Skólablaðið - 01.05.1916, Page 15

Skólablaðið - 01.05.1916, Page 15
SKÓLABLAÐIÐ 79 orsakir að gera: Annaöhvort hefur skólanefnd viljað veita ein- hverjum sér nákomnum atvinnu, éða aö hlutaöeigandi kennari hefur samiö um aö gefa falsvottorð og vinna fyrir m i n n a en fræðsulögin ákveöa, til þess aö landssjóöur styrki þaö fræösluhéraö m e i r a en honum ber. Allmörg dæmi hafa sannast, þar sem atvinnulausir ræflar unnu það fyrir mat vetr- arlangt, aö láta kalla sig kennara, og endaö svo starfiö meö því aö undirskrifa falsvottorö fyrir fræðslunefnd. Þessu þarf að breyta. Hverju skólastarfi ætti aö „slá upp“ í Skólabláðinu, eigi síðar en i marsmánuði ár hvert, svo fram- arlega sem kennaraskifti ættu aö veröa. Siöan ætti fræðslumála- stjóri í samráði við fræðslu- eöa skólanefnd að ráöa kennar- ann. Og ef ekki næðist samkomulag, þá ætti fræðslumálastjóri aö ráða. Með þessu mundu öll kenslustörf veröa auglýst. Ómögulegt að „frændsemi" spilti kennaravali í mörgum hér- uðum árlega (enginn einn maður nógu frændmargur til þess). Ráðningasvikin mundu hverfa meö öllu. Útskrifaðir kennarar mundu sitja fyrir öörum, en nú er það ekki. Ráðningin yrði afgerð á vorin, og enginn kennari þyrfti að vera vonbiðill fræðslunefnda fram á haust — og verða seinast atvinnulaus. S k ó 1 a v i n u r. Ný bók. Einar Helgason: R ó s i r. Rv. 1916. B j a r k i r komu fyrir ári; nú koma R ó s i r. Síðarnefnda bókin er ágæt leiðbeining fyrir hvern sem vill rækta stofublóm. Gluggarnir hér á landi eru fátækir af þeirri híbýlaprýði, nema í kaupstöðum. Til sveita er alt minna um blómrækt, þó að úokkrar séu undantekningar. Hér eru bæði almennar ræktunar- reglur og lýsing á meðferð einstaka blómategunda. Vankunn- áttan um þetta mun hafa verið versta torfæra fyrir blómrækt- ina hingað til. Nú er henni rutt úr vegi. „Skólablaðið" þakkar höfundinum fyrir þetta þarfa kver og mælir sem b,est með þvi vi'ð kaupendur.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.