Vísir - 14.09.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 14.09.1962, Blaðsíða 2
VISIR ■Föstudagur 14. septetnber 1962. v, y////m v//////////'W/////////m -///////; Vilhjálniur fékk fyrsta stig íslands á EM Valbjörn var 12. eftir fyrri dag tugþrautarinnar Ekki er vitað hvort Val- Ijjörn var með í stangar- stökkinu, en eftir skeytum frá NTB að dæma var hann ekki einn af þeim 13 sem tókst að stökkva 4.40 m. Dg „kvalifisera“ sig. Greini legt var í forkeppninni að það verður barátta milli Nikula, sem að vísu fór ekki yfir fyrr en í annarri tilraun, 'og Þjóðverjans Preussger, sem er mjög ör- uggur stökkvari. Meðal t þeirra sem stukku 4.40 og komust í aðalkeppnina eru allir 3 keppendur Finna og Þjóðverja. Norðmaðurinn Kjell Hovik náði einnig 4.40 metrum. Ter-Ocanesja sýndi greinilega 1 undanrásum hver muni sigra í langstökki, er hann stökk létt og leikandi 7.82, sem var langbezta afrekið í undankeppninni. Landi hans Bondarenko kom næstur með 7.67. Sama var uppi á teningnum í undanrásum 110 metra grinda- hlaupsins, þar sem Mikailow, Rússlandi, náði 14.0 keppnislaust, en sama tíma fengu Chardel, Frakkl., Taitt, Englandi og Corn- acchia, Ítalíu, í hörkukeppni í 4. riðli. í 400 metra grindahlaupi virðist Italinn Morale sfgurstranglegastur og vann milliriðilinn í gær með 50.0 sek., sem er langbezti tíminn til þessa og ótrúlega verður hon- um ógnað. í 400 metra hlaupi, milliriðlum, fékk Þjóðverjinn Reske beztan tímann, 46.1 sek., en Pólverjinn Madenski og Englend- ingurinn Brightwell verða honum hættuiegir. Fyrstur í tugþrautinni er eftir fimm greinar Þjóðverjinn Holdorf 4370 stig, en landi hans von Moltke næstur með 4335 stig. VERÐLAUN Á EM Eftir annan dag Evrópumeist- aramótsins í Belgrad skiptast verðlaunin á milli þátttökuríkj-’ anna þannig: Karlar: Sovétríkin: 2 gull, 1 silfur og 2 bronz. •Frakkland: 1 gull og 1 silfur. • lEngland: 1 gull og 1 bronz. Pólland: 1 gull. ÍÞýzkaland: 2 silfur og 2 bronz.' [Holland: 1 silfur. Konur: Sovétríkin: 1 gull og 1 bronz. England: 1 gull. Þýzkaland: 2 silfur. IPóIIand: 1 bronz. Preussger frá Þýzkalandi keppti eitt sinn hér í Reykjavík, en er nú eini keppandinn sem virðist ætla að geta veitt Finnanum Nikula keppni í stangarstökkinu. Suutari frá Finnlandi 3. með 4287 stig. lsland fékk fyrsta stigið í ó- opinberri stigakeppni EM í Bel- grad í gær er Vilhjálmur Einars- son stökk 16.62 í þrístökkúrslitun- um og fékk 6. sætið í keppninni. Af hinum íslenzka keppandanum, Valbirni Þorlákssyni er það að frétta að hann hafði hlotið 3636 stig í tugþrautinni eftir fyrri dag- inn og var í 12. sæti. 1 þrístökkskeppninni vann OL- meistarinn og heimsmeistarinn Schmith frá Póllandi sigur og stökk 16.55, en Gorjajev og Fedos- sejev frá Rússlandi voru ekki langt á eftir með 16.39 og 16.34. Pól- verjinn Jaskolski hreppti fjórða sæti með 16.02, fimmti varð Júgó- slavinp Josic með 15.78, Vilhjálm- ur Einarsson sjötti með 15.62. Norðmenn áttu áttunda mann Odd Bergh, með 15.52, en afreki hans var fagnað innilega af Norðmönn- um, sem telja um stórsigur fyrir sig að ræða enda gott afrek á móti strekkingsvindi sem var á móti stökkvurunum í gær. í 100 metra hlaupi karla vann Frakkland tvöfaldan sigur, Claude Piquemal nr. 1 eftir fótofinimynd, sem skar úr um röð 5 fyrstu manna, sem fóru allir á sama tíma. Annar varð Deiacour, þriðji Peter Gamper, Þýzkalandi, og fjórði landi hans, Alfred Hebauf. Fimmti varð svo Juskowiak, Póllandi, en lestina rak „stjarnan" sem margir höfðu búizt við fyrstum í mark, Pólverjinn Marian Foik á 10.5 sek. í kringlukasti vann Rússinn Trusenev með 57.11 metra kasti, en Hollendingurinn Kock kom næstur með „aðeins" 55.96 metra. Þriðji Milde, Þýzkalandi, en Piat- kowski frá Póllandi og Scheniy frá Ungverjalandi serft álitnir voru skeinuhættir Rússanum fyrir EM köstuðu aðeins 55.13 og 14.66 og fengu 4. og 6. sætið. Fimmti varð Kompaneeos frá Rússlandi með 54.74. í kvennagreinunum vann enska stúlkan Dorothy Hyman I 100 metra hlaupi á 11.3 sek, en Jutta Heine, önnur á OL 1 Róm varð einnig í öðru sæti nú á sama tfma. Þriðja varð Ciepe, Póllandi á 11.4. Valur vann mót yngstu mannanna Það var barizt af mikilli grimmd um íslandsmeistaratitilinn í 5. flokki í ár. Tvo leiki þurfti til að gera út um keppnina, en báðir fóru leikir smæstu knattspyrnumann- anna fram á einhverjum stærsta(I) vellinum sem fyrirfannst, Mela- vellinum. Fyrrl leiknum Iauk með 0:0, en hinum síðari með óréttlát- um sigri Vals yfir Víking 3:2. Víkingar höfðu alla yfirburði í fyrri leiknum en gátu ekki skorað mark hvernig sem reynt \^r. Hefðu þeir sannarlega átt sigurinn skilið í annað skipti I röð, en í fyrra voru Víkingar með langbezta flokkinn.' í fyrrakvöld léku drengirnir aft- ur og var leikurinn allsögulegur. Bæði liðin léku af krafti og var oft harka f leiknum hjá litlu drengj- unum, þó margt gert laglega og falleg skot. Fyrri hálfleikurinn var alljafn. Strax á fyrstu mínút- unum settu Valsmenn mark. Var þar að verki ungur piltur, Sigurjón Tryggvason, sem skaut háu skoti yfir markvörðinn, sem náði ekki hálfa leið upp í markstengurnar. Mínútu síðar gerðu Víkingar svo sjálfsmark. Víkingurinn Kári Kaaber lagaði markatöluna nokk- uð fyrir hálfleik og skoraði faliegt mark, í seinni hálfleik bætti Kári öðru marki við, 2:2, hnitmiðað og fall- egt mark. Eftir þetta mark áttu Víkingarnir allan leikinn en tókst ekki að skora, þótt litlu munaði oft. Valsmenn höfðu hins vegar heppnina með sér og Jóhannes Mikson skoraði í stöng og inn, óskamark allra drengja, er nokkr- ar mínútur voru til leiksloka. Vik- ingar sóttu mikið það sem eftir var, en árangurslaust og urðú að hafa það að tapa fyirr mun lakara liði. íslandsmótið. 5. flokkur. — Crslit. ' 5. flokksmótið var haldið I tveim riðlum ein„ og hin íslands- mótin. 1 A-riðli voru 6 lið. Tvö af þeim gáfu sina leiki, Reynir úr Sandgerði gaf 4 af sínum 5 leikj- um og Þróttur gaf 2 leiki. Úrslitin I riðlinum urðu sem hér segir: Valur Akranes Fram L 5 5 5 J T 0 0 0 2 0 2 M. St. 26:2 10 11:7 6 4:5 6 Frh. á 5. síðu. Dani var kominn í færi aðeins 5—6 metra frá marki og þrumu- skot reið af, — en hinn snjalli markvörður Curacao, Ballentinen sló í hom. MARKVÖRÐUR CURACAO „EÍNN GEGN ÖLLUM## Frábær markvarsla í Odense kom í veg fyirir stærri sigur en 3:1 Danir unnu Curacao, Iiðið sem átti að leika hér á sunnudaginn kemur, en gleymdi að panta far- seðla með flugvél hingað f Odense á miðvikudagskvöldið og fóru leikar svo að Danir unnu með 3:1, eftir mjög lélegan leik af þeirra hálfu að því er dönsk blöð herma. Það var þó hinn sótsvarti mark- vörður Curacso, Ballentinen, sem kom mest í veg fyrir að mörkin urðu ekki fleiri í leiknum, en hann varði ipjög vel, auk þess sem hann var óbanginn við að „koma við“ framlínumenn Dana sem fengu al- gjört „knock out“, talning óþörf, enda þótt þeir væru fimm gegn honum einurn. Annars léku Danir mjög illa og sagði dómarinn Birger Nielsen, Noregi, að hann hefði aldrei séð danskt landslið leika svo illa og aldrei séð aðra eins markvörslu og hjá gúmmlkarlinum Ballentinen. Þess skal getið að Curacao naut ekki þessa ágæta markvarðar í leiknum í Hollandi, en þá töpuðu þeir 0:8. þróttaþing kem- ur saman í dag íþróttaþing ÍSÍ hefst í dag kl. 16.00 í húsakynn- um Slysavarnafélagsins á Grandagarði. Umræður og þingstörf fara fram í dag og á morg- un en annað kvöld stendur til að þingslit fari fram. Meðal verkefna íþróttaþings nú er kosning nýs forseta, þar eð Benedikt G. Waage, hefur nú í hyggju að láta af störfum, en hann hefur lagt fram góðan skerf til ÍSÍ í þau 50 ár sem samtökin hafa starfað, en Benedikt hefur setið í stjóm í 47 ár þar af 36 ár sem forseti samtakanna. Sagt verður frá þingstörfum í Vísi á mánudaginn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.