Vísir - 24.07.1964, Blaðsíða 11
tflSIR . Föstud^gur 24. júlí\1964.
. a&Bm&iigmffiSBBaissz^ssszaiSBiMeSíL ~~
17 strákar fóru með Sæbjörgu
Um tvöleytið í fyrradag
mættu 17 strákar á aldrinuri
13-17 ára um borð í skólaskipið
Sæbjörgu, sem skömmu síðar
hélt á veiðar á vegum sjóvinnu
námskeiðs Æskulýðsráðs
Reykjavíkur, Ferðin mun taka
um 3 vikur, en fyrst verður
haldið á miðin vestur á Breiða-
fjörð.
Ætíð er mikil eftirspum eftir
plássi á skólaskipinu og
skömmu eftir að Æskulýðsráð
auglýsti ferð á Sæbjörgu fyllt
ist listinn, en flest allir dreng-
irnir, sem fóru út 'með Sæ-
björgu í fyrradag, hafa tckið
þátt í sjóvinnu námskeiði á veg
um ráðsins.
Arnað heilla I
Laugardaginn 18. júlí voru geiin
saman f hjónaband af séra Þor-
steini Björnssyni, ungfrú Kirsten
Friðriksdóttir og Ingólfur Hjart-
arson. Heimili þeirra verður að
Hamrahlíð 13. (Ljósm.stofa Þóris
Laugavegi 20B).
Fyrst verður veitt á handfæri
en síðan verður drengjunum
kennt að leggja lúðulóð. Skip-
herra á Sæbjörgu er Helgi Hall
varðsson, stýrimaður Hörður
Þorsteinsson, en hann hefur ver
ið aðalleiðbeinandi drengjanna
á sjóvinnunámskeiðunum.
^ sjóður
Á 83 ára afmæli síra Rögnvalds
Péturssonar D.D. og dr. phil. stofn
uðu frú Hólmfríður Pétursson,
ekkja hans, og dóttir þeirra, ung-
frú Margrét Pétursson B.A., sjóð
til minningar um hann.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
kandídata í íslenzkum fræðum frá
Háskóla íslands til framhaldsnárns
og undirbúnings frekari vísinda-
starfa. Ætlunin er að veita nú í
ár í fyrsta sinn styrk úr sjóði þess-
um.
Umsóknarfrestur um styrk úr
sjóðnum er til 10. ágúst n.k. Skal
senda umsóknir á skrifstofu Há-
skóla íslands, sem veitir frekari
upplýsingar um styrk þennan.
Minni n garsp j öld
Minningarspjöld Sjálfsbjargar
fást á eftirtöldum stöðum: 1
Reykjavík: Vesturbæjar apótek
Melhaga 22, Reykjavíkur apótek
Austurstræti, Holts apótek Lang
holtsvegi, Garðs apótek Hólm-
garði 32. Bókabús Stefáns Stefáns
sonar Laugavegi 8, Bókaverzlun
Isafoldar Austurstræti, Bókabúð
in Laugarnesvegi 52 Verzlunin
Roði laugavegi 74
Minningarspjöld Kvenfélags Nes-
kirkju fást á eftirtöldum stöðum:
Verz!, Hjartar Nilsen, Templara-
sundi. Verzl. Steinnes Seltjarn-
amesi, Búðin mín, Víðime) 35 og
hjá frú Sigríði Árnadóttur, Tóm-
asarhaga 12.
Spáin gildir fyrir laugardag-
inn 25. júlí.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú ættir að halda þig inn-
an þinna landamerkja, því að
slíkt mundi forða þér frá því
að lenda í ýmiss konar deilum.
Reyndu að draga úr fjárútlán-
unum.
Nautið, 21. apríl til 21. maf:
Þar eð þú verður að halda því
trausti, sem þú hefur áunnið
þér hjá félögum þínum, ættirðu
að forðast að láta undan þeirri
tilhneigingu að grobba.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þar eð enginn getur
vænzt þess að fá hlutina ó-
keypis, þá ættirðu að gæta þin
á ókunnugum, sem gætu verið
að reyna að selja þér hluti,
sem þú hefur engin not fyrir.
Krabbinn, 22. júní til 23.
júlí: Þú ættir ekki að taka þátt
í aðgerðum, sem eru of erfiðar
likamshreysti þinni eða pyngju.
Það er þitt að ákveða, hvað þú
aðhefst.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Það ætti að taka tillit til hags-
muna allra fjölskyldumeðlim-
anna, áður en nokkur mikilvæg
ákvörðun hefur verið tekin.
Sérstaklega ef peningarnir eru
þessu viðkomandi.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept:
Hafðu auga með fatnaði þínum
til að forða skemmdum á hon-
um, sérstaklega fyrir tilverknað
skordýra. Þú hefur tilhneigingu
til áhyggna án raunverulegra
ástæðna.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Þér mun reynast nokkuð erfitt
að standast þá freistingu að
festa kaup á hlutum, sem þér
lízt vel á, án þess að þú hafir
raunverulega not af þeim.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þú ættir ekki að reyna að
blekkja sjálfan þig með þvi að
álíta, að þú sért á framfara-
braut. Hið gagnstæða gæti auð
veldlega verið ’ tilfellið. Vinir
þínir gætu frætt þig um ýmis-
legt.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú hefur tilhneigingu til
að pexa yfir hlutum, sem ekki
gengu alveg að þínu skapi. Það
virðist betra að leggja málið
á hilluna í bili, þangað til i
ágúst.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Kröfur einhverra vina
þinna eða kunningja gætu farið
í skapið á þér, sérstaklega ef
fjármunir eru með í spilinu.
Leggðu drög að framtíðará-
formunum.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Markmið þín kynnu að
vera miður vel valin, sérstak-
lega með hliðsjón af þörfum
náinna félaga þinna eða maka.
Einhverjar efasemdir leita á þig.
.i.rhwT,r,nqiÍ3aa3pt
FRÆGT FÓLX
Ef Barry Goldwater tekst
að komast í forsetaembættið
við næstu kosningar, verður
það ekki í fyrsta skipti sem
hann sest í forsetastólinn.
Eitt sinn þegar hann kom í
heimsókn til Kennedys, þegar
Svinaflóahneykslið stóð sem
hæst, þurfti hann að bíða eft
ir forsetanum. Þegar svo
„The Little Fox Theatre"
mun á næstunni sýna þögla
mynd, og það eina sem heyrist
verður dynjandi píanóleikur.
Meiningin er að upplifa á nýj-
an leik, gamla andrúmsloftið
og myndirnar verða gömul
meistaraverk með þeim Bust-
er Keaton og Charlie Chaplin.
Og það verður jafnvel til gam
ans, teknar upp gömlu lil-
kynningarnar sem svo oft
hljómuðu um salinn: —
Oss þykir þetta leitt, en
sýningarstjórinn er full-
ur. Það einasta sem verð-
ur einhver nýtízku blær á, er
verðið, sem verður 1-2 dollar-
ar, í stað 10—25 centa, eins
og áður var.
Barry Goldwater
Kennedy kom inn í skrifstof-
una sat Barry í stólnum hans.
— Aha sagði Kennedy glott-
andi, þú vildir auðvitað gjarn
an hafa mitt starf? — Nei,
það vlldi ég ekki svaraði
Barry, hvað sem í boði væri.
Þvf miður virðist hann nú
hafa skipt um skoðun.
*
Þegar de Gaulle er heima
í sínum elskaða heimabæ,
Colombey-les-Deux Eglises,
fer hann mjög oft í kirkju (þá
Xr
Tgarage
0
Copyright P. B. Bo» 6 Copenhogen
De Gaulle
einu á staðnum). Og hann trú
ir vlnum sínum fyrir þvf að
hann fari aldrei erindisleysu.
— Þó að predikanirnar
séu ekki alltaf fyrsta flokks,
þá nýt ég þess alltaf jafnmik
ið að lesa latnesku áletrunina
yfir dyrunum. En sú áletrun
er á þessa leið: Ég er ekki
villuráfandi. Ég þokast nær
markinu eftir réttum Ieið-
um. — (Lausl. þýtt).
ídi____