Vísir - 09.03.1961, Blaðsíða 8

Vísir - 09.03.1961, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. — Sími 1-16-80. ¥lSIE Munið. að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 9. marz 1961 Frank lítur björtum augum á tilveruna, þrátt fyrir stundar- -erfiðleika. Á næsta augnabliki var hann horfinn inn um dyr Æangahússins. (GK-mynd) Eftir hjónavígsluna, fyrir utan íbúðarhús prestsins að Auðar- stræti 19. (GK-mynd). Loðnuganga í Eyjafirði. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í yam. Afli virðist vera að glæðast hjá Akureyrartogurunum, og tveir togarar sem komu til hafnar nú í byrjun vikunnar voru'með meiri afla, en i’engizt liefur um langt skeið áður. Annar þessara togara var Norðlendingur, sem aflað haiði 144 lesta, og kom inn á mánudaginn. Hinn togarinn var Sléttbakur, hann kom af veiðum í gær eftir 11 daga úti- vist og var með 160---170 lestir. Togarnir höfðu fengið þessa veiði, sem mest var þorskur, en einnig' nokkuð af ýsu, á heimamiðum. Aflinn fór ýmist í hraðfrystingu eða skreið. Vart hefur orðið við mikla loðnugöngu í Akureyrarpolli og Eyjafirði. Síðastliðinn1 sunnudag' fékk v.b. Björgvin, I sem er 26 tonna bátur, 90 tunn- j ur af loðnu, sem að mestu leyti. var selt til Vestfjai'ðar. Kennedy vill bætta sambúð við Kinakommúnista En án nokkurrar uppgjafar af hálfu Bandaríkjanna. Nkrumah forseti og forsætis- ráðlierra Ghana ræddi við Ken- nedy forseta Bandaríkjanna i gær og hélt svo áleiðis til Lond- on til þátttöku í samveldisráð- stefnunni og situr annan fund hennarí dag. Rætt var um alheimsmál al- mennt á fundinum í gær og var þá oft minnzt á Kína, og í dag mun verða rætt um afvopnun- artillögur og tillögur um bann við tilraunum með kjarnorku- vopn. Vel fór á. með þeim Kennedy og Nkrumah. Þeir voru sam- mála um nauðsyn starfs þjóð- anna innan vébanda Sameinuðu þjóðanna og að Afríkuþjóðir legðu sig fram í samstarfi til einingar, viðreisnar *og fram- fara. Ný fyrirmæfi variandi Banda- ríkjaherskipin fimm. Eru nú á ieið til Höfðaborgar. Bandarísku herskipin, sem voru á leið til heimsóknar í Suður-Afríkuhöfnum, en var snúi'ð við og stefnt til Kongó- stranda, stefna nú aftur suður á bóginn Voru fyrirmæli gefin um það í fyrradag. Það var ambassador Banda- Brúðkanpsnótt i einveru. Frank Franken fékk stundarieyfi úr gæiiu- varðhaidi í gær, til að kvongast ísi. stúíku. ... Þá spyr ég þig brúðgumi, •Gúnter Hermann Frank Frank- ©n: Er það einlægur ásetningur þinn, að ganga að eiga konuna ...., sem hjá þér stendur? — Já. — Vilt þú með guðs hjálp liifa saman við hana í meðlæti ©g mótlæti og hverjum þeim kjörum, sem algóður guð Iætur ykkur að höndum bera, eins og kristnum eiginmanni ber að lifa saman við eiginkonu sína? — Já. — Gefið þá hvort öðru hönd ykkar þessu til staðfestu . . . Eg sat inni í stofu hjá síra Sigurjóni Þ. Árnasyni í gærdag og hlýddi á þessi orð, sem bár- ■ust að eyrum mínum í gegnum jhurðina úr næstu stofu. Við sátum þarna þrír saman, tveir fulltrúar frá sakadómara- embættinu í Reykjavík og ég. Þetta virtist vera skrifstofa prestsins, klædd þægilegum, „gamaldags“ húsgögnum. Á skrifborðinu var opin Biblía og önnur guðsorðabók, sem ég ekki kannaðist við. Bækumar voru báðcir þvældar og auðsjá- anlega mikið notaðar. Orð og setningar. voru undirstrikuð með blýanti: Eg sé enga sekt hjá þessum manni . . . ég þvæ hendur mínar . ■ • Presturinn hafði sýnilega verið að semja ræðu um píslar- söguna, þegar hann var beðinn að gefa saman unga íslenzka stúlku og framandi mann Hurðin fram í ganginn var opin til hálfs, svo að fulltrúarn ir gætu fylgzt með mannaferð- um þar. Enginn hefði getað í komizt út án þess að þeir vissu hver það væri. Það var þeirra skylda, og þess vegna voru þeir þarna. Heldur engin hætta á að neinn færi að hlaupast á brott á þessari stundu. Þarna voru allir staddir af frjálsum og fús- um vilja, nema kannske lög- reglumenhirnir tveir. Það var sýnilegt að eitthváð hefði átt betur við þá, en sitja þarna aðgerðarlausir og hlusta á sálmasöng í næsta hérbergi. „Þegar ég kvæntist," sagði annar upp „Þá var svo mikil lykt af prest- inum, að það lá við að ég fyndi á mér.“ „Já. Hann hefur tekið þetta nærri sér, konunnar vegna,“ sagði hinn. . . . þá lýsi ég yfir því — heyrðist í gegnum hul'ðina — að þið eruð rétt hjón, bæði fyr- ir guði og mönnum . . . það sem guð hefur tengt saman, má eigi maðurinn sundur skilja. Við þögðum allir frammi, og hver hugsaði sitt. Eg stalst til að líta framan í verði laganna. Þeir voru skyndilega orðnir al- varlegir á svip. Kannske þeir hafi verið að hugsa um það, sem var að ger- ast í stofunni við hliðina á okk- ur. Kannske minnst sinnar eig- in hjónavígslu .. . eða kannske hafa þeir bara munað skyndi- lega eftir því, að þeir áttu víxil á síðasta degi í bankanum. En Frank á líka sinn víxil ó- borgaðan, og' það er síðasti dagurinn í dag, Hann hefur staðið í því nótt og dag í nokkr ar vikur, að fá framlengingu á honum, en svar var ekki komið í gær^ og líkur fyrir því að víx-' illinn falli á hann í dag og verði afsagður. Það er í dag, sem úr því verður skorið, hvort hann ríkjanna í Kongó, Timberlake. sem hafði farið fram á það við flotastjórnina, að stefna her- skipunum til Kóngóstranda, ef Sameinuðu þjóðirnar þyrftu á aðstoð að halda, og var tekið fram, að hér væri um örj'ggis- ráðstöfun að ræða, og engin að- stoð veitt, nema um hana væri beðið af Sameinuðu þjóðunum. Ennfremur, að S. þj. hefðu ekki beðið um, að herskipin væru kvödd til Kongóstranda. Herskip þessi heimsækja 11 Afríkuhafnir og stefna nú til Höfðaborgar. — Þau hafa frá í janúar flutt matvæli til starfs liðs Sameinuðu þjóðanna i Kongó. Áður hafði Kennedy rætt við fréttamenn og sagt, að hann vildi draga úr þenslu í sambúð Kína og Bandaríkjanna, en ekki með neinum uppgjafarskilmál- um af hálfu Bandaríkjanna. Hann minntist á ofbeldislegar Kína og svæsinn áróður gegn Bandaríkijunum. Þá kvað hann það hafa dregið úr vonum sín-. um, að á viðræðufundum am- bassadora Kína og Bandaríkj- anna í Varsjá, hefði Kína enn hafnað samkomulagi um frétta- mannaheimsóknir. Thompson ambssador Bnda- ríkjanna í Moskvu mun í dag afhenda boðskap Kennedys for- seta austur í Novosibirsk, þár sem Krúsév er nú á áróðurs-' ferðalagi fyrir bættri tækni í landbúnaði og auknu fram- leiðsluátaki. í s.I. mánuði fengu 3.390.- 500 maima í Bandaríkjunum atvinnuleysisstyrki og er það langhæsta tala slíkra styrkþega til þessa. AftasöEur í gær og dag. B.v. Júní frá Hafnarfirði seldi 174 lestir af fiski í fyrradag í Bremerliaven fyrir 104 þúsund mörk. Af þessu fiskmagni voru 25 lestir ísuð síld. — Guðmundur Péturs frá Bolungavík seldi einnig, 57 lestir, fyrir 34.600j mörk. _ i Jón forseti seldi í gær í Cux- haven, 112 lestir fyrir 77.500 mörk. Þorkell máni seldi einnig í gær 135 lestir fyrir 83.093 mörk. Hörmulegt slys: Vélstjóra á Reykjafossi ték út í hafi. Það gerSlst í fyrrfnótt er skipiÓ andæfói fyrir suðaustan land. Það hörmulega slvs varð í fyrrakvöld ,er Reykjafoss and- æfði móti stoxmi og stórsjó, suðaustur af landinu, að út tók fyrsta vélstjóra skipsins, Einar Sigurjónsson. Engir sjónarvottár voru að slysinu, og tókst ekki að finna lík hins látna. Einar var 41 árs gamall, kvæntúr Magneu Hallmundsdóttur, og áttu þau þrjú börn, tvær telpur, 14 ára og 12 ára, og einn son, 5 ára. " hafði ís- skeiö. og var í hvívetna vel látinn í starfi sínu. O 8 stiga hiti á Akur- eyri í gær. Akureyri í gær. f dag og gær er hlýviðri og inikil leysing á Akureyri. í gær var 8 stiga hiti, en 5 stiga hiti í morgun. Snjó hefur mikið leyst, en um helgina féll allmikill snjór og var sumstaðar komin þæfingsófærð, m. a, var Vaðlaheiði ófær orðin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.