Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.05.1997, Blaðsíða 9
jDaigitútEmnraí’ PJÓÐMÁL FtfnmtudagtiT 29. ritaí'1997 - 9' Kalda stríðið - í dvala eða endanlega úr sögunni? Jeltsín - undirritaði hann endalok kalda stríðsins eða munu samningarnir snúast gegn honum? Birgir Guðmundsson skrifar að var mikið um dýrðir í París á þriðjudaginn þeg- ar leiðtogar NATO-ríkj- anna og Jeltsín Rússlandsfor- seti undirrituðu samkomulag um samstarf sem sagt er eyða því sem eftir var af kalda stríð- inu. Davíð Oddsson forsætisráð- herra flutti skáldlega ræðu eins og aðrir NATO-ríkja leiðtogar, og Jeltsín sagði óvænt að Rúss- ar myndu ekki lengur miða vopnum sínum að NATÓ-ríkj- um. En eftir að fagnaðarkliður leiðtogafundarins hljóðnaði hafa menn víða um heim verið að velta fyrir sér hversu raun- hæft það sé að tala um að kalda stríðið sé endanlega búið. Dagur-Tíminn ræddi þetta í gær við tvo íslenska sérfræð- inga sem voru sammála um að undirritun samstarfssamnings- ins á þriðjudag hafi verið merkileg, en mikið - ef ekki allt - velti á því hvernig málið verð- ur útfært og hvernig túlkun á einstökum atriðum verður. Þetta eru þeir Þórður Ægir Ósk- arsson, skrifstofustjóri Varnar- málaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins og höfundur ijöl- margra fræðirita um alþjóða- stjórnmál, og Árni Bergmann, sérfræðingur í málefnum Rúss- lands. Samningurinn Samstarfssamningurinn sem undirritaður var í París kveður á um stofnun sérstaks fastaráðs NATO og Rússlands, sem yrði formlegur vettvangur pólitískra og hernaðarlegra samskipta. Þórður Ægir Óskarsson bendir á að vissulega hafi slíkt samráð verið í uppbyggingu á undan- förnum árum þar sem NATO- ríkin og Rússland hafa setið við sama borðið (16+1 samstarf). Það sem gerist merkilegt nú er að þetta samstarf fær formleg- an grundvöll og farveg, sem sé mikilvægt skref í að festa sam- skiptin í sessi. Þórður rifjar upp að fyrir hálfum áratug þegar Parísarsamkomulagið var undir- ritað hafi menn líka lýst yfir að kalda stríðinu væri lokið, þannig að varasamt sé kannski að af- skrifa endanlega það hugtak. „En það má segja að búið sé að fá Rússland til að samþykkja í grundvallaratriðum lykilhlut- verk NATO, og stækkun þess, þó svo að þeir hafi ákveðna fyrir- vara, s.s. varðandi Eystrasalts- ríkin. Á móti fá Rússar sína sér- stöðu sem meginlandsveldi við- urkennda," segir Þórður. Túlkunin „Sambúðin hefur aldrei verið eins góð og nú þó vissulega sé ekki búið að ijarlægja sam- keppnisþáttinn af öryggismála- sviðinu. Þess utan á alveg eftir að framkvæma þennan samn- ing - það er engin trygging fyrir því að það verði gert í ró og spekt, það verður að gera ráð fyrir miklum túlkunarágrein- ingi,“ segir Þórður Ægir. Árni Bergman nefnir einnig að þó friðsamlega horfi í augnablikinu þá séu grund- valldarforsendurnar ekki breyttar í stórveldapólitíkinni. Hann geti fallist á að kalda- stríðið sé búið í þeirri mynd sem við höfum þekkt það, en hins vegar sé eins víst að spenna og árekstrar komi fram undir eilítið breyttum formerkj- um. Nýr „Versala- samningur"? En er hætta á að samstarfs- samningurinn milli NATO og Rússa frá því í fyrradag hafi öf- ug áhrif - í staðinn fyrir að tryggja frið stuðli hann að ófriði og spennu? Að hann verði eins konar „Versalasamningur" sem veki upp herská öfl í Rússlandi sem muni krefjast hörku, að móðurlandið hafi verið svikið í tryggðum o.s.frv.? „Það fer allt eftir því hvernig úr málunum spilast,“ segir Árni Bergmann. Hann sér málið fyrst og fremst sem efnahags- legt úrlausnarefni. „Ef ekki ræt- ist úr efnahagsmálum í Rúss- landi og þjóðarframleiðslan heldur áfram að minnka, þá er Þórður Ægir Óskarsson, skrif- stofustjóri Varnarmálaskrifstofu. mjög líklegt að einmitt þessi samvinna við NATO verði tilefni mikillar gagnrýni," segir Árni. Hann undirstrikar að í dag hafi menn einfaldlega um annað að hugsa og ef stjórnmálin standa ekki undir væntingum í efn- hagnum komi krafa um að sterkur leiðtogi lagi málin. Sá sterki leiðtogi muni hiklaust nota þetta samkomulag með öðru sér til framdráttar. Leiðtoginn Árni útilokar meira að segja ekki að sjálfur Jeltsín gæti tekið upp á því að túlka nýgerða samninga með nýjum hætti, komi það í hans hlut að vera þessi leiðtogi. Ilann minnir á að Jeltín er mikill tækifærissinni, sem rekur menn gjarnan til að koma sjálfum sér undan erfiðri gagnrýni. Hann kennir öðrum um en eignar sjálfum sér það sem vel tekst. Meira að segja við undirritunina í París í fyrra- dag kom þessi tækifæris- mennska upp í honum - þegar hann lýsti því skyndilega yfir að honum hefði allt í einu dottið í hug að hætta að beina vopnum að NATO ríkjum. Þetta segir Árni dæmigert fyrir hann - þar þurfti ekki að leita samþykki þings eða ráðherra. Það er því niðurstaða Árna að eins og er skapi þessi nána samvinna ekki vandræði í innanríkismálum í Rússlandi, en hins vegar sé hún feiknarlegur eldsmatur á óánægjubálið ef ekki tekst fljótlega að snúa við efnahagsástandinu í landinu. Sterki leiðtoginn, Lebend eða einhver annar, bíði eftir að þeirra tími komi, og í því felst hættan. Árni segist því taka und- ir með Havel, forseta Tékklands, sem sagði í nýlegri blaðagrein að þessi þróun öll væri þess eðl- is að henni bæri að fagna með fyrirvara. Hún fæli í sér von en líka gríðarlegar hættur. Óvissan mikil Þórður Ægir tekur undir með Árna og telur flesta telja að eins og er hafi rússneskur al- menningur ekki miklar áhyggj- ur af samkrullinu við NATÖ. „Hins vegar hef ég líka séð virta fræðimenn halda því fram að þetta sé þvert á móti talsvert miklivægt fyrir almenning í Rússlandi. Og óvissan er auðvit- að því meiri fyrir það að Jeltsín stendur frammi fyrir miklum erfiðleikum í efnahagsmálum og þó þessi svið séu kannski óskyld þá tengjast þau óhjá- kvæmilega í póltitíkinni," segir Þórður. Árni Bergmann, rithöfundur. Eystrasaltsríkin En það er þó fleira en efna- hagslífið eitt sem veldur óvissu um það hvernig samningarnir, sem nú hafa verið undirritaðir, verða túlkaðir. Þórður bendir á að það sem náðst hafi fram í þessari lotu sé samþykki við stækkun NATO. Hins vegar sé allt galopið með næsta skref sem sé aðild Eystrasaltsland- anna. Aðildarumsókn liggur fyrir hjá þeim og áhugi sé tals- verður á jákvæðum undirtekt- um við þær. „Þegar kemur að þessu erum við að tala um slag sem yrði mun erfiðari en sá sem var verið að taka núna. Það er svo sem ekki gott að segja til um hvenær eða hvort kemur að þessum seinni slag því fyrirsjáanleg eru nokkur erfið ár við að fá þessi ríki sem nú ganga inn í NATO til að ganga kerfislega og pólitískt í takt við hin NATÖ-ríkin sex- tán,“ sagði Þórður. Hann segir því margar liættur leynast á ör- yggismálasviðinu og líklegt að enn gefist tilefni til eftir nokkur ár að lýsa yfir endanlegum lok- um kaldastríðsins - eða endur- lífgun þess. Áhrif á íslandi Samstarfssamningurinn sem unndirritaður var í París í fyrradag hefur engin bein áhrif hér á íslandi. Þannig munu eft- irlitsfulltrúar frá Rússlandi t.d. ekki verða staðsettir í Keflavík, heldur einungis á stærri stjórn- stöðum hernaðarlegum. Þórður Ægir telur þó einsýnt að um ákveðin tímamót gæti orðið að ræða gagnvart varnarstöðinni á Miðnesheiði. Ástæða er sú að ísland hefur notið talsverðrar sérstöðu og athygli í NATO vegna smæðar íslands c0 legu. Með því að Rússland hefur nú í raun fallist á inngöngu nýrra ríkja í NATO er líklegt að af því verði fljótlega. „Nú kemur hörku samkeppni um athygli inn í bandalagið, því þessi nýju ríki munu vilja sínar mann- virkjasjóðsframkvæmdir og til þeirra þarf að taka tillit í útdeil- ingu ýmiss varnarviðbúnaðar og annars," segir Þórður. Þetta gæti hugsanlega haft áhrif á stöðu íslands gavanvart NATO, en af ýmsum ástæðum höfum við viljað halda varnarstöðinni og því sem henni fylgir óbreyttri.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.