Vísir - 24.10.1962, Qupperneq 10
w
V í SIR . Miðvikudagur 24. október 1962.
' Fjórlogaræðan —
Frh. at bls. 7.
slegið fastri reglu um það, hvern-
ig reikna skul i greiðslujöfnuð,
greiðsluafgang eða halla ríkis-
sjóðs. Sú regla verði lögfest og
þar með tryggt samræmi milli
ára svo um þetta þurfi ekki að
deila.
Drög að slíku frumvarpi og
ýtarleg greinargerð hafa verið
samin og eru nú til athugunar
hjá ýmsum sérfræðingum um
þessi efni. En hér er um að ræða
mjög nauðsynlega umbót í ríkis-
rekstrinum, sem þarf að koma í
framkvæmd sem fyrst, en jafn-
framt verður að vanda mjög all-
an undirbúning þeirrar umbótar.
Skuldir lækka
Skuldir ríkissjóðs eru í árslok
1961 taldar 994.7 milljónir króna.
Þær hafa lækkað um 348 millj.
á árinu. Sú skuldalækkun liggur
fyrst og fremst í því, að Seðla-
br«nkinn hefur með samningi við
fjármálaráðuneytið tekið að sér
skuldir við Alþjóðabankann og
gjaldeyrissjóðinn. Það er nýmæli
í skuldamálum ríkissjóðs, að
tekjuafgangi ársins var fyrst og
fremst ráðstafað til þess að
greiða upp lausaskuldir ríkis-
sjóðs. Þær voru í ársbyrjun 1961
42.8 milljónir króna, en voru
greiddir að fullu upp á árinu. í
lok ársins 1961 voru engar lausa-
skuldir hjá ríkissjóði.
' Lausaskuldir ríkissjóðs hafa
undanfarin ár verið sem hér seg-
ir, rniðað við árslok:
1950 91.9 millj.
1951 84.4 —
1952 80.5 —
1953 72.8 —
1954 69.2 —
1955 105.0 —
1956 91.5 —
1957 89.5 —
1958 60.8 —
1959 28.1 —
1960 42.8 —
1961 engar
Eignir ríkisins umfram skuldir
eru nú taldar 1292.3 milljónir
króna og höfðu aukizt um 144
milljónir á árinu.
Varðandi horfur um afkomu
ríkissjóðs á árinu 1962 er þess að
geta, að rekstrartekjur ríkissjóðs
voru áætlaðar í fjárlögum 1748.8
niillj. kr. og rekstraútgjöld 1637.7
millj. kr.
Hinn 30. sept. s. 1. voru rekstr-
artekjur orðnar 1347.0 millj. kr.
og rekstrarútgjöld 1293.8 millj.
kr. Tekjur af innflutningi munu
reynast nokkru meiri en ráðgert
var, bæði sökum vaxandi magns
innfluttra vara, svo og þess, að
samsetningur innflutningsins virð
ist færast í það horf, að tolltekj-
ur af hverri krónu verði meiri.
Ennfremur má búast við, að
tekju- og eignarskattur verði
hærri en fjárlög gera ráð fyrir.
Á hinn bóginn munu verða um-
framgreiðslur á liðnum til niður-
greiðslu á vöruverði innanlands
og til. uppbóta á útfluttar land-
búnaðarafurðir. Ennfremur munu
launabætur þær, er veittar hafa
verið, óhjákvæmilega valda um-
framgreiðslu. — Eins og nú horf-
ir er rétt að gera ráð fyrir
greiðsluafgangi hjá ríkissjóði á
yfirstandandi ári, en ógerlegt er
að svo komnu að nefna tölur
um það efni.
Ástæður hærri
útgjalda.
Heildarútgjöld fjárlaga fyrir
yfirstandandi ár voru áætlað
1748.7 milljónir króna. Heildar-
útgjöld fjárlagafrumvarpsins fyrir
næsta ár eru áætluð 2.113.4 millj-
ónir, og er það hækkun um 364.7
milljónir króna. Sú upphæð skipt
ist þannig, að áætlun um rekst-
ursútgjöld hækka um 347.5 millj.,
en útgjöld vegna eignahreyfinga
á 20. grein um 17.2 milljónir. í
frumv. er gert ráð fyrir greiðslu-
afg. á næsta ári sem nemur um
12.8 millj. króna. Ástæður til þess
ara hækkana er einkum þær sem
nú skal greina:
I.
Vegna fólksfjölgunar í landinu
hækka ýmsir Iiðir óhjákvæmilega
frá ári til árs. Má þar nefna
kostnað við kennslumál, vegna
fjölgunar barna og unglinga við
nám. Á rekstursreikningi hækka
skólamálin um 18.4 milljónir, og
á 20. grein hækka framlög til
byggingar menntaskóla og kenn-
araskóla um 2 milljónir. Kostn-
aður við kennslumálin hækkar
þannig um rúmar 20 milljónir.
II.
Framlög til félagsmála hækka
um 85.9 milljónir. Framlag til
atvinnuleysistrygginga er að upp
hæð 32.9 milljónir á næsta ári. f
gildandi fjárlögum var gert ráð
fyrir, að framlagið fyrir þetta ár
yrði greitt á nokkrum árum. Hef-
ur nú verið ákveðið, að það greið
ist á næstu fjórum árum og er
fyrsta fjárveitingin vegna fram-
Iagsins fyrir 1962 tekin upp í fjár
lagafrumvarpið nú, en það eru
6.875.000.00 krónur. Þá má vænta
breytinga á lögum um almanna-
tryggingar, en heildarendurskoð-
un á þeim lögum stendur nú
yfir. Má gera ráð fyrir nokkrum
breytingum er hafi í för með
sér aukin útgjöld, m. a. þeirri,
að allt landið verði nú gert að
einu verðlagssvæði. Er hér áætl-
að í frumvarpinu framlag vegna
væntanlegra breytinga á lögum
um almannatryggingar 20 milljón
ir króna. Þá hækka einnig fram-
lög til Byggingarsjóðs verka-
manna, til sjúkratrygginga og
kostnaður við ríkisframfærslu.
sjúkra manna og örkumla.
III.
Vegna endurreisnar á stofnlána
málum landbúnaðarins með lög-
um frá síðasta þingi hækka fram-
lög ríkissjóðs um 9 milljónir
króna.
IV.
Vegna laga um Aflatryggingar-
sjóð hækka framlög ríkissjóðs
um 9 milljónir króna.
V.
Niðurgreiðslur á vöruverði og
uppbætur á útfluttar landbúnaðar
afurðir hækka um 130 milljónir
króna frá núgildandi fjárlögum.
Þegar áætlun var gerð um þenn-
an lið í fjárlögum þessa árs, stóð
yfir athugun og endurskoðun á
niðurgreiðslukerfinu i heild, með
það yrir augum. að draga mætt>
úr þessum kostnaði. Niðurstaðar
af þeirri athugun var sú, að hætt
var niðurgreiðslu á kartöflum. en
aðrar breytingar reyndist ekki
unnt að gera. í þessu sambandi
er rétt að benda á þá staðreynd,
að neyzla hinna niðurgreiddu
vara vex mjög ört. Neyzla lands-
manna á kjöti, mjólk, smjöri og
fleiri landbúnaðarvörum eykst
um 10%, á ári, á sama tíma
sem fólkinu í landinu fjölgar að-
eins um 2 af hundraði. Ástæður
þessarar miklu aukningar, að
neyzlan eykst fimmfalt á við
fólksfjölgunina, eru væntanlega
einkum tvær, önnur er batnandi
afkoma Iandsmanna yfirleitt, hin
að hið niðurgreidda verð er Iægra
hlutfallslega en annað verðlag í
landinu, og þessar ástæður kalla
á aukna neyzlu. Þessa staðreynd
er rétt að hafa 1 huga í sambandi
við niðurgreiðslur í framtíðinni á
nauðsynjavörum. Heildarfjárhæð
til niðurgreiðslu á vöruverði og
til uppbóta á útfluttar Iandbún-
aðarafurðir er áætlað 430 milljón
ir, í stað 300 milljóna í gildandi
fjárlögum. Á grundvelli þess
magns af landbúnaðarvörum sem
seldist innanlands 1961, eru út-
gjöld til niðurgreiðslu áætluð 352
milljónir, en til uppbóta á út-
fluttar afurðir 60 millj. Sam-
kvæmt fenginni reynslu þótti svo
rétt að hækka þessa áætlun um
ca. 5 af hundraði vegna meiri
söluaukningar en gert er ráð fyr-
ir í þessum áætlunartölum.
VI.
í september síðastliðnum var
samkvæmt hinum nýju lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna samið um 7% Iaunahækk-
un til handa rjkisfitðrfspiönnum.
Undirbúningi fjárlaga iVar þá;á¥o.
langt komið að ekki þótti gerlegt
að endurreikna launaliði í frum
varpinu vegna þessarar uppbótar.
Þess vegna er uppbótin áætluð í
einu lagi á 19. grein. Á síðast-
liðnu vori var ákveðið að greiða
kennurum sérstaka kaupuppbót
vegna aukastarfa, sem ekki er
önnur ákvæði um, hvernig greiða
skuli, og samsvarar þóknunin
greiðslu fyrir fjórar stundir á
viku þann tíma sem skóli starfar.
Hefur þótt rétt að fá fjárveitingu
fyrir þessari Iaunauppbót fyrir
bæði árin 1962 og 1963. Framan-
greindar Iaunauppbætur eru á-
ætlaðar 65 milljónir króna.
VII.
Framlög til ýmissa verklegra
framkvæmda eru hækkuð. Þann-
ig hækka framlög til flugvallar-
gerðar úr 10.7 upp í 12.7 millj.
eða um 2 millj. Til viðhalds vega
hækkar úr 78 millj. í 83, eða um
5 millj. Til hafnarmannvirkja og
Iendingarbóta hækkar um 3.2
millj. úr 13.8 upp í 17 millj.
Til aukningar landhelgisgæzlu
er fjárveiting hækkuð um 3.4
millj. upp í 8.4 og er það bæði
vegna greiðslu afborgana og
vaxta af kaupverði varðskipsins
stærstu liðanna, sem valda hækk
un á gjaldahlið fjárlaganna og
sést af þeim í hverju meginhluti
hækkunar fjárlagafrumvarpsins
er fólgin.
Ég vil leyfa mér að vísa hátt-
virtum alþingismönnum um fyllri
upplýsingar til greinargerðar um
hverja einstaka grein frumvarps-
ins.
CONSUL 315 #62
2ja dyra, hvítur, rauður inn-
an, gullfallegur. Skipti mögul.
Aðal BÍLASALAN
Ingólfstræti og Aðalstræti
Sími 19-18-1 og 15-0-14
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
ALDAN
heldur félagsfund að Bárugötu 11 í dag
miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 20,00.
DAGSKRÁ:
1. Kjarasamningar.
2. Hafnarmál Reykjavíkurhafnar.
Stjórnin.
SÓLHEIMABÚÐIN
auglýsir, nýkomið:
Hudson sokkarnir margeftirspurðu komnir
aftur. Nýir litir (fella ekki lykkju). Mislitt
damask 140 cm breitt kr. 77,50 pr meter.
Smáköflótt, finnskt buxnaefni hleypt, fjórir
litir kr. 60,50 pr. meter. Terylene efni í pils
og buxur. Verð frá kr. 222,00 pr. meter. Mik-
ið úrval af ullarefnum einlitu og köflótt frá
kr. 104,00 pr. meter. Skútugarn og Sönder-
borg garn í miklu litaúrvali. Ennfremur ný-
komið mikið úrval af snyrtivörum Max
Factor. Póstsendum um land allt.
SÓLHEIMABÚÐIN
Sólheimum 33 Sími 34479
Samband veitinga-
og gistihúsaeigenda
Félagsmenn eru minntir á fundinn í Leik-
húskjallaranum kl. 8,30 í kvöld.
Stjórnin.
BfLA OG BILPARTASALAN
Höfum til sölu m. a.: Dogde '55 einkabíl, skipti æskileg á
góðum 4 manna bfl '58 -60 Ford '55 station skipti æskileg
á fólksbfl - 20 tommu ford felgur með dekkjum. skipti-
drifs hausing og góðar sturtur af 4 tonna bíl.
Hellisgötu 20, Hafnarfirði, simi 50271.
.T*„sfit Benzin- og bílosolan Vitatorgi
ur, 3.5 millj. til smíði tveggja
nýrra flóabáta, Djúpbáts og
Stykkishólmsbáts. Áætlaður
byggingarkostnaður hvors báts
er 7 millj. og mun ríkissjóður
greiða helming smíðakostnaðar.
Gert er ráð fyrir að greiða þurfi
1 millj. af framlagi ríkissjóðs til
hvors báts við undirritun smíða-
samnings og 750 þús. t.I hvors
þeirra árið 1963. Þess vegna
nemur fjárlagaliðurinn nú 3,5
millj. Síðan er gert ráð fyrir 250
bús. kr árlegri Tjárveitingu til
greiðslu hluta ’kissjóðs unz
'rreiddur hefur veri? helmingur
bygingarkostnaðar.
Hér y hefur nú verið getið
Höfum kaupendur að Volkswagen '55—'62. Opel Record og
Caravan '55 — 60 Taunus '56—’60. Nýum og nýlegum jepp-
um. Seljum Chervolet '58 lítið ekinn, Fíat 1800 '60 Pontiac
56’ selst fyrir skuldabréf allt að 6 ára fasteignatryggð.
Renau Dauphin '62 skipti á Landrover, Skoda '56 fæst fyrir
fasteignabréf Opel Capitan ’56 og '59 glæsilegir bílar.
Volksagen ’62 útborgun 70—80 þús, Ford 47, Vörubíll mjög
góðir. Hringið í síma 23900 og 14917,
Hjolbarðaverkstæðið Millan
Opin ill? daga frá kl 8 að morgni til kl 11 að kvöldi.
Viðgerðn á alls ironai njólbörðum - Seljum einnig allar
stærðn njólbarða V i.iauð vmna — Hagstætt ve.’ð. —
MILLAN, Þverholti 5.