Vísir - 24.10.1962, Side 13
VlSIR . MiSvikudagur 24. október 1962.
13
Það lyftir
Framh. af bls. 4
um?“
„Króinn var ekki skírður strax,
en þó leið ekki á löngu, áður en
ég hafði valið laginu nafn. Björn
Pálsson kom sem oftar fljúgandi
þarna vestur — hann hefur oft
verið eini tengiliður Reykhóla-
sveitar við höfuðborgina — og
ég fór með honum suður. Á leið-'
inni var hann að sýna mér, hvern
ig hann gæti látið flugvélina
velta sitt á hvað, hve lipur þessi
litla rella hans væri, og þá laust
því niður í huga minn, að lagið
ætti bara að heita „Litla flug-
an“!“
„Hvenær var það svo leikið
fyrst í hinum stóra heimi —
skemmtanaheimi Reykvíkinga og
allrar þjóðarinnar?"
„Það var mjög skömmu síðar.
Þegar ég kom til bæjarins úr
þessum leiðangri, hafði Pétur
Pétursson þulur sérstakan
skemmtiþátt, og þar var lagið
leikið og sungið f fyrsta sinn í
eyru fleiri manna en rúmuðust
í stofunni á Reykhólum. Það
varð strax vinsælt, og hefur orð-
ið h'fseigara en vonir stóðu til“.
Olnbogabörn
almennings.
„Getum við ekki átt von á
fleiri „hit“-lögum frá þér á næst
unni?“
„Ég þori engu að spá um það
og enn síður að gefa eitthvert
fyrirheit. Það mun vfst þykja
gott, ef lagasmiðir hafa eitt slíkt
lag á samvizkunni um ævina, og
enginn mun gera slíkt oftar en
á tíu ára fresti“.
„Jbeja, við bíðum rólegir, því
að flugan er ekki orðin tíu ára
enn. En hvert er þitt uppáhalds-
lag — .hvejrt vildir þú, að hefði
náð més’tum tökum á almenn-
ingi?“
„Ég held helzt, að uppáhalds-
lögin mín séu þau, sem hafa orð-
ið eins konar olnbogabörn al-
mennings, ekkí náð þeim vinsæld
um, sem mér hefði fundizt að
þau mættu hljóta, án þess að gert
væri á hluta annarra. En vænzt
þykir mér tvímælalaust um
„Stjána bláa“ við Ijóð Arnar Arn
arsonar, og það er af því, að ég
hafði mest fyrir því lagi. Svo gaf
ég það Sjómannadagsráði, og
Fóstbræður hafa sungið það með
undirleik Sinfóníuhljómsveitar-
innar“.
Tónskáldið og
ljóðskáldið.
„Er það ekki eitthvert sérstakt
ljóðskáld, sem þú hefur helzt val
ið ljóð eftir til lagasmíða?“
„Nei, eiginlega er þar ekki um
neinn sérstakan að ræða, sem ég
Dagur S.Þ.—
Framhald af bls. 8.
vettvangi efnahags- og félags-
mála.
Á árangrinum veltur sjálft líf
mannkynsins, bæði i siðferðis-
legum og líkamlegum skilningi,
og í þeirri baráttu verða allir
menn að taka þátt.
Verði þessum markmiðum náð
hefur það í för með sér frið, ör-
yggi og aukna velsæld til handa
körlum og konum hvarvetna á
jörðinni. Á degi Sameinuðu þjóð
anna 1962 og á næstu mánuðum
verða þjóðir heimsins „að sam-
eina krafta vora til að ná þess-
um markmiðum", eins og segir í
Stofnskránni.
sálinni —
hef tekið fram yfir aðra. Þó er
það ekkert leyndarmál, að mér
fellur ágætlega að „gera kaup“
við Tómas. Mér finnst ég vera
einna næstur honum 1 tónunum,
léttast við hann að eiga, ef svo
má að orði komast. Vilhjálmur
frá Skáholti hefur líka átt sterk
ítök í mér, og ég hef gert lög
við ýmis ljóð hans. Ég gæti
nefnt ýmsa fleiri, en geri það
ekki að sinni“.
„Hvað eru lögin orðin mörg,
sem út eru komin — og hvað
ertu ineð á prjónunum?"
„Þessi tvö, sem nú koma út,
eru 27. og 28. í röðinni, svo að
þetta er orðið bærilegt safn. En
ég er eiginlega ekki með neitt í
smíðum núna — ég ætla að sjá
til með þessi áður. Það er Hljóð-
færaverzlun Sigríðar Helgadótt-
ur, sem gefur út plötuna, en sjálf
ur er ég útgefandi nótnanna. Slík
útgáfa er annars orðin býsna
strembin nú. Nótur seljast ekki
eins vel og til dæmis 1939, en
það er kannske eðlilegt — menn
hafa svo mikið af „niðursuð-
unni“, sem margir kalla svo, plöt
um, segulböndum og svo útvarp-
ið. En þó er kannske ekki ör-
grannt um, að eitthvað sé að
lifna yfir þessum viðskiptum
einnig. Það er illa farið, að menn
skuli ekki syngja við hljóðfærin,
eins og svo oft var gert í gamla
daga. Það lyftir sálinni — styrk-
ir ekki aðeins raddböndin, held-
ur Ijiftir einnig sálinni ...“.
Og Sigfús er varla horfinn á
brott, þegar tíðindamaðurinn,
sem er allra manna ómúsikalsk-
akstur, er ósjálfrátt búinn að
grafa Litlu fluguna upp úr
gleymskunni og farinn að raula
‘;‘hana. Það var gott, að Sigfús
varð þess ekki vaf/því ’að Tfa'rirf
vonar, að menn rauli frekar nýj-
ustu lögin hans á næstunni, ekki
aðeins lagið úr „79 af stöðinni“,
heldur ekki síður Litla fuglinn
hans og Arnar Arnarsonar.
IFIugvallagerð —
Framhald af bls. 6.
riðum og m.a. það að kanna skil-
yrði til flugs þangað, því staður-
inn liggur nokkuð nálægt fjöllum.
Vill flugmálastjórnin gjarna fá
reynslu af litlum velli á þessum
stað áður en lagt verður í stór-
framkvæmdir.
Eins og kunnugt er, er núver-
andi flugvöllur Hornfirðinga á
Melatanga, en þangað verður helzt
ekki komizt nema á bát. Hins veg-
ar eru stundum miklir örðugleik-
ar á að komast yfir ósinn í ísreki
og vondum veðrum á vetrum og
þess vegna þykir nauðsyn bera til
að færa flugvölinn norður fyrir ós-
inn.
í Vestmannaeyjum var í sumar
byrjað á miklu stórvirki í flug-
vallargerð, en það er þverbraut á
flugbrautina, sem fyrir var og á
þessi nýja braut að verða 1300
metra löng. Þetta er mikið sam-
gönguhagsmunamál fyrir þá Vest-
mannaeyinga, því oft og einatt
lokast völlurinn þar dögum og
vikum saman ef vindur stendur
flatt á brautina og þarf þó ekki
að vera hvassviðri til.
Sem stendur er unnið að spreng
ingum á vallarstæðinu, en það fer
eftir fjárveitingum hverju sinni
hve verkinu miðar ört áfram. Ár-
ið 1959 var kostnaðaráætlun gerð
um framkvæmd þessarar þver-
brautar og áætlað að kostnaður-
inn yrði 17 milljónir króna.
Á Kópaskeri er unnið að því að
ýta upp braut, einkum vegna vetr-
arflugsamgangna. Á Kópaskers-
vellinum eru þrjár sjálfgerðar
brautir á Mel, en þær lokast oft
af völdum vatnságangs og ísalaga
á vetrum og þess vegna nauðsyn-
legt talið að hækka eina þeirra
upp. Hún getur orðið um 1800
metra löng.
Auk þessa, sem að framan er
greint, hefur verið unnið að við-
haldi flugbrauta og flugvalla víðs
vegaií um- land í sumar. Tveir bíl-
'íff hafa’ verið Stöðugt í ferðum frá
flugmálastjórninni í sumar til við-
halds flugvallanna, að endurnýja
merki og flugbrautir, merkja fyr-
ir nýjum sjúkravöllum og þar fram
eftir götunum.
Notaðir bílar
Notaðir bílar verða til sýnis og sölu í bif-
reiðadeild Landssímans við Sölvhólsgötu á
morgun og föstudag. Tilboð verða opnuð á
skrifstofu vorri kl. 10 f. h. laugardaginn 27.
þessa mánaðar.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Tilkynning
frá Hítaveitu Steykjavíkur
Að gefnu tilefni vill Hitaveitan vekja athygli
allra þeirra, er fást við teikningar og lágnir
hitakerfa svo og þeirra, sem annast sölu,
hvers konar hitunartækja og áhalda til hita-
lagna, á reglugerð um hitalagnir o. fl. í
Reykjavík dags. 15/12 1961.
Eintök af reglugerðinni fást afhent í skrif-
stofu Hitaveitunnar í Drápuhlíð 14.
HITAVEITA REYKJAVÍKUR.
Starfs-
menn
Menn vanir rafsuðu og logsuðu óskast nú
þegar.
Vélsmiðja Eysteins Leifssonar,
Laugavegi 171, sími 18662.
JÁRNSMIÐUR
Viljum ráða nú þegar járnsmið helzt vanan
rennismíði. Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Kassagerð Reykjavíkur h.f.
Verkamenn
Okkur vantar nokkra góða verkamenn nú
þegar. Byggingariðjan, sími 35064.
Skrifstofuhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu 2—3 herbergi
fyrir skrifstofu, helzt í miðbænum. Uppl. í
síma 36786.
Iðnaðarhúsnæði
óskast sem fyrst. Þarf að vera um 100 ferm.
Uppl. í síma 17891.
Laugavegi 146
SÍMI OKKAR ER 1-1025
Við hörum ávallt á boðstólum fjölbreytt úrval af 4ra, 5 og 6 manna
bifreiðum, auk þess fjölda sendi-, station- og vörubifreiða.
Við bendum yður sérstaklega á:
Morris Minor 1949, kr. 25 þús. Dodge Weapon '53, 80 þús., útb. 20 þús.
Ford 500 1957, einkabíll, mjög glæsilegur, skipti á 5 m. V-Evr.bfl mögul.
Cþevrolet-station 1955, mjög góður bfll, kr. 65 þús. staðgr. eða útb. 40
þús. og eftirstöðvar greiðist með fasteignatryggðu veðskuldabréfi.
Opel Kapitan flestar árgerðir frá 1955—1962.
Volkswagen, Opel, Taunus, Moskwitch og Skoda bifreiðir af öllum árg.
Við leggjum áherzlu á lipra og örugga þjónustu. — Kynnið yður hvort
RÖST hefir ekki rétta bílinn handa yður.
Vatnsgeymir 1-
um Brúarland.
Vatnsgeymir
-2000 litra óskast til kaups, sem fyrst. Uppl.
Saumastúlka óskast
Saumastúlka óskast i fatabreytingar og viðgerðir hálfan eða all-
an daginn eftir samkomulagi. Uppl. í síma 17690 kl. 6—8 í kvöld.
Sóthreinsun — Jámsmíði
Tökum að okkur sóthreinsun á heimahúskötlum, uppmúringar,
einangranir á kötlum og hitavatnskútum. Enn fremur alla al-
genga járnsmíði. Katlar og stálverk h.f. Vesturg. 48. Sími 24213.
Stofa óskast
Skilvís og prúður maður óskar eftir að leigja stofu, ekki minni
en 12 ferm. Tilboð óskast sent afgreiðslu blaðsins fyrir laugar-
dag merkt „Prúðmennska".