum þeim, sem með knatt-
spyrnu fylgjast, mun verða mikil
forvitni á að sjá þessa fyi-stu leiki
sumarsins, ekki einasta að sjá
Keflvíkingana, heldur einnig og
kannski ekki síður að sjá hverj-
breytingum og framförum
um
Akureyrarliðið hefur tekið undir
handleiðslu þýzka þjálfarans
Heinz Marovtzke.
Atv innuleysisskráning
Við atvinnuleysiskráningu
Vinnumiðlunarskrifstofunnar um
síðustu mánaðamót voru samtals
65 menn skráðir atvinnulausir.
Engir þessarra manna hafa haft
fasta vinnu að undanförnu, en
margir hlaupavinnu dag og dag
eða um tíma hjá bænum. — 32
þessarra manna hafa notið ein-
hverra bóta frá atvinnuleysis-
tvyggingunum.
fangsmikilli vörusýningu í Rvík
í sumar. Að þessu sinni verða
sýndar vörur frá Tékkóslóvakíu
og Austur-Þýzkalandi, og auk
þess mun Rúmenía hafa þar
opna upplýsingaskrifstofu um
utanríkisviðskipti sín, þótt ekki
verði um beina vörusýningu að
ræða.
Verzlunarráð Tékkóslóvakíu
og verzlunarráð Austur-Þýzka-
lands munu senda hingað hundr-
uð smálesta af sýningarvörum og
fulltrúar verzlunarfyrirtækja í
þessum löndum verða á staðnum
til að gefa allar upplýsingar og
semja um viðskipti, eftir því sem
aðstæður leyfa.
Enginn hæfilegur sýningarskáli
er til í Reykjavík fyrir sýningu
sem þessa, en Kaupstefnan mun
koma upp 1600 fermetra sýning-
arsal með því að setja þak yfir
port Austurbæjarbarnaskólans,
en stórar vinnvivélar og fleira
verður sýnt á bersvæði. Upplýs-
ingaskrifstofur verða í skólahús-
inu sjálfu.
Framkvæmdastjórar sýningar-
innar eru þeir ísleifur Högnason
og Haukur Björnsson, en vernd-
arar sýningarinnar þeir Lúðvík
Jósefsson viðskiptamálaiáðherra
og Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri.