Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 36

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 36
138 verið miklu fjölmennari og búið á stórum láglencU um“. Stöðuvötn og fljót eru svo einstök og mikil svæði af þurlendi milli þeirra, að menn gætu búizt við, að dýr þau, sem i þeim lifa, gætu eigi farið víða eða útbreiðzt um stór svæði, og því síðurkom- izt í fjarlæg lönd, því fyrir slík dýr er sjórinn enn þá verri þröskuldur en sjálft landið; en þó undar- legt sé, þá eru einmitt vatnadýrin dreifð um geysi- stór svæði, og skyldar tegundir ná því nær saman um hnöttinn þveran. Darwin segist alveg hafa orðið forviða, þegar hann skoðaði vatnaskordýr og vatnaskeljar i Brasilíu, og sá, að þar voru því nær hinar sömu tegundir, eins og á Englandi. Sumar tegundir af fljótafiskum eru algengar í mjög fjar- lægum löndum; aptur búa aðrar tegundir í nokkr- um hluta af stórfljóti og hvergi annarsstaðar. Sumir af þessum fiskum hafa líklega útbreiðzt á þann hátt, að hæðabreytingar á löndum á hinum fyrri jarðöldum breyttu líka rennsli fljótanna, svo þau stundum hafa flætt yfir stór héruð og skilið eptir polla, stundum myndað nýja farvegi, stund- um brotizt inn i aðrar ár, og hafa þá fiskarnir orðið eptir hér og hvar og aukið kyn sitt. Stund- um geta fiskar af tilviljun borizt langar leiðir; í heitu löndunum eru fellibyljir og skýstrokkar mjög algengir; þeir soga upp í sig vatn úr ám og tjörn- um og steypa því niður langt í burtu, og verða þá opt fiskar og önnur vatnadýr samferða. Margir vatnafiskar eru mjög gamlir, og tegundin hefir lif- að svo lengi, að stórar breytingar hafa orðið á landaskipun, og nógur tími hefir verið til langferða. Fæstir fiskaflokkar lifa eingöngu í fersku vatni; sumar tegundirnar af sama kyninu eru sæfiskar, sumir vatnafiskar, og með nákvæmni má venja

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.