Verslunarblað Íslands - 01.06.1908, Blaðsíða 8
18
VERZLUNARBLAÐ ÍSLANDS
Arið 1895. Árið 1905.
Rússland 125,000,000 141,200,000
Bandaríkin 68,934,000 83,143,000
Þýzkaland 52,279,000 60,605,000
Japan 42,271,000 47,975,000
Bretland h. mikla 39,221,000 43,221,000
Frakkland 38,459,000 39,300,000
Ítalía 31,296,000 33,604,000
Austurríki 24,971,000 27,241,000
Ungverjaland 18,257,000 20,114,000
Spánn 18,157,000 18,900,000
Ymsar smáþjóðir 47,732,000 . 54,166,000
Samtals 506,577,000 569,469,000
Eins og sést af ofanskráðri skjrrslu, hefir
fólkstala heimsins aukist þessi 10 árin, 1895—
1905, um hér um bil 63,000,000.
Þessi skýrsla sýnir, hversu margir fæðast
og deyja af hverju þúsundi í ýmsum löndum:
í Rússlandi fæðast árlega 49, en 31 deyja
af þúsundi hverju. Þar er viðkoman mest og
þar deyja líka flestir.
Minst er viðkoman á Frakklandi; þar fæð-
ast 21, en 19,5 deyja af þúsundi hverju.
Á Spáni, Ítalíu, Austurríki og Ungverjalandi
og Japan fæðast hér um bil 32 af þúsundi. Að
tiltölu er viðkoman mest í Danmörku, þar deyja
13,9 en fæðast 28,5 af þúsundi hverju.
í Svíþjóð deyja 16,4 en fæðast 27,2 og á
Englandi deyja 16,5 og fæðast 27,6 af þúsundi
hverju.
Þessi var íbúatala eftirfarandi stórbæja ár-
ið 1905.
London ............ 4,872,710
New-York .......... 3,437,000
París ............. 2,714,000
Berlín ............ 2,040,000
Tokio ............. 1,819,000
Chicago ........... 1,699,000
Wien .............. 1,675,000
Philadelphia ...... 1,294,000
St. Pétursborg ... 1,265,000
Moskva ............ 1,039,000
Burnastires ....... 1,026,000
Innflutningur svínakjöts til Ítalíu frá Dan-
mörku. Innanríkisráðaneytið italska hefir num-
ið úr gildi lög, er bönnuðu innflutning svína-
kjöts frá Danmörku. Nú er því leyft að flytja
svínakjöt til Ítalíu með þeim hætti, að kjötið sé
stimplað, eða á því standi merki, er hinir ítölsku
ræðismenn viðurkenna á þeim stöðum, sem
kjötið er sent frá.
Eldsvoði. Á annnan hvitasunnudag kom
eldur upp í bænum Björum við Sundby. Bygg-
ingar voru vátrygðar fyrir 114,000 kr. Skaðinn
metinn nálægt 60 þús. kr.
Þurkar á Rússlandi. í héraðinu kringum
Pultava hafa verið svo miklir þurkar, að til
stór-vandræða hefir horft. En í Tala og Kursk,
sem einnig hefir verið mjög þurviðrasamt, er
nú byrjað að rigna. Mestallur suðurhluti lands-
ins er í hættu sökum regnsskorts.
Dansk-færeyskt fyrirtæki. Nýlega er stofn-
að hlutafélag, sem nefnist: »Verzlun og iðnað-
ur Færeyja. Aðalbækistöðvar félagsins eru í
Vestmannahöfn á Færeyjum og í Kaupmanna-
höfn. Hlutaféð er ákveðið kr. 300,000. Starf
félagsins á aðallega að lúta að verzlun og fiski-
veiðum, og eins að því, að nota sér fossarafur-
magn, þar sem tiltækilegast þætti, svo sem í
Fossá við Vestmannahöfn, til reksturs raflýsinga-
stöðva, frystihúsa og margra annara fyi'irtækja.
Yöruflutningar frá Danmörku. Samkvæmt
skýrslu danska verzlunarræðismannsins í Boston,
hafa eftirfylgjandi vörutegundir verið iluttar
þangað frá Danmörku árið 1907:
Skinnavörur ýmsar fyrir 340,18 doll.
Gamalt gúmmí ... 11,582,
Allsk. leðurvörur 1,326,
Járn- og stálvörur — 1,204,
Ullarklútar — 9,636,
Ull 87,366, —
Fræ 1,179,
'Vrer-zlvmar'blaö íslands kemur út minst einu sinni í mánuði, minst 12 síður.
Verð innanlands 3 kr., er borgist fyrir lok október-
mánaðar. Erlendis 5 sh. Borgist fyrirfram.
Uppsögn skriíleg, sé komin til útgefenda fyrir 1. maí.
Afgr. Kirkjustræti 8. Talsími 180.
Eigendur og ábyrgðarmenn:
GRÍMÚLFUR ÓLAFSS0N og ÓLAFUR ÓLAFSS0N
Prentsmiðjan Gutenberg.