Brautin - 01.06.1962, Blaðsíða 8

Brautin - 01.06.1962, Blaðsíða 8
Ábyrgð h.f. tryggir bíla íslenzkra íerðamanna erlendis Nú getur Ábyrgð h.f. gefið út tryggingu, sem gildir í flestum Evrópulöndum. Trygg- ingartaki félagsins getur greitt iðgjaldið í íslcnzkum gjaldeyri og fær þá hið svokall- aða „græna kort“, sem sýnt skal við tollaf- greiðslu þegar komið er inn í hvert land. Tryggingin kostar (viðbótariðgjald) krónur 300.00 fyrir einn mánuð og kr. 200.00 fyrir hvern mánuð þar fram yfir. Það var Ansvar Insurance í London sem hcfur hjálpað til að koma þessari tryggingu á og getur Ábyrgð h.f. nú veitt þeim trygg- ingartökum sínum, sem erlendis fara með bíla þessa nauðsynlegu tryggingu, sem þeir hingað til hafa þurft að kaupa í hverju landi fyrir sig, mun dýrari, og þurft að greiða crlendan gjaldeyri fyrir. Tryggingin gildir ekki með neinni ákveð- inni tryggingarupphæð, heldur með þeirri upphæð, sem er lögboðin í hverju landi, sem ferðast er um. Þetta er mikill kostur, því íslcnzka ábyrgðartryggingin tekur til miklu lægri tryggingarupphæðar cn tíðkast í Evrópu. Saltausturinn í Reykjavík í Tímanum, föstudaginn 27. apríl s. 1. birtist viðtal við Jón Sveinsson, véltækni- fræðing. Telur hann, að saltausturinn á göt- ur Reykjavíkur muni kosta bifreiðaeigendur árlega um 75 milljónir króna í eyðilögðum verðmætum vegna riðátu í bílunum. Jón getur þess í viðtalinu, að Kaupmanna- hafnarbúar, sem áður fyrr jusu salti á götur sínar í snjó og hálku ,hafi nú algcrlega bannað þctta, en dreyfi sandi um þær í staðinn. Var ákvörðun þessi tekin eftir ítar- legar rannsóknir á áhrifum saltsins á bíl- ana. Bindindisfélag ökumanna hefur áður op- inberlega rætt um skaðnæmið af saltaustri á götur. Tekur Brautin mjög eindregið undir álit tæknifræðingsins þetta varðandi. Eru ráðamenn Rcykjavíkurbæjar á þeirri skoðun að ckkert ráð sé til við hálkunni annað en saltið, cða gcra þeir sér ekki enn grein fyrir áhrifum salts á stál? Höfum við efni á að sóa verðmætum okkar gengdarlaust fremur en aðrar þjóðir? Eða er komin einhver ó- viðeigandi stífni inn í málið. „Óskaðlegt salt“ á götunum ræðum við ekki um, það er of fáránlegt. Sparið per kílómeter með

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/233

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.