Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 42

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 42
42 láni með vöxtum 5 af hundraði, eins og farið er að tiðkast manna á milli. Með hinni 2. og 3. sléttunar- aðferð tel eg dagsláttuna fullgróna annað sumar, það er því að eins eitt ár, sem eg missi ágóðann af slétt- unni, en úr því reikna eg mér 30 kr. árlegan arð af henni, eða 15 kr. vexti af hveijum 100 kr. á ári, og eru þá höfuðstóll og vextir meira en fullborgaðir á 10 árum. En eigi túnræktin að verða í lagi, þá er ekki nóg að slétta, það verður að girða. Menn greinir á um það, hvort meira eigi að meta að slétta eðagirða. Mín meining er sú, að þetta eigi að vera eptir ástæð- um. Sé tún harðlent, hægt að verja það, sé það í skjóli fyrir Stórviðrum og mjög þýft, þá er sjálfsagt að láta sléttunina ganga á undan girðingunni. Sé tún raklent, mikill ágangur á það, og fremur á bersvæði og með nokkrum sléttum, þá ræð eg fremur til að girt sé en sléttað. Menn girða með ýmsu móti : 1. Með sniddugarði utan og innan. Sé stungan við hendina, þá má gjöra ráð fyrir, að fullgildur mað- ur hlaði 2—3 faðma á dag af 2 ál. háum garði full- sígnum; þessi girðing er óvaranleg, getur staðið 10— 15 ár. Varanlegri er hún miklu, sé sniddugarðurinn ekki hafður hærri en 1*/2 al. og strengur af jámvír með smástólpum undir settur utanvert niður í hann ; þó ber þess að geta, að járnvírinn gefst misjafnlega hér á landi, og að næturfrost og vorþíður vilja losa um stólpana. 2. Torfgarður af kvía- eða hnakkahnaus. þessi garður, sé hann vel hlaðinn, er varanlegri en sniddu- garðurinn, og má ætla honum að standa 20 ár og þar yíir. Af honum hleður maðurinn tvo faðma á dag, sé stungan við. 3. Garður með torfi og grjóti að utan en sniddu

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.