Dagur - Tíminn Akureyri - 08.05.1997, Blaðsíða 5
jllagxxr-Βmtmt
Fimmtudagur 8. maí 1997 - 5
F R É T T I R
Viðskipti
ASÍ og neytendur á
verðlagsbremsunni
Einstaka sælgæti og
þjónusta hefur hækk-
að í verði. Óttast áhrif
af hækkun farm-
gjalda. Nafnbirting
verslana kemur til
greina.
Við viljum vera alveg á
bremsunni og varðveita
verðlagið," segir Guð-
mundm Gylfi Guðmundsson,
hagfræðingur ASÍ.
í hugmyndum verkalýðs-
hreyfingar um öflugt og skilvirkt
verðlagseftirlit í samvinnu við
Neytendasamtökin hefur m.a.
verið rætt xun að birta opinber-
lega þær vörutegundir sem
kunna að hækka í verði. Ef ekki
koma fram haldbær rök fyrir
hækkunum í einstökum verslun-
um er ekki útilokað að nöfn
þeirra verði birt.
Eitthvað hefur
borið á verðhækk-
unum uppá síð-
kastið og m.a. hafa
einstaka sælgætis-
tegxmdir hækkað í
verði í sjoppum.
Sömuleiðis hefur
borið á hækkunum
hjá einum og ein-
um rakara og eru
dæmi um að verð á
breytingar á farmgjöldum
vegna gengisbreytinga. Þessu til
viðbótar telja menn ástæðu til
að hafa auga með tilhneigingu
kaupmanna um hækkun álagn-
Guðmundur Gylfi Guðmundsson
hagfræðingur ASÍ
Á bremsunni til
að varðveita
verðlagið
herraklippingu hafi hækkað um
100 krónur. Þá óttast menn að
5% hækkun farmgjalda hjá Eim-
skip í Ameríkusiglingum muni
gæta í hærra verðlagi og einnig
ingar.
Halldór Björnsson, formaður
Dagsbrúnar, segir brýnt að
verðlagseftirlit verkalýðshreyf-
ingar og Neytendasamtakanna
fari í gang sem fyrst til að fólk
fái það á tilfinninguna að samn-
ingarnir skili því sem talað er
um.
Samvinna verkalýðsfélaga og
samtaka neytenda í verðlags-
málum var rædd á miðstjórnar-
fundi ASÍ í gær. Á þeim fundi
var lögð fram kostnaðaráætlun
vegna launa starfsmanns og
annað sem kann að falla til.
Gert er ráð fyrir að skrifstofa
eftirlitsins verði í húsakynnum
Neytendasamtakanna. Þá er
ekki útilokað að fleiri hags-
munaaðilar muni taka þátt í
verðlagseftirlitinu. Síðast en
ekki síst er áhugi fyrir að ráðast
í verðkannanir til að fylgjast
með öllum hræringum sem
kunna að verða á verðlagi á
höfuðborgarsvæðinu og á lands-
byggðinni. -grh
Akureyri
Vatnstjón
á Eyrinni
Vatn flæddi milli hæða við
Eiðsvallagötu í gær allt frá
risi í þriggja hæða húsi niður á
neðstu hæð. Húsráðandi á efstu
hæð hugðist fara í bað í gær-
morgun og skrúfaði frá kalda
vatninu í baðker en það hafði
þá verið tekið af götunni og
gleymdi hann að skrúfa fyrir
aftur. Tjón virtist töluvert á
miðhæð hússins þegar trygg-
ingamenn voru að störfum í
gær en efsta og neðsta hæðin
sluppu að mestu. BÞ
Einu búðimar
í þjóðgarði
Innritun er hafin í sumarbúð-
irnar við Ástjöm. Þær eru í
skógi vöxnum þjóðgarði við
Jökulsárgljúfur í Kelduhverfi,
skammt frá Ásbyrgi og eru einu
búðirnar innan þjóðgarðs. Frá
14. júní til 16. ágúst munu 6-12
ára drengir og stúlkur dvelja
við Ástjörn. BÞ
Skrúðgarðyrkjumeistarar
Félag skrúðgarðyrkjumeistara hyggst gefa Reykjavíkurborg vinnu sína við frágang á umhverfi minnismerkisins á
horni Túngötu og Garðastrætis. Um ræðir gjöf frá lettnesku þjóðinni.
Sælla að gefa en þiggja
Itilefni af 30 ára afmæli Fé-
lags skrúðgarðyrkjumeist-
ara hafa félagsmenn
ákveðið að færa öðrum gjafir í
stað þess að þiggja þær sjálfir.
í samræmi við það hefur fé-
lagið ákveðið að gefa Reykja-
víkurborg frágang á umhverfi
minnismerkis sem lettneska
þjóðin gaf þeirri íslensku og
stendur á horni Túngötu og
Garðastrætis. Meistarnir lieíja
vinnu sína í dag, fimmtudag, og
áætla að ljúka henni á sunnu-
dag þegar þeir afhenda borgar-
stjóranum þessa óvenjulegu
gjöf. Á meðan á vinnu þeirra
stendur á götuhominu ætla þeir
að veita þeim vegfarendum sem
óska fræðslu um ski'úðgarð-
yrkju. -grh
Verslanir
Neytendur spá í starfsfólk
Heilbrigt og ánægt starfs-
fólk í verslunum eru
meðal þeirra þátta sem
sem verða æ mikilvægari í
ákvörðunum neytenda um val á
búðum. Verðlag og gæði vör-
unnar er því ekki einhlítur
mælikvarði á samkeppnisstöðu
verslana um hylli neytenda. í
þeim efnum skiptir ekki síður
máli starfsumhverfi og vinnu-
skilyrði sem starfsmönnum er
boðið uppá í sinni vinnu.
Þetta kom m.a. fram hjá
Huldu Ólafsdóttur, starfsmanni
Vinnueftirlits rikisins, á blaða-
mannafundi í gær. Þar voru
kynntar niðurstöður úr könnun
Vinnueftirlitsins um vinnuað-
stæður 1300 starfsmanna í 49
matvöruverslunum.
Ilún benti t.d. á að erlendir
kaupendur á norskum fiski eru
mikið farnir að spá í aðbúnað
starfsfólks áður en þeir taka
ákvörðun um fiskkaup. Af þeim
sökum hefðu Norðmenn mark-
að sér ákveðna stefnu í þessum
málum til að koma til móts við
óskir kaupenda. Það eru því
ekki aðeins gæði vörunnar og
heilbrigði hennar sem ráða af-
stöðu kaupenda, heldur einnig
hvernig staðið er að aðbúnaði
þess fólks sem vinnur við fram-
leiðslu vörunnar. -grh
Leiðandi fyrirtæki í
kerrum, vögnum og
dráttarbeislum,
Áratuga reynsla.
VÍKURVAGNAR EHF.
Lögleg hemlakerfi fyrir
kerrur og vagna.
Skv. EES.
Á allar gerðir bifreiða.
Ásetning á staðnum.
Allir hlutir til
kerrusmíða.
Öll okkar vara er
samkvæmt
Evrópustaðli...
Tveggja til átta hesta kerrur.
VIKURVAGNAR
ORYGGI - ÞJONUSTA
ÁRATUGA REYNSLA
VÍKURVAGNAR EHF.
Síðumúla 19 • 108 Reykjavík
Sími 568 4911 • Fax568 4916
Jk