Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 17

Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 17
TOLVUMAL sviði, geta fjarskipin aldrei verið talin frjáls - nema í orði. Skipulag fjarskiptamála hefur engu að síður breyst mikið á síð- astliðnum árum, en það er að mínu mati forsenda þess að hér fái þrifist heilbrigð samkeppni í framtíðinni. Vil ég sérstaklega nefna tilurð Póst- og fjarskipta- stofnunar sem hefur mikilvægu hlutverki að gegna, en þar er kom- inn hlutlaus aðili sem tryggja á öllum jafnan aðgang að fjarskipta- kerfi þjóðarinnar. Gallinn er hins vegar sá, að æðsti yfirmaður hennar, þ.e. ráðherra fjarskipta- mála er einnig æðsti yfirmaður Landsímans hf. Hér er um að ræða slíkan hagsmunaárekstur að hlutleysi stofnunarinnar verður aldrei tyggt til fulls. Sem dæmi um pólitíska spillta ákvörðun sem ráðherra hefur tek- ið nýlega og síðan falið Póst- og fjarskiptastofnun að framkvæma, nefni ég ákvörðun ráðherra að semja við þrjú fyrirtæki varðandi þróun, framkvæmd og rekstur á Sjálfvirka tilkynningaskyldukerf- inu STK. Ekki var haft fyrir því að leita tilboða eins og alþjóðlegir samningar kveða á um í tilfellum sem þessum. Nei, hér var gamla íslenska aðferðin notuð - maður þekkir mann. Eg veit til þess að menn sitja nánast agndofa og vita vart hvort þeir eigi að gráta eða hlæja að þessu öllu saman. Þegar framhaldssögunni um flokksbróð- ur fjarskiptaráðherra fer að linna og menn hætta að hugsa um ríkis- banka og laxveiðiár, þá hef ég trú á að menn fari að gefa þessu máli frekari gaum. Það var eitt lítið atvik þessu máli tengt, sem minnti mig á að ala ekki með mér of miklar vonir um að mál væru að færast til betri vegar. Eftir að tilkynnt var um samning ráðherra varðandi Sjálf- virku tilkynningaskylduna, þá hafði ég samband við Póst- og fjarskiptastofnun til þess að fá upplýsingar um það hver ætti að sjá um sölu, uppsetningu og við- hald búnaðar um borð í skipun- urn. Fulltrúi stofnunarinnar sagð- ist ekki vera viss um það, en benti mér á að hafa samband við ráðu- neytið. Þegar ég hringdi í ráðu- neytið, þá sagði ég við símadöm- una að ég vildi fá samband við þann sem hefði með samning um Sj álfvirka tilkynningaskyl dukerf- ið að gera. Mér var gefið samband við elskulegan mann, en sá sagð- ist því miður ekki geta svarað því, en sagði þá þessa fleygu setningu: „...geturðu ekki bara hringt í Landsímann?“ Það er fallegt að vona. Kristján Gíslason er fram- kvæmdastjóri Radiomiðunar ehf. MAÍ 1998 -17

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.