Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 22

Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 22
Þriðja kynslcxSin á sýni eða að sama skapi betri gæða fyrir sama bitaflæði. Hann vinnur á bilinu 32 kb/s -128 kb/s. Myndkóðarar: Um þjöppun á vídeómyndefni með MPEG4 hef ég fjallað lítilsháttar að ofan og þá vísað til myndar 6. Auk MPEG4 sést bandbreiddarþörf MPEG1, hannað fyrir geisladiska, og MPEG2, sem er m.a. þjöppunarformið fyrir stafræna sjónvarpið DVB. Báðir þessir eldri þjöppunarstaðlar gera ráð fyrir taktbundnum stöðugum flutningsmiðli eru því óhentugir. Það er hins vegar ekkert til fyrirstöðu að senda sjónvarpsefni með MPEG4 á DVB sem hefur um 30 Mb/s flutningsgetur, og hvað myndflutning með sömu gæðum snertir má gróflega sjá á mynd 6 að ávinningur- inn nemur um einni stærðargráðu í fjölda myndefnis sem unnt er að senda í senn. Þegar kemur að flutningi á margmiðl- unarefni á pakkanetum snýst málið að auki um það sem felst í nýjum staðlabálki frá ITU-T sem auðkenndur er H. 323. Á honum byggist myndflutningur á alnetinu í dag. Umfram það þarf í 3G að leiðrétta neikvæð áhrif þráðlausa fjölvegsmiðilsins (time variable fading channel). Fyrir myndupplausn sem nemur 176x144 myndpunktum, sem er nægjanleg fyrir þá skjástærð sem 3G-tækin munu hafa, er staðan í dag sú að ná má settu marki með 9,6 - 30 kb/s lágmarki háð efni. Þetta næst með samtvinnaðri lindar-, rásar- og við- takskóðun. Er 3. kynslóðin úrelt þegar hún fæðist? Þrátt fyrir alla framförina í 3G finnst sum- um ekki nógu langt gengið þegar lagt er upp. Á miðju s.l. ári tóku ein 8 málsmet- andi iðnaðarfyrirtæki á sviðinu sig til og stofnuðu 3G.IP vinnuhóp, í líkingu við 3GPP, sem setti sér það markmið að skil- greina „hreint“ IP farkerfi á 3G staðlinum. Þeir hafa lagt fyrstu tillögur sínar fyrir ITU sem leiddi af sér að grunnurinn að slíku kerfi verður lagður í 3GPP R00 (þ.e. staðlaplaggi 3G sem kemur í lok þessa árs) og miðað er við að verði á 2004. (mynd 7). Við samruna síma- og netþjón- ustunnar er vaxandi hneigð hjá iðnaðinum til að keyra „allt yfír IP“ eða „x-IP“ eins og það er nefnt. Af slíku er farið að heyr- ast mest um netsímann eða VoN (voice over network), en þar er talsíminn sendur á pakkaformi yfir „netið“. Þetta er þegar ágæt lausn á staðarneti eins og Ethernet. Gagnrýnisraddirnar segja um R99, að úr því að verið sé að hanna UMTS eða 3G sem margmiðlunarnet frá grunni, fyrir tal, tóna og mynd á pakkaformi, því er þá ver- ið að flækja málið með talsamböndum eft- ir öðrum leiðum en með netsíma? Rása- skipting símatækninnar sem 3G erfir verði hennar fortíðarvandi strax í fæðingu. Því er til að svara að í fyrsta Iagi verður Hlutfallsl.myndgæði / 6 - 1 - 1/4 _ 1/6- 64 k 1.5 M Með MPEG4 og samtvinnaðri lindar-, rásar- og viðtakskóðun er unt að ná við- unandi gæðum á 3G-skjá (176x144 pkt.) með allt niður í 10-30 kb/s Nauðsynl.meðal- bandbreidd —i----------b/s 3 M Mynd 6: Um þjöppun stafrænna sjónvarpsmynda 22 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.