Dagur - Tíminn Akureyri - 11.02.1997, Síða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.02.1997, Síða 9
Akureyri Reykjavík Úr dagbók lögreglunnar á Akureyri, Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík 3.-9. februar 1997 s hætt er að segja að lög- reglumenn á Akureyri hafi haft í mörg horn að líta þessa 7 daga. Lögreglu- menn sinntu fjölmörgum mál- um af öllu mögulegu tagi ásamt því að aðstoða fjölmarga aðila sem þurftu á aðstoð að halda. Þau mál sem lögreglan kom að og leiddu til skýrslugerðar þessa daga reyndust vera 136 talsins. Eins og gengur er þar mest um að ræða skýrslur vegna atvika úr umferðinni. Þannig voru tilkynntir 13 árekstrar til lögreglunnar en ekki var talið að slys hefði orðið á fólki í óhöppum þessum. Númer voru tekin af 27 bifreið- um vegna vanrækslu umráða- manna á að flytja þær til skoðunar á tilskyldum tíma og einnig höfðu sumir ekki fært bifreiðar sínar til endurskoðun- ar. Öryggisbeltanotkxm hér í bæ er ekki nógu almenn og því voru 42 aðilar kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti og einnig bar nokkuð á því að ökumenn væru ekki með ökuskírteini meðferðis við aksturinn. 10 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of greitt, 6 fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu, 1 fyrir að aka á móti einstefnu, 2 fyrir að hafa ekki bæði skráningarnúm- erin á bifreiðum sínum, 1 fyrir að aka sviptur ökurétti og 2 voru teknir grunaðir um akstur undir áfengisáhrifum. aka ljóslaus talsverðan spöl. Hann ók síðan heim að sveita- bæ í Kræklingahlíðinni og reyndi að fela bifreið sína þar en hið alsjáandi auga réttvís- innar leit hann augum skömmu síðar. Ökumaður var handtek- inn og færður á lögreglustöðina þar sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri svipti hann ökurétti til bráðbirgða. Skemmdarverk í Kjarnaskógi Af öðrum verkefnum lögreglu, sem unnt er að greina frá, má nefna að hún var tvisvar kölluð til vegna vinnuslysa sem í báð- um tilfellum virtust ekki vera alvarleg, tvisvar kölluð til vegna búðarhnupls, einu sinni vegna þjófnaðar á bensíni og einu sinni vegna konu sem hafði með sér áfengi inn á vínveit- ingahús. Þá var tilkynnt um 2 innbrot og einnig voru framin skemmdarverk á snyrtiaðstöðu í Kjarnaskógi. Höfð voru af- skipti af allmörgum aðilum sem lent höfðu í átökum. Útköll þessi voru leyst eftir því sem við átti, annaðhvort var aðilum ek- ið heim til sín eða þeir fengu að gista fangageymslur og voru fjórir færðir í fangageymslur af þeim sökum. Þarf vart að geta þess að allir voru þessir aðilar ölvaðir. Köttur uppi í tré 18 ára á ofsahraða Ekki er hægt að ljúka við umferð- armál síðustu viku án þess að nefna einn 18 ára ökumann er var kærður fyrir of hraðan akstur aðfara- nótt laugardags. Lögreglumenn mældu hraða bifreiðar hans þar sem hann ók norður Hörg- árbraut við Lónsá og reyndist ökuhraði bifreiðarinnar vera 166 km/klst. en þarna er leyfð- ur hámarkshraði 70 km/klst. eða 96 km/klst yfir leyfðum há- markshraða. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lög- reglu og gerði tilraun til að komast undan hinum langa armi laganna með því að slökkva Ijós bifreiðarinnar og Ymsum störfum þurfa lögreglu- menn að sinna og til gamans má geta þess að slökkviliðs- menn kölluðu lögreglu sér til aðstoðar s.l. þriðjudag að Bjarkastíg en þar var köttur uppi í tré. Að sögn var köttur- inn búinn að vera uppi í trénu frá því s.l. föstudag. Slökkviliðs- menn höfðu komið með körfu- bifreið á stað- inn en náðu ekki kett- inum niður Annar lögreglu mannanna kleif þá upp í tréð og frelsaði köttinn úr prísundinni, eigend- um hans til mikillar ánægju. Látum þetta duga úr dagbók lögreglunnar að sinni. rátt fyrir 342 færslur í dagbók var helgin stórtíð- indalítil. Annríki var þó vegna fjölda tilkynntra um- ferðaróhappa, en þau voru um 74 talsins. Meiðsl á fólki urðu í 6 tilvikum. Þá þurftu lögreglu- menn að hafa afskipti af 47 manns vegna ölv- unarháttsemi á almanna- færi. Rólegt var í mið- borginni um helgina. Þar sáust engir unglingar undir sextán ára aldri. Reyndar hafa þeir ekki sést í miðborginni undanfarna mánuði. Vista þurfti 37 manns í fangageymsl- unum af ýmsum ástæðum. Sautján sinnum var kvartað yflr hávaða í heimahúsum. Fjórir ökumenn, sem lögreglumenn stöðvuðu f akstri, eru grunaðir um ölvunarakstur, auk tveggja annarra, sem lent höfðu í um- ferðaróhöppum áður en til þeirra náðist. Tilkynnt var um 4 líkamsmeiðingar, 12 innbrot, 3 þjófnaði, 1 rán og 13 eignar- spjöll. Fíkniefni komu við sögu tveggja mála. „Stolin" bifreið Um miðjan dag á föstudag var tilkynnt um að bifreið hefði ver- ið stolið frá fyrirtæki í Sunda- höfn. Ökumaðurinn kvaðst hafa skroppið í kaffi, en þegar hann kom út aftur var bifreið hans horfln. í stæði við hliðina á því, sem bifreið hans hafði verið í, stóð hins vegar bifreið sömu tegundar og í sama lit og bifreið hans, en nokkrum árum eldri. Við athugun fannst hin „stolna" bifreið utan við fyrirtæki skráðs eiganda bifreiðarinnar, sem eft- ir varð á vettvangi. Um mistök virtist hafa verið að ræða. Síðdegis var ökumaður flutt- ur á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á Hagatorgi. Afskipti voru höfð af ungum manni í Kringlunni eftir að hann hafði verið að hóta þar og ógna öðrum ungmennum. Kona féll við Hlemmtorg vegna hálku. Hún var flutt á slysa- deild. Aðstoða þurfti ökumann eftir að hann hafði ekið bifreið að hálfu fram af steinvegg við Egilsgötu. Þá þurfti að færa tvö börn á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Lágmúla og Suð- urlandsbrautar. 7.-10. febrúar Vísað út af veit- ingastað Skömmu eftir miðnætti á föstudag þurfti að flytja mann á slysadeild eftir að hann hafði fengið glas í andlitið á veitinga- stað við Hverfisgötu. Sá sem haldið hafði á glas- inu var færður á lög- reglustöð. Um nóttina óku lögreglumenn fram á mjög ölvaða konu illa til reika á Laugavegi. Konunni hafði verið vísað út af einum veitingastaðanna. Henni var ekið til síns heima. Öryggis- gæslumenn tilkynntu um að þrjár rúður hefðu verið brotnar í skóla í Breiðholti. Þrír menn voru færðir á lögreglustöð eftir slagsmál á veitinga- húsi við Aðalstræti. Manni var ekið á geð- deild eftir heimilisófrið í húsi í Vesturbænxnn Tilkynnt var um inn- brot í söluturn við Arnarbakka. Ekki var að sjá að neinu hafi verið stolið. Tveir aðil- ar voru færðir á lög- reglustöð eftir að lítil ræði af hassi og áhöld til neyslu efnanna hafði fundist á þeim eftir að þeir voru stöðvaðir í akstri á Vatnsmýrarvegi. Öku- maður, sem stöðvaður var í Mosfellsbæ, reyndist réttinda- laus. Hann var færður á lög- reglustöð til skýrslutöku. Bif- reið valt á Suðurlandsvegi. Ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni, slapp ómeiddur. Þrír ölvaðir menn voru færðir á lögreglustöðina frá veitingastað í Hafnarstræti. Tilkynnt var um slagsmál á milli feðga í húsi í Vesturbænum og flytja þurfti ökumann á lögreglustöð eftir að lítilræði af fíkniefnum fannst í fórum hans eftir að hann var stöðvaður á Grensásvegi. Eldur á Seltjarnarnesi Á laugardagsmorgun kviknaði í húsi á Seltjarnarnesi. Miklar reyk- og sótskemmdir hlutust af. Brotist var inn í skólahús- næði á Seltjarnarnesi og í Breiðholti og bifreið við Þöngla- bakka. Síðdegis varð barn fyrir bifreið á Borgarvegi við Víkur- veg. Við óhappið festist það undir bifreiðinni. Meiðsl þess virtust þó minni- háttar. Skömmu eft- ir miðnætti á laug- ardag missti eins árs gamalt barn meðvitund er það féll aftur fyrir sig í húsi í Grafarvogs- hverfi. Það var flutt á slysadeild. Um nóttina var brotist inn í verslun við Laugaveg. Manni var ekið á slysa- deild eftir að þrír menn höfðu veist að honum í húsi við Bergstað- arstræti og rænt af honiun 500 kr. Þá varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið á Bústaðavegi vest- an Suðurhlíðar. Hann var flutt- ur á slysadeild með lítils- háttar meiðsl. Bílstjóri rændur Á sunnudagsmorgun voru tveir menn handteknir í Vallarhúsum er þeir voru að fara þar inn í bifreiðir. Leigubifreiðastjóri tilkynnti um að hann hefði ver- ið rændur veski sínu. Ráns- manninum er lýst sem 25-26 ára gömlum grönnum karl- manni með lítið hár, nánast snoðklippt, klæddan í dökka blússu með loðkraga. Tveimur tölvum var stolið í innbroti í fyrirtæki við Funahöfða og skemmdir voru unnar í innbroti í hús við Hverfisgötu. Síðdegis voru tveir ökumenn fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Geirsgötu og Pósthússtrætis. Um kvöldið féll kalakastykki af þaki húss við Austurstræti og hafnaði á bifreið. Fengin var körfubifreið frá slökkviliði Reykjavíkur til að hreinsa það sem eftir var af klakanum undir þakskeggi hússins. ©agur-®tmmn """""""Tésínimi dagsins! Verktakar, smiðir, bifvélavirkjar, píparar, rafvirkjar, málarar, verslunarmenn... Kynnið ykkur tilboð okkar á raðaugiýsingum, - ÞÆR SKILA ÁRANGRi - Sími auglýsingadeildar er 460 6100 - Fax auglýsingadeildar er 460 6161

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.