Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 49

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 49
201 skordýrum, af þvi þau eru svo lítil, og þeim verð- ur þar helzt við komið; þau skordýr, sem hafa brodd og §'eta varið sig, líkja aldrei eptir öðrum, en önn- ur vesalli skordýr líkja eptir þeim. Hinir breyttu eptirkomendur af algengum teg- undum og stórum ættum hljóta að útbreiðast víða, því þeir hafa fengið að erfðum þá eiginlegleika, sem. komu forfeðrum þeirra bezt á framfæri; með því að hugsa um þetta, skilst manni, hvernig á því stendur, að það má skipta öllum lifandi verum í stóra flokka, og að það má hópa flokkana saman í deildir. fessir flokkar og deildir ná um allan heim;. það er eptirtektavert, að þegar Nýja-Holland fannst, bættist ekki við einn einasti sérstakur skordýra- flokkur, og í jurtakerfið bættust að eins tvær eða þrjár smáættir. Einstöku smáflokkar dýra eru sér- stakir og ólíkir hinum aðalflokkunum, t. d. nefdýr, en þeir eru afargamlir, hafa optast verið stærri áð- ur, en hafa orðið undir í samkeppninni og eru að kulna út. þ>að er ekki hægt að sjá skyldleikann milli þeirra flokka, sem nú lifa, nema með því, að fara aptur á bak ; frumtegund hverrar ættar hefir látið í erfðir til eptirkomenda sinna eitthvað af eig- inlegleikum sínum, er tegundirnar hafa kvíslazt meir og meir, margar greinar eru kulnaðar út, en sumar eru í fullum blóma skyldleikasvipurinn sést milli hópanna, þó bil séu á milli þeirra, en vissa fyrir ætterninu fæst með því að ganga til baka til frum- tegundanna. f>að eru þessar útkulnuðu greinar, sem opt gera mönnum örðugt að sjá og sanna skyldleikann; en skörðin í fræðikerfi hinna núlifandi jurta og dýra eru mismunandi mörg og stór á ýms- um stöðum; sumstaðar er keðjan nærri alveg óslit- in, eins og hjá krabbadýrunum ; þar lifa enn og blómgast flestallar kvíslir og greinar. Menn eru

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.