Vísir - 02.07.1968, Page 8
3
V1SIR . Þriðjudagur 2. júlí 1968.
VISIR
Utgeíandi: Reykjaprent hf. (
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson /
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson \
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson /
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson \
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimgr H. Jóhannesson (I
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson /
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099 J
Afgrei^sla : Hverfisgötu 55. Slmi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) i
Askriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7.00 eintakið (
Prentsmiðja Vfsis - Edda hf.
Ný atvinnugrein
Rétt innan við 40 þúsund ferðamenn komu til íslands /
í fyrra. Líklega verður talan enn hærri á þessu ári, ))
enda hefur það ekki brugðizt undanfarna áratugi, að ))
straumur ferðamanna hingað hefur vaxið hröðum )j
skrefum ár frá ári. Ferðamannaþjónusta er þannig að l
verða sérstök atvinnugrein á íslandi. (
Því miður eru ekki til tölur um hlutdeild þessarar (
greinar í gjaldeyrisöfluninni. Af hagskýrslum má þó (i
í áða, að þessar tekjur séu tæplega 400 milljónir króna /
á ári. Jafngildir það 5—6% af gjaldeyrisöfluninni. Er )
ekki fráleitt að meta ferðamannaþjónustuna í gjald- )
eyrisöflun til jafns við saltfiskframleiðslu þjóðarinn- )
ar. Og það er alls ekki svo lítið. ('
Eins og gefur að skilja er fólk seint að átta sig á )
gildi nýrrar atvinnugreinar sem þessarar. Margir líta (
enn á ferðamannaþjónustu sem hálfgerðan kjánaskap. (/
Af opinberri hálfu hefur þó á síðustu árum ýmislegt //
þarft verið gert til að efla þessa atvinnugrein. Ferða- ))
málaráð hefur starfað með sóma í nokkur ár, og )i
stofnaður hefur verið sjóður til að lána til byggingar \\
og útbúnaðar gistihúsa og veitingahúsa. Vegna þessa l1
framtaks er smám saman að síast inn hjá okkur skiln- (
ingur á gildi og möguleikum ferðamannaþjónustunn- /
ar. )
ísland hefur vissulega litla möguleika á að laða að /
almenna ferðamenn, sem ekki vilja annað en sólbak- )
aðar baðstrendur. En ferðamannastraumurinn í heim- \
inum er svo mikill, að íslendingar mundu aldrei geta (
annað móttöku allra þeirra, sem gætu fengið áhuga á í
þeim sérkennum, sem ísland hefur upp á að bjóða. /
Undanfarin veltiár hafa menn haft nógu að sinna í (
hefðbundnu starfsgreinunum og þess vegna ekki haft /
ýkjamikinn áhuga á eflingu nýrra atvinnuvega. Fram- /
sýnir menn hafa þó bent á, að innan tíðar muni verða )
vandamál að útvega vinnu handa öllum þeim, sem \
komast á fullorðinsár á næstu árum. Þessi forsjálni )
liggur að baki stóriðjustefnunni, sem ríkisstjómin (
hefur fylgt. Hið sama gildir um ferðamannaþjónust- /
una. . /
Ferðamannaþjónustan er ein hinna nýju atvinnu- /i
greina, sem þjóðinni er nauðsyn að efla til að tryggja /
efnahagslega framtíð sína. Því fleiri atvinnugreinar, )
því fleiri möguleikar, því meira öryggi fyrir sveiflum )
og óáran. Það er staðreynd, að ferðamannaþjónustan (
er ein þeirra greina, þar sem hinir ónotuðu möguleik- \
amir em mestir. Við ættúm því að gefa ferðamálun- /
um miklu meiri gaum en við gerum. /
Hinn mikli sigur Kristjáns
Eldjárns kom á óvart
Hann hlaut 65°Jo greiddra atkvæða,
en dr. Gunnar Thoroddsen 34.1°Jo
Óhætt er aO fullyrða að
hinn mlkli sigur dr. Krist-
jáns Eldjáms hafi komiO
mönnum mjög á óvart. Aö dr.
Kristján myndi sigra með jafn-
miklum mun og reyndin varð,
datt fáum eða engum f hug,
þó að menn hölluðust
frekar að sigri hans, þrátt fyrir
allmikla sókn stuðningsmanna
dr. Gunnars Thoroddsens sfð-
ustu dagana.
Kjörsókn I landinu var mjög
mikil, eða 91,4% þeirra sem á
kjörskrá voru greiddu atkvæöi,
eins og fram kemur í töflu hér
að neðan. Almennt hafði verið
reiknað með því á sunnudag-
inn, að mikil kjörsókn myndi
auka sigurmðguleika dr. Gunn-
ars, en reyndin var önnur. At-
hygli vekur, hve jafnt fylgi dr.
Kristján hefur, þó að hann hafi
áberandi mest fylgi í Austur-
landskjördæmi og í Norðuriands
kjördæmi eystra. 1 öðrum kjör-
dæmum er fylgi hans mjög
jafnt, eða alls staðar yfir 60%,
minnst þó í Reykjavík, þar sem
hann hlaut 61% atkvæða. Á
þessum tölum sést, að það sem
haft var eftir forstöðumanni
stuðningsmannaskrifstofu dr.
Kristjáns hér í Reykjavík, í blað
inu á laugardaginn, reyndust
ekki neinar ýkjur, þvert á móti
sýna tölur annað.
Fróðlegt er að bera úrslitin
saman við spár „spekinga"
þeirra, sem komu fram í ríkis-
útvarpinu á kosninganóttina, og
er augljðst, að spá Þorsteins
Thorarensens, rithöfundar, hef-
ur verið byggð á mikilli glögg-
skyggni hans, þó að hann gerði
reyndar ekki ráð fyrir jafn
miklum sigri dr. Kristjáns og
raun varð á, en hver gerði það?
KOSNINGA URSLITIN
Allt landið
Á kjörskrá: 113719. Atkvæði greiddu: 103909 eða 91,4%.
Atkvæði féllu þannig:
Dr. Kristján Eldjám: 67564 atkv. eða 65,0% greiddra gildra atkv.
i
Dr. Gunnar Thoroddsen: 35438 atkv. eða 34,1% greiddra gildra atkv.
Reykjavík N-land eystra
Á kjörskrá: 48469.
Atkv. greiddu: 43834 eöa 90,4%.
Ú r s 1 i t:
Dr. Kristján Eldjárn: 26460
atkv. eða 61% greiddra atkv.
Dr. Gunnar Thoroddsen: 16900
atkv. eða 39% greiddra atkv.
Á kjörskrá voru 12160
Atkv. greiddu 11299 eða 92,9%
Ú r s 1 i t:
Dr. Kristján Eldjám 8528 atkv.
eða 76% greiddra atkvæða
Dr. Gunnar Thoroddsen 2398
atkv. eða 34% gr. atkvæða.
Austurland
Á kjörskrá vora 6288
Atkv. greiddu 5782 eða 92%
Úrs lit:
Dr. Kristján Eldjárn 4655 átkv.
eða 80,9%
Dr. Gunnar Thoroddsen 1099
atkv. eða 19,1%.
Suðurland
Á kjörskrá vora 9787
Atkv. greiddu 9058 eða 92,5%
Úr slit:
Dr. Kristján Eldjám 5820 atkv.
eða 64,8%
Dr. Gunnar Thoroddsen 3161
atkv. eða 35,2% gr. atkvæða.
Reykjanes
TALNING AT-
KVÆÐA GEKK
YFIRLEITT VEL
— Viðast gott skipulag yfirkjörstjórna
Á kjörskrá: 18462.
Atkv. greiddu 16919 eða 91,6%.
Úrslit:
Dr. Kristján Eldjárn: 10876
atkv. eða 64,8%.
Dr. Gunnar Thoroddsen: 5908
atkv. eða 35,2%.
Vesturland
Á kjörskrá: 7177.
Atkv. greiddu 6668 eða 92,9%.
Úrslit:
dr. Kristján Eldjám 4455 atkv.
eða 67,3 %.
dr. Gunnar Thoroddsen 2168
atkv. eða 32,7%.
Vestfirðir
Á kjörskrá voru 5622.
Atkv. greiddu 5118 eða 91,0%.
Úrslit:
Dr. Kristján Eldjám: 3284 atkv.
eða 64,6%.
Dr. Gunnar Thoroddsen: 1796
atkv. eða 35,4%.
N-land vestra
Á kjörskrá voru 5754.
Aíkv. greiddu 5231 eöa 89,2%.
Úr s I < t:
Dr. Kristján Eldjám: 3486 atkv.
eða 66,7%. greiddra atkv.
Dr. Gunnar Thoroddsen: 1709
atkv. eða 32,7% greiddra atkv.
Talning atkvæða við forseta-
kosningarnar gekk yfirleitt vel
og skjótt fyrir sig, enda höfðu
flestar eða allar yfirkjörstjórnir
gert ráðstafanir tii, að kjörkass-
ar og önnur gögn kæmust sem
fyrst til þess staðar, sem talið
var á.
Fyrstu tölur i kosningunum
voru kunngerðar kl. 23:15 og
voru þær úr Reykjavík. Þar
hófst flókkun atkvæöa þegar kl.
18 á sunnudág, og talningu var
lokið þar fvrir kl. 3 á mánudags
morgun. Fyrstu tölur úr næsta
kjördæmi, Reykjaneskjördæmi
birtust eftir kl. í um nóttina,
en talning í því kjördæmi hófst
milli kl. 12 og 1 í Hafnarfirði.
Talningu þar lauk um nóttina.
Næsta kjördæmi, sem tölur
fóru að berast úr, var Suður-
landskjördæmi, en talning þar
hófst milli kl. 5 og 6 á mánu-
dagsmorgun. Gekk talningin þar
vel fyrir sig, og síðan fóru töl-
ur að berast úr hverju kjördæm-
inu á fætur öðru, Vestfjarða-
kjördæmi, Norðurlandskjör-
dæmi-vestra og Vesturlandskjör
dæmi, og reyndar líka Austur-
landskjördæmi. Síðast kjördæm
anna t!! að hefja talningu var
Norðurlandskjördæmi eystra, en
smávegis misskilningur milli
yfirkjörstjórnarinnar í kjördæm
inu, og kjörstjórnarinnar á Flat-
ey kostaði margra klukkutíma
seinkun á því að talning gæti
hafizt. Síðustu úrslit, sem bár-
ust úr kjördæmum voru úr Aust
urlandskjördæmi og Norður-
landskjördæmi eystra, og voru
úrslit úr þeim kjördæmum kunn
um kl. 4:15 um eftirmiðdaginn
í gær, rúmlega 17 klukkustund
um eftir að kjörstöðum hafði
viðast verið lokað.