Vísir - 31.08.1962, Blaðsíða 2
2
VISIR
Föstudagur 31. ágúst 1962.
Harka í Bikarnum:
Keflvíkingar aftur í /. deild
eftir tveggja ára fjarveru
HAUKUR ÞORVALDSSON -
iiorkhæstir
í 2. deild
> Haukur Þorvaldsson, Þrótti, 19 (
mörk.
i Reynir Jónsson, Breiðabliki, 12 \
mörk.
|Jón Jóhannsson, Keflavík, 10]
mörk.
| Högni Gunnlaugsson, Keflavík, J
10 mörk.
► Axel Axelsson, Þrótti, 9 mörk.
| Ragnar Jónsson, Hafnarfirði, J
8 mörk.
S/WSAAAAAAAAA/VWVSAA
Yfirburðasigur þeirra yffir
Þrótti í gærkvéidi — 3:1
Ágengir og ákveðnir
sóttu Keflvíkingar að
marki Þróttar í gærkvöldi
og hvað eftir annað lá við
að boltinn fengi aðgang að
netinu, — en aðeins þrisvar
þurftu varnarmenn Þróttar
að ná í knöttinn, og var
það vel sloppið, því lið
Keflavíkur átti allan leik-
inn að undanskildum 15
fyrstu mínútum síðari hálf
leiks, en þá lék Þróttur vel
og skoraði sitt eina mark.
Greinilegt var strax i byrjun, að
taugaóstyrkur var mikill meðal
leikmanna Þróttar og Keflavíkur,
er þeir hófu leik á döggvotum
Laugardalsvellinum klukkan hálf
sjö í gærkvöldi. Þetta tókst Kefl-
víkingum að harka af sér, en Þrótt-
urum ekki. Keflvíkingar gáfu
sjaldnast þumlung eftir, er barizt
var um knöttinn, og tókst að ná
einkayfirráðum á miðju vallarins,
og þaðan dreifðu þeir spilinu til
beggja handa og náðu oft ágætum
leik, einkum þó framlínuleik, með
Hólmbert Friðjónsson og Jón Jó-
hannesson sem langhættulegustu
menn, eldsnögga, ákveðna og
lagna.
Þróttarar gátu í fyrri hálfleik lít-
ið gert annað en horft á hamfarir
Keflvíkinga og í þau fáu skipti,
sem þeir komust í taifæri við bolt-
ann urðu þeir að láta í minni pok-
ann í viðureign sinni við þungan
og hálan völlinn, enda fæstir á
knattspyrnuskóm sem ætlaðir eru
fyrir grasvelli, heldur á skóm með
Iitlum tökkum, ákjósanlegir á
harðan malarvöll.
Strax fyrstu mínúturnar dundu
skotin á mark Þróttar og var skot
Karls Hermannssonar hættulegast
þessara skota. Hólmbert komst
einnig í gott færi, en skot hans
hitti illa og boltinn fór í boga að
endamörkum inn á völl aftur, en
þar var bjargað naumlega. Þróttar-
ar komu ekki svo langt að til af-
skipta markvarðar Keflavlkur
leiddi fyrr en á 22. mínútu, þegar
þeir áttu opið tækifæri við mark
Keflavíkur, en það var varið naum-
lega f horn af öðrum bakverðinum.
Eftir 30 mínútna leik bar leikur
Keflavíkur loksins ávöxt með
marki sem Hólmbert skoraði lag-
lega. Hann notfærði sér eyðu í vörn
Þróttar og með boltann á tánum
komst hann rétt inn fyrir vörnina
og skaut óverjandi fyrir Þórð. Það
var Jón Jóhannsson, sem gaf Hólm
bert böltann laglega inn í eyðuna.
í byrjun síðari hálfleiks var sem
nýtt lið Þróttar gengi til leiks,
menn sem að vísu börðust ekki
ekki eins og um úrslitaleik væri að
ræða, en léku fallega knattspyrnu,
og héldu boltanum tímunum sam-
an, þó án þess að veruleg hætta
stafaði af, til þess vantaði meiri
hraða og hreyfanleik í framlínuna.
í 15 mínútur léku Þróttarar þann-
ig, án þess að Keflvíkingar gætu
komizt í nokkurt færi að ráði, en
segja má að framlína Þróttar hafi
unnið vörninni gott gagn með þvi
að halda boltanum.
Varnarmistök ollu marki Þróttar,
en markvörðurinn hljóp út á teig-
inn og ætlaði að kasta sér fyrir
boltann, en varð of seinn, því Þrótt-
arar höfðu náð boltanum og Jens
Karlsson skoraði örugglega í mark-
ið, sem varnarmenn reyndu að
verja án árangurs. Markið var
skorað á 16. mfnútu.
Átta mínútum síðar voru Kefl-
víkingar búnir að ná yfirhöndinni
á ný og búnir að ógna marki Þrótt-
ar hvað eftir annað. Jón Jóhannes-
son lék á heldur Iélega varnarmenn
Þróttar og skoraði glæsilega 2:1
Framhald á bls. 6.
" ,;;,v,v.inhúu**u>
J-
' - •
* / (''W
• ••
. .. . ’ ■ .... . /I•'
- >> H- ....* " ^ '■
'"♦Míah+'-m..............'"*• .
..:
' . / : :: ; ................./ .... '
■:: • >:
Þróttarar verjast ásókn Keflvíkinga. Hólmbert að skjóta.
Tvö jafntefli hjá
Breiðabl. og Vtking
í fyrrakvöld fór fram f Hafnar-
firði, óháðum Ieikvelli, annar leikur
2. deiidarliðanna Breiðabliks og Vík
ings í Bikarkeppninni. Var leikur-
inn háður á hlutlausum velli þar
eð aðilarnir höfðu skilið jafnir í
Ieik í Reykjavík fyrir nokkru.
Enn lauk leiknum með jafntefli
og varð að hætta við svo búið, og
verður að koma þriðja leiknum á til
að fá úr því skorið hvort liðanna
fær að halda áfram í keppninni.
Víkingar skoruðu fyrsta markið
í leiknum, en Kópavogspiltarnir
jafna fljótlega og komast svo marki
yfir. í hálfleik var staðan 2:1 fyrir
Breiðablik. Víkingar jöfnuðu I síð-
ari hálfleik, en Breiðablik skorar
3:2 og Víkingar jöfnuðu aftur 3:3.
Víkingar skoruðu að vísu tvivegis
eftir þetta, en bæði voru þau mörk
dæmd ógild.
Leikurinn var oft harður og
glannalegur á báða bóga og undir
lokin var harkan orðin svo mikil
að engu munaði að upp úr syði.
1 kvöld verður reynt að fá úrslit
úr öðrum svipuðum leik, milli
Þróttar (b) og Vals (b), en þau lið
skildu einnig jöfn, 4:4. Það lið sem
þá sigrar leikar svo daginn eftir
við A-lið ÍBK, en verði jafntefli
getur leikurinn ekki farið fram
fyrr en eftir að ÍBK kemur úr
ferðalagi sínu til Færeyja, en þeir
halda utan á sunnudag og verða 3
vikur í ferðinni.