Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Page 54

Eimreiðin - 01.09.1914, Page 54
210 fremur en annarsstaðar, að hafa glögga sjón á því, að frjálsborn- ir menn í frjálsu landi geta ekki til lengdar unað öðru, en að óskorað frelsi komist á og ríki í þessum málum — fult trúfrehi og kenningarfrelsi\ Loki og Sigyn. Svo segir í Snorra-Eddu um afdrif Loka eftir dauða Baldurs, er hann hafði valdið. »Nú var Loki tekinn griðalauss ok farit með hann í helli nökkurn. Pá tóku þeir þrjár hellur ok settu á egg ok lustu rauf á hellunni hverri. t*á váru teknir synir Loka, Váli ok Nari eða Narfi; brugðu æsir Vála í vargs líki, ok reif hann í sundr Narfa, bróður sinn. þá tóku æsir þarma hans ok bundu Loka með yfir þá þrjá eggsteina; stendr einn undir herðum, annarr undir lendum, ok þriði undir knésbótum, ok urðu þau bönd at járni. Pá tók Skaði eitrorm ok festi upp yfir hann, svá at eitrit skyldi drjúpa ór orminum í andlit honum; en Sigyn, kona hans, stendr hjá honum ok heldr mundlaugu undir eitrdropa. En þá er full er mundlaugin, þá gengr hon ok slær út eitrinu, en meðan drýpr eitrit í andlit honum; þá kippisk hann svá hart við, at jörð öll skelfr — þat kallit þér landskjálfta. far liggr hann í böndum til ragnar0krs«. Petta hafa nokkrir danskir listamenn spreytt sig á að mála nú nýlega, enda hafði listaháskólinn heitið verðlaunum fyrir góð málverk af því. Varð einn málarinn svo snjall, að vinna hinn mikla verðlaunapening listaháskólans fyrir það málverk, sem hér er sýnd teikning af. Heitir sá Jóhannes Glób, er verðlaunin hlaut, og þykir það harla mikil fremd, ekki sízt þar sem nú eru rúm 43 ár síðan nokkrum hefir hlotnast sú sæmd að fá þennan verðlaunapening fyrir málverk. Fylgir þeim peningi 6000 kr. í peningum, sæti í stjórnarráði listaháskólans og réttur til að sýna málverk sín alla æfi á málverkasýningunni í Charlottenborgarhöll, án þess að dómnefnd dæmi um það fyrirfram, hvort þau megi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.