Dagur - 01.12.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 01.12.1999, Blaðsíða 9
8- MIDVIKUDAGUR 1. DKSEMBER 1999 X^wr Tfc^íir MIDVIKUDAGU R 1. DESEMBER 19 9 9 - 9 FRÉTTA SKÝRING FRÉTTIR HoltsdeUan í hörðum hnút Biskup íhugar að flytja sr. Guunar Bjömssou í Holti til í starfi tímabundið. Óvænt innlegg í þá umræðu hefur komið frá sr. Torfa Hjaltalín Stefánssyni á Möðm- vöUum, sem einnig á í deflum við sín sóknar- böm, að þeir Gunnar hafi skipti á sóknum. Sr. Torfi er frá Val- þjófsdal í Önundar- firði. Urskurðarnefnd þjóðkirkjunnar skilaði fyrir nokkru niðurstöðu í máli sóknarnefndar Holtssóknar í Onundarfirði auk nokkurra sókn- arbarna í Holtsprestakalli gegn sóknarprestinum, sr. Gunnari Björnssyni, vegna margvíslegra aetlaðra ávirðinga í starfi. Kirkju- ráð ákvað að áfrýja ekki úrskurð- inum til áfrýjunarnefndar skv. 13. gr. laga nr. 78/1997 en nefndin er undir forsæti Jónatans Þór- mundssonar prófessors. Það gerðu hins vegar bæði sóknar- nefnd Holtssóknar og sr. Gunnar Björnsson. Agreiningsatriðin eru verkaskipting milli sóknarprests og sóknarnefndar; greiðslur til sóknarprests frá sóknarnefnd íyr- ir tónlistarflutning við kirkjulegar athafnir og hlutverk maka sókn- arprests, Agústu Agústsdóttur, f kirkjulegu starfi. 1 úrskurðarorði úrskurðamefndar segir að ósann- að sé að presturinn hafi brotið trúnað við sóknarbörn sín og ekki sc um aga- eða siðferðishrot að ræða. Presturinn hafi ckki virt reglur eldri laga og þjóðkirkjulaga um verkaskiptingu milli sóknar- nefndar og sóknarprests. Prestur- inn telst hafa látið viðgangast að maki hans gengi svo langt í stuðningi við störf hans að telja megi til afskipta af starfi hans í prestakallinu. Nýlega fór svo safnaðarstjórn fram á það við prófastinn, sr. Ag- nesi Sigurðardóttur í Bolungar- vík, að sr. Gunnar Björnsson yrði leystur frá störfum yfir jólahátíð- ina. Biskup hefur harmað þá erf- iðleika sem cru í sóknum Holts- prestakalls og lítur ástand mála alvarlegum augum. Unnið sé að því að koma málum í viðunandi horf eins og nokkur kostur er og eins fljótt og unnt er, svo safnað- arstarf og helgihald geti orðið með eðlilegum hætti um aðventu og jól. I því sambandi hefur kom- ið til greina að flytja sr. Gunnar Björnsson til í starfi tímabundið. Óvænt innlegg í þá umræðu hef- ur komið frá sr. Torfa Hjaltalín Stefánssyni á Möðruvöllum, sem einnig á í deilum við sín sóknar- börn, að þeir Gunnar hafi skipti á sóknum. Sr. Torfi er frá Valþjófs- dal í Önundarfirði. I hréfi til biskups dags. 2. des- ember 1998, undirritað af for- mönnum allra sókna Holtspresta- kalls, þeim Arna Brynjólfssyni, Holtssókn; Guðmundi Steinari Björgmundssyni, Kirkjubólssókn og Gunnlaugi Finnssyni, Flateyr- arsókn, er óskað eftir því að presturinn hverfi ekki aftur til starfa að loknu Ieyfi á Selfossi. Sr. Gunnar Björnsson segir að afrit hafi verið sent af bréfinu til sr. Baldurs Vilhelmssonar f Vatns- firði, þáverandi prófasts Isafjarð- arprófastdæmis en hann hafi jafnan neitað því allt síðasta ár að hafa frétt nokkurn skapaðan hlut úr Holtsprestakalli! Fyrir fund sóknarpresta í Isa- fjarðarprófastdæmi í síðasta mán- uði um úrskurð úrskurðarnefnd- ar, sendi sr. Gunnar Björnsson, skýrslu mikla til prófastsins, sr. Agnesar Sigurðardóttur eins og hann segir til þess að ekki verði eingöngu byggt á æsifréttum íjöl- miðla og þeim úrdráttum sem blaðamenn vinna uppúr plöggum málshefjanda. Bréf’ sr. Gunnars er til athugunar hjá biskupsemb- ættinu og hvort það gefi tilefni til sérstakra aðgerða. I bréfinu segir síðan: „MEMORANDUM vegna þess sem ranglega er nefnd „deil- ur“ milli prests og nokkurra ein- staklinga í Holtsprestakalli. Al' hálfu prestsins er ekki um neinar deilur að ræða, heldur hefur hann fullan hug á góðu samstarfi við öll sóknarbörn sín. Þykir mér rétt að taka fram þegar í upphafi þessa máls að ég hef ekki átt í neinum deilum við elskuleg sókn- arbörn mín hér í Holtssókn. Varla hefur örlað á ágreiningi af nokkru tagi. Við hjónin erum heima að kalla 365 daga ársins, sómakært og gestrisið reglufólk, eins og öll- um er kunnugt er okkur þekkja." Fyrst sýður verulega upp úr í samskiptum prests og safnaðar á aðalsafnaðarfundi Holtssóknar 4. maí 1998 en sr. Gunnar segir að þar hafi Bjarni Kristinsson að Veðrará ráðist að þeim hjónum með heift og ósanngirni sem hafi komið honum í opna skjöldu. M.a. hafi honum verið kennt um að enginn kórsöngur væri í kirkj- um prestakallsins. 1 lok ræðunn- ar hvatti Bjarni prestinn til að segja prestakallinu lausu og fá sér aðra vinnu. Ályktanir fundarins voru svo sendar biskupi, undirrit- aðar af 21 manni sem sr. Gunnar telur 8% safnaðarbarna í presta- kallinu sem er röng tölfræði þar sem ekki er það sama sókn og prestakall, og því rétt hlutfall 55%, eða meirihluti sóknarbarna Holtssóknar. Afskiptaleysi prófasts „Nokkur undanfarin ár hef ég, þótt ekki hafi verið um neinar deilur að ræða, þráfaldlega borið mig upp við virðulegan og vel þenkjandi prófastinn, sr. Baldur Vilhelmsson f Vatnsfirði, og lýst áhyggjum af nokkru fálæti fólks í Holtssókn um kirkju, kirkjugarð og kirkjustarf, ennfremur ein- semd minni í starfi oft og tíðum, verkleysi sóknarnefndar og þeirri deyfð að enginn söngflokkur skuli nú starfa við kirkjuna. Ennfrem- ur kvartaði ég sáran við hann er sumt fólk tók að leita út fýrir prestakallið um þjónustu. Eg hygg að sr. Baldur muni hafa haft samband við sér kunnuga mcnn hér í sveitinni, en líklega ekki orðið mikið ágengt, að minnsta kosti ekki orðið var neinnar óá- nægju af þeirra hálfu. Gagnlegt hefði verið að prófastur hefði gef- ið skriflega umsögn og álit á þessu uppþoti. Sr. Baldur hefði þá væntanlega borið að sér væri ekki kunnugt um neina þó van- rækslu mína í starfi er réttlæti slíka aðför. Það hefði verið sterkt að þess konar vottorð lægi fyrir fró prófastinum. Ég veit ekki al- veg hvers vegna sr. Baldur kemur ekki auga á þennan flöt, eða hvers vegna hann vill ekki skipta sér al þessu eins og annar hvor biskupinn, Karl eða Sigurður, sögðu mér. I viðtölum við mig hefur sr. Baldur jafnan viljað eyða málinu og Iátið skýrt í ljósi að hann teldi engan vanda á ferð- um. Galdraofsóknir á hendur for- vera sr. Gunnars Þar sem sr. Gunnar fjallar m.a. um það að sóknarnefnd starli móti lögum þar sem hún eigi að vera sóknarpresti og starfsfólki sóknarinnar til stuðnings í hví- vetna, og vitnar þar til orða sr. Torfa í Möðruvallaklausturspresta- kalli segir hann m.a.: „Ótölulegur fjöldi embættismanna hefur raun- ar verið flæmdur héðan burtu á undanförnum árum, prestur, læknar, skólastjórar, kennarar o.fl. Sr. Jón Ólafsson prófastur sagði af sér embætti áður en aldur krafðist þess og sr. Lárus Guðmundsson var flæmdur héðan burt. Eiríkur Finnur Greipsson, hinn glaðbeitti og skemmtilegi sparisjóðsstjóri á Flateyri hefur látið þau orð falla að galdraofsóknir á hendur sr. Lárusi og frú Sigurveigu hafi kostað hann sína bestu vini.“ Sr. Gunnar segir að það hafi ver- ið fyrir hans tilstilli að Gunnlaug- ur Finnsson á Hvilft, kirkjuráðs- maður til margra ára, hafi verið kjörinn formaður sóknarncfndar eftir Steinar Guðmundsson, sem hafi verið honum kær. „Ég hafði gengist fyrir því að Gunnlaugur var enn einu sinni kjörinn á Kirkju- þing, þótt formgalli virtist um skeið ætla að koma í veg fyrir kjör hans. Þótt færra hafi verið með okkur Gunnlaugi en fyrirrennara hans, hefur samt samstarf okkar verið vandræðalaust að okkar dómi. Gunnlaug þarf ekki að kynna kirkjulegum yfirvöldum, svo langa hríð sem hann hefur setið á kirkjuþingi og í kirkjuráði. Gunn- laugur er ófermdur. Ymsum hefur þótt ekki viðfelldið að fela ófermd- um manni svo ríka ábyrgð á Þjóð- kirkju Islands." Sr. Gunnar segir að eftir heimkomu frá Bandaríkj- unum, eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 26. október 1995, hafi hann heimsótt Gunnlaug að Hvilft. „Var klukkustunda seta í stofu hjá Gunnlaugi með nokkrum ólíkindum, því að Gunnlaugur tal- aði nær stanslaust allan tímann, en minntist ekki einu orði á snjó- fióðið. Það sem ég man af ræðu hans er löng og ítarleg frásögn af smalamennsku eða fjárleitum hans í Önundarfirði fyrir löngu." Deilugjöm fjölskylda og geð- ræn vandamál Sr. Gunnar segir í skýrslunni til prófasts að hjónin að Kirkjubóli í Valþjófsdal, Guðmundur Steinar Björgmundsson og Sigríður Magn- úsdóttir, hafi leyst sóknarbönd og valið sér sr. Magnús Erlingsson á Isafirði sem kjörprest þótt Gunnar teldi það óþarfa ráðstöfun. Sr. Magnús hefur fermt börn úr Ön- undarfirði og telur sr. Gunnar að ekkert hefði orðið af fermingum utan sóknar ef sr. Magnús hefði neitað að verða við því. „Munu ýmsir kalla að þetta fólk sé ekki friðsamlegt. Sumir fullyrða að það hafi átt drjúgan þátt í að flýta því að Núpsskóli var lagður niður. Reiddust hjónin er sonur þeirra var rekinn úr skólanum. Þá telja margir að önfirskir bændur með Guðmund Steinar framarlega í fiokki hafi orðið til þess að Slátur- félagið Barði á Þingeyri fór á haus- inn. Mér virðist það einkum ein fjölskylda sem stendur upphafiega fyrir þeim róstum sem nú hafa Iát- ið á sér kræla. Það eru 3 börn míns góða meðhjálpara, Magnúsar Guð- mundssonar í Tröð (faðir Sigríðar á Kirkjubóli), og tengdabörn hans. Hefur Magnús sjálfur jafnan stundað starf sitt við kirkjuna óað- finnanlega og oftast nær drukkið messukaffi á heimili okkar ásamt konu sinni eftir embætti. Kona hans er af góðu fólki í Mývatns- sveit, en mun löngum hafa leiðst hér í fjallaþröng hins vestfirska skammdegis, og enda átt við geð- rænan vanda að stríða. Sjálfur hef- ur Magnús reyndar lagst á sjúkra- hús vegna þunglyndis." Miirnir á Amis-fólMð Undir lok greiriargerðar sinnar tal- ar sr. Gunnar Björnsson um að drumbsháttur sé lenska í sóknun- um, og þeim hafi aldrei verið boð- ið heim á bæ. „Stundum hefur mér þótt íbúarnir hér minna á Amis- fólkið í Bandaríkjunum. Þetta er harðduglegt bændafólk margt hvert (Arni Brynjólfsson á Vöðlum reyndar pasturslítill, óduglegur til vinnu og hálfheilsulaus). Við Agústa höfum ekki látið fara mikið fyrir okkur hér vestra, alls ekki abbast upp á neinn, en viljað vinna störf okkar í kyrrð og næði.“ I lok greinarinnar nefnir sr. Gunnar að hann hafi á prjónunum að stofna „grallarakór" er lærði að syngja klassíska messu. Loks nefn- ir hann hvort ekki sé orðið tíma- bært að huga að sameiningu sókna í Holtsprestakalli. „Klámnefndin" leggur meðal annars til að endurskoðuð verði reglugerð um löggæslu á skemmtunum og um slit á skemmtunum og öðrum samkvæmum. Þessir ungu herramenn munu t.d. eiga erfitt með að komast inn á þessa staði í bráð. Að vera eða að vera ekkí naktn Langsótt að sMlgreina list. Hægt að vera fá- klædd en þó ekki nak- in. Tillögur viðræðunefndar Reykja- víkurborgar og þriggja ráðuneyta um aðgerðir til að sporna við starf- semi svonefndra „erótískra veit- ingastaða" eru f meginatriðum í þrennu lagi, þar sem tekið er á at- vinnuréttindum útlendinga, flokk- un veitingahúsa og löggæslu á skemmtunum. Lögreglueftirlit auðveldað Nefndin Ieggur meðal annars til að endurskoðuð verði reglugerð nr. 587/1987 um löggæslu á skemmtunum og um slit á skemmtunum og öðrum sam- kvæmum, með það að markmiði að kveða nánar á um og auðvelda eftirlit lögreglu með starfsemi veit- ingastaða, þeirra á meðal ncktar- staða. Nefndin bendir einnig á að jafnframt mætti í reglugerð kveða á um gjaldtöku vegna eftirlits lög- reglu með veitingastöðum þar sem Ijárhæð gjalds miðaðist við það um hvaða flokk veitingahúsa væri að ræða. Breyting á þessari reglugerð kæmi í beinu framhaldi af breyt- ingu á lögum nr. 67/1985 um veit- inga- og gististaði, sem samgöngu- ráðherra hefur þegar kynnt. Þar er gert ráð fyrir nánari fiokkun veit- ingastaða, þar sem nektarstaðir væru sérstakur flokkur. Nefndin gerir tillögu um að sveitarfélögun- um verði veitt þau úrræði sem þau þarfnast til að kveða nánar á um staðsetningu nektarstaða, með hvaða sniði slík starfsemi skuli vera eða jafnvel banna slíka starf- semi alfarið. HugtaMð „listamaður“ Þegar hefur komið fram í fréttum sú ætlan Páls Péturssonar félags- málaráðherra að gera breytingar á lögum nr. 133/1994 um atvinnu- réttindi útlendinga en út á það gengur einmitt ein tillaga nefnar- innar. Lagt er til að breytingin verði gerð með það að markmiði að útlendingar, sem hingað koma í því skyni að dansa nektardans á skcmmtistöðum falli ekki undir hugtakið „listamaður“, og njóti þar með ekki undanþágu frá kröfu um atvinnuleyfi. I greinargerð nefndarinnar er bent á að í greinargerð með nú- gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga sé lagt til að hugtakið „listamaður" sé túlkað vítt. I Ijósi þess sem og hve „erfitt er að koma með svo endanlega upptalningu á starfsheitum listamanna, að ekki megi með einhverjum hætti kom- ast fram hjá þeirri upptalningu," telur nefndin það vænlegri kost að breyta lögunum um atvinnurétt- indi útlendinga en skilgreina nán- ar hverjir falli undir hugtakið „listamaður'. I neðanmálsgrein er síðan bent á að í þessu sambandi beri þó að líta til þess að erfitt er að skilgreina hugtakið nekt. „Má líta til þess að dansarar á þessum stöðum geta verið mjög fáklæddir án þess að vera í raun allsnaktir," segir þar. Kænm af öðnun hvötum Breyting á lögum um atvinnurétt- indi útlendinga tæki ekki til íbúa í Iöndum Evrópska efnahagssvæðis- ins. Nefndin vísar til upplýsinga frá lögreglunni í Reykjavík um að þær stúlkur sem nú starfa á um- ræddum stöðum séu flestar frá Eystrasaltsríkjunum og löndum frá Austur-Evrópu. Nefndin bend- ir á að slík lagabreyting kunni að hafa þau áhrif að það verði frekar stúlkur frá EES-löndum sem komi hingað til starfa á nektarstöðum, en stúlkur annars staðar frá. „Þess má vænta að fyrrnefndi hópurinn kæmi ekki af sömu ástæðum og sá síðarnefndi, sem getur unnið sér inn margföld árslaun á Ijögurra viluia dvöl sinni hér á landi." — lll Drengur hrenndist illa vegna útikertis Þrettán ára drengur brenndist illa sl. sunnudagskvöld þegar hann rak annan fótinn í útikerti sem komið hafði vcrið fyrir fýrir utan bygg- ingu í Reykjavík. Drengurinn hlaut annars stigs bruna á fætin- um þegar að heitt vaxið slettist á hann. Herdís L. Storgaard, fram- kvæmdastjóri Arvekni, átaksverk- efnis um slysavarnir barna og ung- linga, sagði í samtali við Dag að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem samskonar slys yrði á aðventunni. Þannig væri vitað um tvö svona slys á síðustu aðvenlu sem komu inn á borð slysadeilda stóru sjúkra- húsanna í Reykjavík. „Við viljum koma því á framfæri að fólk athugi hvar það staðsetur þessi kerti. Þau eru yfirleitt stór og í ál- eða blikkdósum. Þegar að vax- ið hefur bráðnað að fullu eru þau hættulegust. vegna þess mikla Herdis L Storgaard. magns af vaxi sem í þeim er,“ sagði Herdís og benti á að kertin væru oftast við útidvr verslana, veitinga- staða, samkomustaða og íbúðar- húsa. Hún sagðist t.d. hafa verið í sambandi við Laugavegs- og Mið- bæjarsamtökin og bent kaup- mönnum á þessa slysahættu, Margir hefðu brugðið á það ráð að koma kertunum fyrir í stöðugum kertastjökum og að staðsetja þau ekki við útidyr. Brunaslys algeng á hömum 1 máli Herdísar kom fram að brunaslys á börnum og unglingum væru nokkuö algeng hér á Iandi. Vitnaði hún þar til rannsóknar sem Barnaspítali Hringsins og Slysavarnafélag íslands eru að vinna að á brunaslysum á börnum á árurium 1982-1995. Þar kemur fram að 21 barn að meðaltali brennir sig á ári, þar af eru 62% drengir og 38% stúlkur. Tíðnin er hæst í hópi fjögurra ára barna og yngri. Desember er sá mánuður sem flest slys eiga sér stað. Heitt vatn og heitir vökvar eru algeng- ustu slysavaldarnir og þar á eftir eru eldur, snertibrunar, feiti/vax og flugeldar og púðursprengjur. — njn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.