Tölvumál - 01.10.1991, Blaðsíða 23
Oktðbef 1991
hann er) fái allt f senn tækifæri á
að gera eða framkvæma, ræða
um viðfangsefnið og skrá niður-
stöður sínar. Við tölum um
nauðsyn á þvf að fá að gera, ræða
og skrá. Tölvuforritin bjóða
augljóslega upp á tvö fyrstu
atriðin. Börn og unglingar eru
oft spenntari og fusari til að
framkvæma og til að reyna
hugmyndir sínar í sameiginlegri
glímu sinni við tölvuforrit en
þau eru ella. Að vísu ræður
nýjabrum nokkru hér um, en það
er aðeins eitt margra atriða. Þau
ræða líka eðlilegar um við-
fangsefnið í formi tölvuforrits
en við ýmsar aðrar aðstæður. En
þriðja óskin, þ.e. um að þau læri
að skrá skynsamlega hjá sér það
sem máli skiptir, og að nota það
síðan til þess að fá enn gleggri
yfirsýn en hægt er ella, getur líka
ræst í ríkum mæli með nýtingu
tölvubúnaðar í höndunum á
næmum og skynsömum kennara.
Þannig nýtist skynsamleg
skráning á ferðum stúlknanna og
kvennanna eins og þessi:
1 K
1 S
2 S
1 S
1 K
1 S
2 S
(S: stúlka, K: kona)
Slík skráning getur leitt til þess
að nemandinn sér það mynstur
sem að baki getur legið, sér að
um er að ræða regluleika og að
það að uppgötva þennan reglu-
leika getur hjálpað við að leysa
flóknari viðfangsefni án þess að
þurfa að framkvæma verkið aftur
í flóknari mynd. Þannig getur
nemandinn sem sér mynstur úr
skráningunni fært sér það í nyt
til að sjá hve margar ferðirnar
yrðu fyrir 3 konur, 6 konur, 99
konur, 9753 konur eða jafnvel n
konur þar sem n er hvaða heil
pósitíftala sem er. Með því móti
sprettur algilda formið fram á
skiljanlegan og náttúrlegan hátt
og algebran sem í senn er hið
algilda form og mál þess fær að
og kann skil á.
Þegar þess er gætt að algengt
virðist vera að stór hluti nemenda
viti í raun ekki hvað þeir eru að
gera í algebrunámi sínu, hlýtur
kennurum að vera það nokkur
fengur að geta nálgast alhæfð
viðfangsefni á annan hátt en
venjan hefur verið.
Töflureiknar
Síðara viðfangsefni mitt tengist
töflureikni. Töflureiknar hafa
verið á markaði fyrir skóla sem
aðra um alllangt skeið eða allt frá
því Visicalc kom fyrst á
markaðinn. Þeir fylgdu hver af
öðrum, Supercalc, Multiplan,
Lotus 1-2-3, Excel o.fl. o.fl.
Dæmið sem ég set hér upp er í
PlanPerfect, vegna þess að hann
er á íslensku, mér vitanlega sá
eini. Það þarf ekki mikið
hugarflug til að láta sér detta í
hug að nota megi töflureikni f
stærðfræðinámi en þó hefur ekki
23 - Tölvumál