Vísir - 27.06.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 27.06.1964, Blaðsíða 3
3 VÍSIR . Laugardagur 27. júni u»64. Krakkarnir fengu ekki aðgang að félagsheimilinu. En áhuginn var svo mikill, að þau klifruðu upp á skúra og gægðust inn. BBfynWJi .raTínggaiT b*tt m ■—■<—IW—WJHW—§ Bítilæðið er sannarlega komið til íslands. Bítilhljómsveitin Hljómar frá Keflavík er um þess- ar mundir á hringferð um Vest- urland og Norðurland, og er uppi fótur og fit á hverjum stað sem þeir koma við á. Æskulýð- urinn flykkist í kringum þá til að njóta bítiltónlistarinnar, til þess að dansa og syngja með. Eldra fólkið kemur líka á staðinn til þess að horfa og hlusta á þessi ósköp, síðan e.t.v. til að hneykslast á hamagangi og háv- aða unglinganna nú til dags. — Ja, það má nú segja, að heimur versnandi fer, segja sumir hinir eldri og furða sig á þvf, hvað ein danshljómsveit getur búið til mikinn hávaða. Myndsjáin var viðstödd fyrir nokkru, þegar bítilhljómsveitln kom á fyrsta viðkomustaðinn, Ólafsvík. Þar varð uppi fótur og fit og allir sem vettlingi gátu vaidið fóru niður I Félagsheimilið til að hlusta á bitlana. Þetta var á björtu, stilltu sumarkvöldi Hér sjást hinir keflvísku bítlar á sviðinu i Ólafsvík. Það er furðulegt hve mikinn hávaða þessir ungu menn geta framleitt. Talið frá vinstri: Eggert Kristjánsson, sem Ieikur á trommu, hefur ekki fengizt til að gerast fullkominn bitill hvað hárvexti viðvikur, þá Guðmundur Rúnar JúIIusson, sem margir álita mesta bítillinn af lifi og sál, þá Erlingur Bjömsson og Gunnar Þórðarson. Ketlvisku bitlarnir terðast um landið í eigin bíl, sem er kirfi- lega merktur. BlTILÆÐI ÚT UM LAND og hin háværa dansmúsík og söngur hljómaði út frá samkomu húsinu í kvöldblænum. Nokkuð var það athyglisvert, að áfengi sá ekki á dansgestum, nema ein- um eða tvelmur. Það kvað ekki vera móðins meðal bítla að drekka sig fulla. Lögregluþjónninn i Ólafsvík átti hins vegar við annað vanda- mál að striða. Það var aðsókn barna á fermingaraldri að Séð yfir salinn. Fólkið unir sér vel við hina sérkennilegu bítil-músik. Flestir kunna að tvista, hafa lært það af áhuga eftir danskennslu útvarpsins. skemmtistaðnum, en á dansstað mega ekki vera börn undir 14 ára aldrl. En þegar bítlarnir voru komnir í heimsókn langaði 12 og 13 ára krakkana líka til að vera með og sjá þetta furðuverk. Lögreglumaðurinn rak þau út, en þá gripu þau til þess ráðs að klifra upp á skúr og gægjast inn um glugga til þess að fylgjast með furðuverkinu. Þannig var dansað inn í sumar- nóttina sem er björt og stillt um Jónsmessuleytið í ólafsvfk. Og svo er Ioks að segja af bítilhljómsveitinni, hún heldur á- fram för sinni til Patreksfjarðar, Bolungarvikur og lsafjarðar, síð- an verður stefnt austur á bóginn til Búðardals, Blönduóss í Húna- ver og loks endað á Siglufirði. Þar má búast við að hátið bítl- anna nái hámarki á áhrifasvæði sildarstúlknanna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.