Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 9
8- MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 X>Mpr MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 - 9 FRÉTTA SKÝRING BJORN JOJÍAJVN BJORNSSON SKRIFAfí Samkeppni í innan- landsflugi aftur kom- in á byrjunarreit. í annars góðum rekstri vildu eigendur ís- landsflug ekki tapa ineiri peningum á inn- anlandsfluginu. Ráð- herra samgöngumála varð fyrir vonbrigð- um, sem og fulltrúar neytenda og bæjarbúa á Almreyri. Flugfélag íslands vonast eftir að geta snúið taprekstri í hagnað. Ákvörðun forráðamanna Islands- flugs að hætta að fljúga á sam- keppnisleiðunum til Ákureyrar, Egilsstaða og Vestmannaeyja hef- ur vakið athygli. Að sögn Islands- flugsmanna voru þessar flugleiðir ekki að gefa félaginu þær tekjur sem við var búist og því var ákveðið að pakka saman, ekki síst þegar tilboð kom frá keppinautn- um, Flugfélagi Islands (FI), um að leigja tvær ATR-vélar félagsins til leigu-, frakt- og áætlunarflugs. í kjölfarið fylgja uppsagnir á meira en 30 starfsmönnum ís- landsflugs af 160, afgreiðslunni á Reykjavíkurflugvelli verður Iokað og þær vélar Islandsflugs sem áfram fljúga til Vesturbyggðar, Sauðárkróks, Siglufjarðar og Gjögurs munu eftir 1. apríl leggja að afgreiðslu FÍ á Reykjavíkur- flugvelli. Islandsflug og FÍ hafa keppt á þessum flugleiðum í tæplega þrjú ár, eða frá 1. júlí 1997, þegar far- þegaflug var gefið frjálst. Islands- flug kom á markaðinn af fullum krafti og lækkaði fargjöldin um allt að helming. Menn spyrja sig nú hvort lækkunin hafi verið full hressileg en á síðasta ári hafa far- gjöldin verið að hækka á ný, nú síðast hækkaði Islandsflug gjöld- in um 5-7% í ársbyrjun. Á sumum leiðum eru fargjöldin farin að nálgast það sem áður tíðkaðist, t.d. á Egilsstöðum. Á skömmum tíma náði íslands- flug nokkuð stórri hlutdeild á þessum flugleiðum; Akureyri, Eg- ilsstöðum og Vestmannaeyjum, en samkvæmt því sem fram kom á blaðamannafundi í fyrradag var það ekki nóg. Hlutdeildin hefur ekki aukist nógu mikið. Á Akur- eyri hefur félagið náð um 30% hlutdeild, um 20% á Egilsstöðum en nærri 50% í Eyjum. Sætanýt- ingin á þessum leiðum var að meðaltali innan við 50%, sam- kvæmt upplýsingum frá félaginu. En betur mátti ef duga skyldi, þótt menn sæju t.d. sérstaklega eftir Eyjaleiðinni. Eigendur vildu meiri arð Forráðamenn félagsins sögðu áherslur hafa breyst í rekstrinum og nú ætti m.a. að beina frekari sjónum að verkefnum erlendis í frakt- og leiguflugi. Upplýst var að innanlandsflugið væri að skila 25% af 2 milljarða veltu og að eigendurnir hefðu ekki „djúpa vasa“ til að fara ofan í, hvorki sem almenningshlutafélag né vasa annarra, eins og Omar Bene- diktsson, framkvæmdastjóri Is- Iandsflugs, orðaði það í Degi í gær. Innanlandsflugið hefur komið út í tapi og hluthafar eru farnir að gera kröfur um meiri arð. Ómar sagði að afkoman hefði orðið enn betri, væri innan- landsflugið undanskilið. Eigendur Islandsflugs eru eink- um einstaklingar úr röðum flug- áhugamanna. Meðal þeirra eru Gunnar Þorvaldsson, stjórnarfor- maður félagsins, Omar fram- kvæmdastjóri, Birkir Baldvins- son, flugvélamiðlari í Lúxemborg, Guðlaugur Birnir Ásgeirsson, at- hafnamaður í Reykjavík og hans félag; Allt gott, og Höldur hf. á Akureyri, sem er í eigu „Kennedy- bræðranna" Birgis, Skúla og Vil- helms Ágústssona. Einnig eiga Skúli Þorvaldsson, kenndur við Hótef Holt, og Eignarhaldsfélag- ið Alþýðubankinn hluti í félaginu auk nokkurra smærri hluthafa. Hlutaféð er 180 milljónir króna. Samkvæmt heimildum Dags ríkti ekki um það full eining meðal hluthafanna í upphafi að hætta þessum flugleiðum en á endan- um hefðu Gunnar og Ómar náð að knýja málið í gegn í sátt flestra. Síðasta ár gott en... Akvörðun Islandsflugsmanna nú er ekki síst athyglisverð í ljósi þess að stutt er síðan afkoma síð- asta árs var kynnt. Þar kom fram að síðasta ár hafi verið það besta í sögu félagsins, en Islandsflug hóf starfsemi fyrir 9 árum. Velta síðasta árs var 2 milljarðar króna, eða 700 milljónum krónum meiri en árið 1998. Heildarfjöldi far- þega í áætlun hjá íslandsflugi var 120 þúsund á sfðasta ári, sem var 10% aukning frá árinu áður. Hlutdeild félagsins var um 30% af þeim 400 þúsund farþegum sem ferðuðust í áætlunarflugi innanlands í fyrra. Mesta aukn- ingin var á Akureyri, 15%, en þangað flugu ríflega 50 þúsund manns. Bætt var við flugleið þangað sl. haust og við það fjölg- aði farþegum enn meir. Þá varð 12% aukning á farþegafjölda til Vestmannaeyja en þangað flaug félagið með 30 þúsund manns í fyrra. Til Egilsstaða var félagið að flytja um 15 þúsund manns í fyrra. Lætur því nærri að tæplega 100 þúsund farþegar „gangi um borð“ yfír í vélar FI á þessum leiðum, takist því félagi að halda þeim markaði óbreyttum. I til- kynningu frá Islandsflugi 7. febr- úar sl. mátti m.a. lesa þetta: „Far- þegatölur félagsins fyrsta mánuð þessa árs Iofa góðu. Félagið flutti um 10.000 farþega sem er um 11% aukning í áætlunarflugi mið- að við sama tfma í fyrra. Enn á Is- landsflug þó eftir að gera betur og horfir því björtum augum til þessa árs og mun halda áfram að gera fleirum fært að fljúga með C ’ *' Tr 1 i’-. : Þessi sjón verður æ sjaldsédari, eftir sem því nær dregur I. apríl, að sjá flugvél frá Islandsflugi á Akureyrarflugvelli, a.m.k. í áætlunarflugi. Bæjarstjórinn á Akureyri segir þetta grátlega niðurstöðu. Samgönguráðherra varð fyrir vonbrigðum og Neytendasamtökin sömuleiðis. En svo fór sem fór. - mynd: brink ýmsum nýjungum að ógleymdum síbreytilegum nettilboðum á heimasíðu félagsins.“ I ljósi þessarra orða er ekki óeðlilegt að spyrja Ómar Bene- diktsson hvað hafi eiginlega gerst á síðustu vikum. Af hverju gáfust menn svona skyndilega upp? Ómar sagðist í samtali við Dag í gær ekki vilja orða það svo að fé- lagið hefði gefist upp. Nýr val- kostur hefði einfaldlega boðist og átti hann þar við aukið fraktflug. Ómar vildi ekki líta svo á FI hefði keypt þá út af markaðnum, með því að leigja þeim ATR-vélarnar. Betra hefði verið að halda vélun- um í gangi héðan frekar en að er- lendar vélar yrðu fengnar til landsins, líkt og FI hefði staðið til boða. Hvar byrjaði „raglið“? En er ekki bara verið að keppa um allt of fáar sálir á markaðn- um, líkt og oft kemur upp á sam- keppnissviðum? Eða eins og einn flugáhugamaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, orðaði það svo vel: „Okkar stóra vandamál hér á íslandi er að við erum of fá. Markaðurinn er of lftill, hann ber ekki samkeppni. Hvenær skyldu menn vilja kyngja því? Fariði bara og fjölgið fólkinu, þá leysist margt!“ Hvort Islandsflug hefði verið of bratt í lækkun fargjalda sagðist Ómar ekki vera því sammála. Leikreglurnar hefðu bara ekki verið þær sem víða tíðkaðíst í Evrópu og Bandaríkjunum. Þegar nýr aðili kæmi inn á markaðinn mættu hinir ekki elta f verði. „Þetta var Ieyft á sínum tíma og þar byrjaði ruglið. Staðan væri allt önnur í dag ef ekki hefði ver- ið tekið fyrir þetta. Til að sam- keppni komist á þarf nýr aðili að fá að komast inn á markaðinn. Samkeppnin varð aldrei almenni- lega virk. Þetta er kjarni málsins og síðan spila margir aðrir þættir inn í þetta,“ sagði Ömar. Óvissa um „litlu“ leiðimar Hræringar hafa átt sér stað á ýmsum flugleiðum innanlands undanfarin ár. Flestir muna eftir því er Flugfélag Norðurlands sameinaðist Fí og stutt er síðan Mýflug ákvað að skipta um sam- starfsaðila á flugleiðinni Reykja- Úmar Benediktsson, framkvæmdastjóri íslandsflugs: „Til að samkeppni komist á þarf nýr aðili að fá að komast inn á markaðinn. Samkeppnin varð aldrei almennilega virk. Þetta er kjarni málsins." vík-Húsavík-Reykjavík. Mýflug leigði Dornier-vél af íslandsflugi til þessa flugs í eitt ár en 1. febr- Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra: „Niðurstaða íslandsflugs segir okkur reyndar það sem við vissum fyrir, að markaðurinn er lítill og tæplega tiI skiptanna. Hins veg- ar hiýtur þetta að vekja upp spurn- ingar um hvort fjárfestingar í flug- vélum séu þær réttu, hvort hefði mátt fara aðrar leiðir við val á fíug- vélum." úar sl. fór félagið yfir til FÍ, sem nú sér um flug Mýflugs á þessari leið. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri: „Það er bara slæmt fyrir notendur þessarar þjónustu ef samkeppnin líði undir lok, án þess að ég sé að vantreysta Flugfélagi íslands fyrir því verkefni sem það hefur sinnt ágætlega.“ Eins og kom fram í upphafi ætlar Islandsflug að fljúga áfram til Bíldudals, Sauðárkróks, Siglu- fjarðar og Gjögurs. Þetta eru ekki fjölfarnar leiðir, í samanburði við þær stóru, en Krókurinn er þar stærstur, með nokkuð góða sæta- nýtingu, eftir því sem blaðið kemst næst, eða 70-80%. Flug til Siglufjarðar er tengt við Krókinn en þangað falla ferðir oft niður vegna veðurs og hafa Siglfirðing- ar oft þurft að ferðast í rútu til að ná flugi á Sauðárkróki. Eins og gefur að skilja er flugið til Gjögurs ekki að skila Islands- flugi miklum tekjum. Sú leið er boðin sérstaklega út af stjórn- völdum og útboð á þeirri leið stendur einmitt yfir. Svo gæti far- ið að íslandsflug missi þá leið til FI, bjóði keppinauturinn betur í útboðinu. Ómar Benediktsson var spurður að því hvort hann teldi líklegt að félagið héldi áfram þessum flugleiðum. Fátt var um svör, hann taldi t.d. ólíklegt að FI hefði áhuga á þeim. Einna helst væri það Sauðárkrókur, því FI hefði ekki vélar í að fljúga á hina staðina. Ómar taldi t.d. ekki ólík- legt að útboð á þremur flugleið- um yrðu skoðuð á næstunni af stjórnvöldum; til Siglufjarðar, Vopnafjarðar og Þórshafnar. Samkeppni á Egilsstöðum? Ljóst er að flugleiðin til Egils- staða hefur ollið íslandsflugi mestum vonbrigðum, enda styrr staðið um þá leið milli Islands- flugs og FI. Kærumál hafa gengið á víxl til Samkeppnisstofnunar, sem endaði með því að FI mátti ekki fljúga á sama tíma og Is- Iandsflug. Austfirðingum, líkt og Eyfirðingum og Eyjamönnum, þykja þetta slæm tíðindi að ls- landsflug hafi dregið sig út úr samkeppninni við FI. Á Austur- landi binda menn þó vonir við að nýstofnað flugfélag, Jökull, muni geta haldið uppi samkeppni á leiðínni milli Egilsstaða og Reykjavíkur. Magnús Gehringer, einn eigenda Jökuls, sagði við Dag að félagið hefði fyrst og fremst verið stofnað um flug til útlanda. Innanlandsflugið freist- aði þeirra ekki, markaðurinn væri of þungur. Til greina kæmi að að samtvinna flug frá Reykjavík og þaðan til útlanda í gegnum Egils- Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna: „Ég viljafnframt vara þann aðila við, sem nú hefur einokunaraðstöðu á þessum þremur leiðum, að gangi hann ofhratt um gleðinnar dyr í verðhækkunum þá skapar það minni möguleika fyrir önnur félög að koma inn á ákveðin markaðssvæði." flug staði. Ákvarðanir um þetta hefðu þó ekki verið teknar. Keppmauturinn gleðst Hvað skyldi svo aðalkeppinautur- inn, Flugfélag Islands, segja yfir þessum tíðindum frá Islands- flugi? Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FI, sagðist ekki hafa hoppað hæð sína af gleði yfir tíðindunum en félagið væri samt alls ekki ókátt. Möguleikar sköp- uðust á að snúa taprekstri af inn- anlandsfluginu í hagnað. Hvort F1 takist að halda þeim tæplega 100 þúsund farþegum Islands- flugs á þessum leiðum sagðist Jón Karl ekki ganga út frá því sem vfsu. Án efa væru einhverjir ekki sáttir og vildu halda sig við land- eða sjóleiðina. „Við vonumst til þess að sem flestir vilji fljúga með okkur. Með samkeppninni fjölgaði flugfar- þegum enn meir en þeir höfðu gert síðastliðin ár. Þrátt fyrir betra vegakerfi og betri bíla þá höfum við haldið aukningunni. Menn vilja komast hraðar jfir. En vissulega erum við of fá. Eg segir það oft að vandamál okkar Is- íendinga er að það vantar eitt núll í okkur. Þetta væri lítið mál ef við væruni 2,7 milljónir. Þá værum við ekki í vanda með marga hluti, m.a. innanlandsflugið. I raun er það bara Akureyrarleiðin sem ber sig, aðrar bera ekki alvöru sam- keppni," sagði Jón Karl. Ótti er uppi um að flugfargjöld hækki við brotthvarf íslandsflugs. Jón Karl sagði fargjöld ekki hælcka 1. apríl eða síðar, ein- göngu vegna tíðindanna nú. Þó væri ljóst að fargjöld gætu ekki verið föst, þau byggðust m.a. á eldsneytiskostnaði, sem hefði hækkað undanfarið. „Engar hækkanir eru fyrirhugaðar á næstu vikuni eða mánuðum," sagði Jón Karl. Aðspurður hvort félagið hefði áhuga á að fljúga á þeim leiðum sem Islandsflug ætl- aði að halda áfram með, sagðist Jón Karl ekki reikna með því. Það færi reyndar eftir áformum for- ráðamanna Islandsflugs. Ráðherra áhyggjufuUur Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagðist vera áhyggjufullur yfir þróun mála, er rætt var við hann í gær. „Þetta veldur von- brigðum því samkeppnin hefur skipt töluverðu máli. Flugið gegn- ir mikilvægu hlutverki í sam- göngukerfinu. Niðurstaða ís- landsflugs segir okkur reyndar það sem við vissum fyrir, að markaðurinn er lítill og tæplega til skiptanna. Hins vegar hlýtur þetta að vekja upp spurningar um hvort fjárfestingar í flugvélum séu þær réttu, hvort hefði mátt fara aðrar leiðir við val á flugvél- um. Ég þori ekkert að fullyrða um það en að mati Islandsflugs er ljóst að þetta gangi ekki. Það veldur mér verulegum vonbrigð- um. Þeir sjá aðra möguleika lyrir sína starfsemi og vonandi gengur þeim vel á þeim vettvangi,“ sagði Sturla. Samgönguráðherra sagði að ekki mætti gleyma því að Islands- flug hefði verið að byggja sig upp og notað innanlandsflugið m.a. til þess. Þrátt fyrir tap á þeim vett- vangi virtist félaginu ganga bæri- lega. Sturla sagði að ekki mætti líta svo á að endalok hefðu nálg- ast í samkeppni í innanlandsflugi. Allt gæti gerst í þeim efnum. Að- spurður hvort stjórnvöld ætluðu eitthvað að grípa inn í þessa þró- un sagði Sturla það ekki geta orð- ið, frelsi væri komið á í innan- landsflugi og einu afskipti stjórn- valda væru í gegnum samkeppn- isyfirvöld. Að fylgjast með og sjá til þess að samkeppnin gangi eðli- lega fyrir sig. Þjónustan hefur verið góð Akureyringar munu án efa finna fyrir minni samkeppni á flugleið- inni til Reykjavíkur eftir 1. apríl. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagðist vissulega hafa áhyggjur af gangi mála. Það væri grátlegt að samkeppni á þessari flugleið liði undir Iok. „Ég veit í sjálfu sér ekki ástæð- ur þessarar ákvörðunar íslands- flugsmanna. Hins vegar á ég bágt með að trúa því að þessar leiðir gefi minna af sér en þær áætlun- arferðir sem félagið ætlar að halda áfram með. Mér finnst ein- kennilegt ef aðstæður á þeim markaði eru með þeim hætti að það flug standi betur undir sér en flugið til Akureyrar, Egilsstaða og Eyja. I sjálfu sér er þetta mál fyr- irtækisins. Það er bara slæmt fyr- ir notendur þessarar þjónustu ef samkeppnin líði undir lok, án þess að ég sé að vantreysta Flug- félagi Islands fyrir því verkefni sem það hefur sinnt ágætlega. Því er ekki að leyna að þjónustan við Akureyringa og nærsveitamenn hefur verið mjög góð, með bæði þessi félög á leiðinni," sagði Kristján Þór. Akureyrarbær hefur að sögn bæjarstjórans verið með samning við bæði flugfélögin og ekki bundið ferðir bæjarstarfsmanna við annað félagið fremur en hitt. Aðrir stórir aðilar í bænum, eins og Háskólinn á Akureyri, hafa verið með fastan samning við Is- landsflug og háskólamenn nýtt sér það óspart. Slæmt fyrir neytendur Samkeppni í innanlandsfluginu hefur tvímælalaust komið farþeg- um, og neytendum þar með, til góða og nú spyrja menn sig hvort fargjöldin rjúki upp á við þcgar F1 verður einrátt á helstu leiðum eftir 1. apríl. Neytendasamtök hera hag neytenda fyrir brjósti og þar er Jóhannes Gunnarsson for- maður. Hann sagði við Dag að tíðindin um Islandsflug væru afar slæm fyrir neytendur. Flugfar- gjöld hefðu lækkað með tilkomu félagsins á þennan markað. „Þegar um er að ræða einokun á ákveðnu sviði þá er það frekar óhagfellt fyrir neytendur. Einok- unarfyrirtækið tekur það sem það telur sig þurfa og ekki þarf að spyrja neytandann um eitt né neitt. Auðvitað vonar maður það besta, að þetta leiði ekki til mik- illa verðhækkana, en full ástæða er til að óttast það. Ég vil jafn- framt vara þann aðila við, sem nú hefur einokunaraðstöðu á þess- um þremur leiðum, að gangi hann of hratt um gleðinnar dyr í verðhækkunum þá skapar það minni möguleika fyrir önnur fé- lög að koma inn á ákveðin mark- aðssvæði," sagði Jóhannes.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.