Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Blaðsíða 16
16
glæða mentalíf hjá landsbúum og hvetja þá, sem
einhver dáð eða drengskapur var í, til starfa.
Hann kom til Jóns porlákssonar, þjóðskáldsins að
Bægisá, hughreysti hann í fátækt hans og ellilas-
leika, fjekk hjá honum handrit af ýmsum kvæðum
hans, og lofaði honum að styðja að þvf, að þau yrðu
prentuð1. Um þær mundir kom líka Henderson til
Jóns, og má sjá það á vísu einni, sem Jón orti um
komu þeirra Rasks, hversu vænt honum þótti um
þessa gesti2. Hann heimsótti Jón Espólín og hvatti
hann til að láta prenta árbækur3. Hjá Stefáni
amtmanni Thórarensen á Möðruvöllum fjekk hann
ágætar viðtökur og styrk til ferðarinnar austur4 5.
Fór hann þaðan um Austfirði og sfðan um Skapta-
fellssýslu vestur eptir suðurströnd landsins, og Ijetti
ekki fyr en hann kom til Reykjavíkur3. Næsta
1) Æfisaga Jóns þorlákssonar (eptir Jón Sigurðsson) fram-
an við Ljóðabók Jóns (Khöfn 1843), II. bls. XXXVI: „Sama
sumar fjekk hann (o: Jón) að sjá annan gest. sem honum var
ekki síður velkominn, og það var Itask; þótti honum svo mik-
ið til sjera Jóns koma, að hann byrjaði að safna kvæðum hans
öllum, sem hann náði, og hefir skrifað mörg upp afþeimsjálf-
ur; honum afsalaði og sjera Jón (24. júní 1815) rjett til að
láta prenta Paradísarmissi11. Sbr. s. st. I. bls. V. Rask, Saml.
Afh. II, bls. 473, „Gensvar pá herr Baldvin Einarssons fore-
lpbige svar“, bls. 23, og brjef ftasks til J. J>. sem prentað er
hjer á eptir.
2) Jón þorláksson Ljóðabók II, 525. Jón orti einnig til
Rasks út af riti hans um uppruna islenzkunnar (Jón þorláks-
son, Ljóðabók II, bls. 365) og svaraði Rask því í Ijóðum með
fornyrðislagi (s. st. bls. 365).
3) Espólin, Arb. XII, 74.
4) í brjefi sínu til Bjarna Thorsteinssonar, dags. í Rvík 5.
sept. 1814, minnist Rask meðal annars á komu sina að Möðru-
völlum og lætur vel yfir. Telur hann amtmann höfðinglegast-
an af þeim mönnum, sem hann hafi heimsótt á íslandi.
5) Um ferð þessa leyfi jeg mjer að vísa til brjefs Rasks til