Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 11
Enska bikarkeppnin: Sheff. Wed tapar fyrir Mewpert ‘ Mikið var um óvænt úrslit í 3. um- ferð bikarkeppninnar, eins og venja er í þessari ksppni, en þó öllu meira en undanfarin ár. Hinir frægu bikarmeistarar frá árunum 1951-’55, Newcastle, máttu bíta í það súra epli að vera slegnir út, og það á heimavelli, af utan- deildarliðinu Bedford, sem er í Southern League. Leicester, sem lék gegn Manch. Utd. í úrslitunum á Wembley í fyrra, tapaði á heimavelli gegn Leyton, sem féll niður úr 1. deild á síðasta keppnistímabili og stend- ur sig ekki of vel í 2 deild. Birmingham tapar á heimavelli fyrir Port Vale, sem er í 3. deild. Bikarmeistararnir frá fyrra ári áttu í erfiðleikum með Southamp- ton á leikvelli þess síðarnefnda,#n þessi tvö félög mættust í undanúr- slitunum í fyrra. Southampton liafði tvö yfir í hálfleik og voru mörkin skoruð á 44. og 45. mín. Moore skoraði strax eftir hlé og eftir það var leikurinn nær lát- laus sókn á mark Southampton. — Um miðjan seinni hálfleik tókst þeim að jafna með marki úr þvögu og 5 mín. fyrir leikslok tókst Cre- rand að skora sigurmarkið eftir vel útfært upphlaup. Sheff. Wed. taoaði fyrir 4- deild arliðinu Newport úti. Úrslit leikja: Arsenal 2 - Wolves 1 Aston Villa 0 - Aldershot 0 Bath 1 - Bolton 1 Birmingham 1 - Port Vale 2 Blackburn 4 - Grimsby 0 Brentford 2 - Middlesbro 1 Bristol R. 2 - Norwich 1 Burnley 1 - Rotherham 1 Cardiff 0 - Leeds 1 Hull 1 - Everton 1 Ipswich 6 - Oldham 3 Leicester 2 - Leyton 3 Floyd vann! Stokkhóimi 6. jan. (NTB- TT). Floyd Pattcrson, fyrrver- andi heimsmeistari í þunga- vigt sigrraði ítalann Amonti auðveldlega hér í kvöld. Það var í 8. lotu, sem dómarinn Stöðvaði leikinn, þar sem ít- alinn var þá gjör^amlega út keyrður og illa útleikinn. Floyd hafði slegið Amonti þrívegis í gó'fið eða í ’l+'*’., og 8. lotu og það var flestra skoðun, að hinn vinsæli Floyd hefði gert út um leik inn í 2. lotu. Mikill fjöldi á- horfenda fylgdist með keppn inni eða eins margir og hús rúm frekast leyfði og sig- urvegarinn var hylltur 6- stjórnlega að keppni lok-' inni. wwwwwmwwmmm Lincoln 0 - Sheff. Utd. 4 Liverpool 5 - Derby 0 Newcastle 1 - Bedford 2 Newport 3 - Sheff. Wed. 2 Notth. For. 0 - Preston 0 Oxford 1 - Chesterfield 0 Plymouth 0 - Huddersfield 1 Scunthorpe 2 - Barnsley 2 Southampton 2 - Manch. Utd. 3 Stoke 4 - Portsmouth 1 Sunderland 2 - Northampton 0 Swansea 4 - Barrow 1 Swindon 2 - Mancjh. City 1 Tottenham 1 - Chelsea 1 W. Bromwich 2 - Blackpool 2 West Ham 3 - Charlton 0 Yeovii 0 - Bury 2 Mikið -var um jafntefli og verða leikir að nýju á þriðjudag og mið- vikudag í þessari viku. SKOTLAND Airdrie - Q of South frestað Celtic 7 - Falkirk 0 Dundee - T. Lanark 0 Dunfermline 2 - Kilmarnock 3 E. Stirl. 1 - Dundee Utd. 1 Hibernian 0 - Rangers 1 Partick 2 - Hearts 1 St. Johnstone 1 - Motherwell 1 St. Mirren 3 - Aberdeen 1 ósamstillt vörn og lélegt línuspil gegn hinni traustu vörn Fram, kom í veg fyrir það. Enginn skaraði fram úr í liði FH, nema ef vera skyldi Hjalti í markinu. Mörk Fram skoruðu: Ingólfur 12, Guðjón og Ágúst Þ. 4 hvor, Karl Ben., Jón Friðsteins og Sig- urður Einarsson 2 hver og Gylfi .1 Mörk FH: Ragnar Jónsson 7, — Birgir 5, Örn 3, Guðlaugur 2 og Einar Sig. og Páll Eiríksson 1 hv. Menn voru mishrifnir af dómum Magnúsar í þessum leik og eitt verður að segja, að hann gekk nokkuð langt í að vísa mönnum af leikvelli. Annars er ekkert spaug að dæma leiki í salarkrílinu að Hálogalandi og taka verður harðar á brotum þar en í stórum sölum. Trúlega verður ekki dæmt eins strangt í heimsmeistara- keppninni, sem hefst í Tékkósló- vakíu í byrjun marz nk. Fram sigraði Frh. af 10. síðu. hálfleiknum, sem endar 12:11 fyr- ir Fram. ★ Fram hafði yfirburði í síð- ari hálfleik. Birgir skorar fyrsta mark síðari hálfleiks fyrir FH úr fríkasti, en það var í síðasta sinn, sem FH tókst að jafna í leiknum. Þegar fimm mínútur eru liðnar af síðari hálfleik er staðan 15-13 fyrir Fram- Þá taka Framarar af skarið og skora fimm mörk í röð án þess að FH svari fyrir sig.^ — Harka mikil hófst nú í leiknum og Magnús dómari vísaði hverjum ieikmanninum af öðrum af leik- velli vegna ruddaskapar og um tíma voru þrír leikm. utan val'ar í einu. Eftir að staðan varð 19-17, var sigur Fram aldrei í hættu og eins og fyrr segir, lauk leiknum með öruggum sigri Fram 27 mörk gegn 19. ★ Liðin. Lið Fram átti prýðisgóðan leik og áberandi var hin trausta vörn og frábærir linuspilarar, sem FH réði ekkert við, nema stjaka ó- löglega við þeim og þá var dæmt vítakast og þó að Hjalta ,tækist að verja nokkur, höfnuðu 8 i netinu. Beztur í liði Fram var Guðjón Jónsson, sem nú eins og svo oft áður sýndi mjög skemmtilegan leik, bæði í vöm og sókn. Margir aðrir leikmenn vöktu athygli, svo sem Ingólfur, Sigurður Einarsson og Þorgeir í markinu, sem varði nú mjög vel. Fyrirfram álitu margir, að FH myndi sigra í þessum leik, en það fór á annan veg. Frekar opin og ★ í leik FH og Fram voru þeim síðarnefndu dæmd 11 vítaköst og þeir skbruðu úr 8, FH voru dæmd 3 og skoruöu úr öllum. ★ Dómarar í leikjunum á sunnu- dagskvöld voru Magnús Pétursson og Sveinn Kristjánsson. Túlkun þeirra á reglunum var eins mis- jöfn og dagur og nótt. Það er nú svo komið, að leikmenn verða al- gjörlega að haga sér í leik eftir því hver dæmir, því að brot, sem einn dæmir e. t. v. vítakast fyrir, Iætur annar sem vind um eyru þjóta! ★ Á sunnudagskvöld var 11 leik- mönnum vísað af Ieikveiii í 2 mín. fyrir gróft brot. Leikmennirnir voru þessir: Sigurður Einarsson, Fram, Einar Sigurðsson, FH, Ing- óifur Óskarsson, Fram, Guðjón Jónsson, Fram, Auðunn Óskars- son, FH, Guðlaugur Gíslason, FH, Birgir Björnsson, FH, Karl Bene- diktsson, Fram, Hilmar Ólafsson, Fram, Reynir Ólafsson, KR, og Hörður Kristinsson, Ármanni. — Auk þess var einum úr áhorfenda- hópi vísað út úr íþróttahúsinu. Vandamál Framh. af bls 7 ingjunum er aldrei að treysta, sag an sýnir óábyrga afstöðu þeirra til flestra þjóðþrifamála og algera hentistefnu — eins og allir vita. Þá hafa framsóknarforingjarnir unnið leynt og ljóst með kommún- istum í sambandi við varnarmál okkar íslendinga, svo sem með því að láta Alþingi sambykkja burtför varnarliðsins úr landinu, sem þeir gerðu í samvinnu við kommúnista á tímum vinstri stjórn arinnar, sem fræg varð að endem- um þann stutta tíma sem hún sat að völdum. Þá hafa framsóknarforingjarnir sýnt og sannað með framferði sinu að þeim er ekki treystandi, enda oft og tíðum»beinlínis unnið gegn Nató og aðild okkar að þeim göf- ugu samtökum. Það er einungis fyrir skellegga meðferð utanríkis- málanna að ekki hefur illa farið, enda verið í höfidum Alþýðuflokks ins hin síðari árin. Þjóðin er því í þakkarskuld við stjórnarflokkana vegna heiðarlegrar, ábyrgrar fyr- irmyndarstefnu í utanríkismálum, þetta vita íslendingar og ættu að kunna að meta. Árni Ketiibjarnar. SÍLDIN Framh- af 1. síðu Líklegt er að gangan standi eitt hvað við og eins getur orðið síld- veiði á öðrum stöðum við Suður- landið. Ekki erum við heldur úr- kula vonar um að finna týndu göngurnar. Ég myndi því ekki egja útlitið með öllu vonlaust. OFSAROK f'ramh. af bls. 5. 9.30 f.h. á sunnudag, snéri við í Helgafellssveit eftir aðeins 7 km. akstur, þar eð bílstjói’anum þótti of áhættusamt að halda áfram £ slíku hvassviðri, sem þá var. Lagði hann svo aftur af stað laust eftir hádegi, þegar veðurofsann tók að lægja, og gekk allt vel. RUSTIR Mikil aðstoð Framh. af bls. 16. til héraða fjarri höfn, eins og í Skaftafellssýslu. Ríkið hefur veitt sérstaka að- stoð til byggingar tveggja síðustu flóabátanna, Fagranessins og nýs báts fyrir Baldur, og er veitt 500.- 000 kr. til þess í ár. Samgöngur á sjó með ströndum fram eru taldar mikið vandamál, og hafa ríkisstjórnir hver fram af annarri kallað til erlendra sérfræð inga, aðallega norska, til að reyna að koma þeim málum í betra horf, sérstaklega þó rekstri Skipaútgerð ar rikisins. Þetta hefur þó enn bor ið lítinn árangur, enda mun víðar en hér á íslandi ganga erfiðlega að fá strandferðir, járnbrautir, flug og strætisvagna til að bera sig, þar sem allir vilja hafa þessar samgöngur fyrir lágt verð. Framhald af 16. síðu. níu húsa og smiðja, sem í hafa fundizt merki um rauðablástur Járnið leiðir í ljós, að það hef- ur verið gert með aðferð, sem tíðkaðist á Norurlöndum á vík ingatímunum. — Kona mín hefur grafiS uPP stóra tóft, 22x15 m., en þar er meðal annars stór salur með minjar um langelda, en svip- uðu máli gegnir með grænlenzk ar tóftir frá þessum tíma, sagðl Ingstad að Iokum. Til varðveizlu þessara forn- Ieifafunda hafa Bandarikja- menn veitt um 30 þús. dollara, sem á að nota til þess að reisa stór. skýli yfir rústirnar. Ódý r kai'lmanna náttföt við Miklatorg Áætlun m.s. Dronning Alexandrine árið 1964 Frá Kaupmannahöfn 24/1. 12/2. 2/3. 20/3. 9/4. 28/4. 14/5. 3/6. 19/6. 3/7. 17/7. 31/7. 14/8. 28/8. 11/9. 25/9. 13/10. 30/10 18/11. 7/12. Frá Reykjavik 3/2. 22/2. 11/3. 1/4. 18/4. 6/5. 25/5. 12/6. 26/6. 10/7. 24/7. 7/8. 21/8. 4/9. 18/9. 5/10. 22/10 9/11. 28/11. 17/12. Skipið kemur við í Færeyjum á báðum teiöum Skipaafgreiðsla Jes Zimsen. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. jan. 1964 «

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.