Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1982, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. JULI1982. Kurr í Eyrbekkingum og Stokkseyringum vegna seinagangs í „brúarmáiinu”: ÍBÚARNIR ORDNIR LANG- EYGIR EFTIR BRÚNNI „Ég tel aö þessi framkvæmd eigi eftir aö koma öllum Sunnlendingum til góöa og veröa mikil samgöngubót. Þess vegna er það okkur Eyrbekk- ingum mikiö undrunarefni að sam- gönguráöherra og ríkisstjómin í heild geti ekki tekið afstöðu í þessu máli, svo að þaö þurfi ekki að taka svo langan tíma,” sagöi Magnús K. Hannesson, oddviti Eyrbekkinga, í samtali við blaöamann DV. „Þetta ætti þó ekki aö þurfa aö koma Sunnlendingum á óvart vegna þess aö þessi ríkisstjóm hefur ekki veriö okkur svo hliöholl, sbr. steinull- armálið. Þegar þaö kom fram í vor aö Framkvæmdastofnun væri tilbúin aö leggja fram þrjár milljónir í þessa framkvæmd þá glaðnaði mjög mikið yfir Eyrbekkingum og öörom þeim er barizt hafa fyrir þessu brúarmáli í áratugi, en þessi framkvæmd var sett inn á brúarlög 1953 eöa ’54. Við Eyrbekkingar sáum loks hylla undir þessa framkvæmd sem skiptir sköpum fyrir okkur. Viö verðum aö flytja allt okkar hráefni til fisk- vinnslustöðva á Eyrarbakka um langan veg frá Þorlákshöfn. Þaö er gríðarlegur kostnaöarauki fyrir fisk- vinnslustöövarnar og er ekki á vanda þeirra bætandi frekar en ann- arra fiskvinnslustööva í landinu. Eg vona aö rikisstjórnin sjái hve þetta er nauösynleg framkvæmd og að viö þurfum ekki aö biða lengur,” sagöiMagnús K. Hannesson oddviti. -GAJ. afla sínum i Þorlákshöfn og þaöan hefur síðan orðiö aö flytja hráefniö langa vegalengd meö bifreiðum til Stokkseyrar og Eyrarbakka. Meö til- komu brúar yfir ölfusárósa myndi flutningsleiðin frá Þoriákshöfn stytt- ast gífurlega og hagur byggðar og út- geröar á þessum stööum vænkast mjög, a.m.k. aö mati stuðnings- manna brúarinnar. Hreyfing virtist vera aö komast á málið í vor þegar stjórn Fram- kvæmdastofnunar meö þrjá þing- menn Sunnlendinga í broddi fylking- ar, þá Eggert Haukdal, Steindór Gestsson og Þórarin Sigurjónsson bauöst til að lána þrjár milljónir króna til þessarar framkvæmdar þannig aö lagning vegar frá Eyrar- bakka aö Osey ramesi gæti hafizt. Steingrímur Hermannsson, sam- gönguráöherra, lýsti síöar þeirri skoöun sinni í blaðaviötali aö ekki væri tímabært að ráðast í þessa veg- arframkvæmd strax. Eins og kemur fram í viötölum hér viö nýkjöma oddvita á Eyrarbakka og Stokkseyri þá eru íbúar þessara bæja ekki ánægöir meö þessa stöðu mála. -GAJ. Vaxandi óþolinmæði er tekin að gæta hjá ibúum Stokkseyrar og Eyr- arbakka, samkvæmt heimildum DV, vegna hversu lítiö miðar í áratuga gömlu baráttumáli þessara staöa fyrir því að lögö veröi brú yfir Ölfus- árósa. Sökum lélegra hafnarskilyröa viö Stokkseyri og Eyrarbakka hafa bát- ar frá þessum stöðum oröið aö landa „Ríkisstjómin ekki veríð hliðholl okkur Sunn- lendingum” — segir Magnús K. Hannesson, oddviti Eyrbekkinga Höfnin við Eyrarbakka. Léleg hafnarskilyröi þar gera það oft að verknm að bátar þaðan verða að landa afla sínum í Þorlákshöfn og þaðan þarf síðan að keyra hann langan veg á bifreiðum tfl verkunar í fiskvinnsiuhúsum Eyrbekkinga. „Munum þrýsta á stjórnvöld” — segir Margrét Frímannsdóttir, oddviti Stokkseyringa „Þetta er mikiö nauösynjamál fýrir þróun byggðar og útgerðar hér og viö viljum fá brúna sem allra fyrst,” sagði Margrét Frímannsdótt- ir, oddviti Stokkseyringa, í samtali viö fréttamann DV. Margrét sagöist telja þaö mjög mikilvægt að því yröi ekki frestað að leggja veginn aö fyrirhuguðu brúar- stæði. „Þaöhlýturaöflýtafyrirloka- framkvæmdunum aö vegurinn veröi lagður strax,” sagöi hún. „Þetta er mikið hagsmunamál sem snertir allan byggðakjamann á Árborgarsvæðinu svonefnda,” sagöi hún. „Við Stokkseyringar munum hafa samstarf viö Eyrbekkinga um að vinna aö framgangi þessa máls og munum þrýsta á stjórnvöld um aö vegurinn verði lagður hið fýrsta,” sagði Margrét Frímannsdóttir að lokum. -GAJ. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði SUNNUDAGUR - DAGUR El MEIR Mikið skelfing var Þjóðvfljinn þunnur í roðinu á sunnudaginn. Þar var hvergi að finna neitt um „Stjórn- mál á sunnudegi” né heldur aðra stjórnmálaumræðu. t blaðinu var ekki einu sinni að finna stafkrók um fyileríisferðir ungkomma; en mynd- skreytt frásögn af einni slíkri ferð bar uppi blaðið einhvem sunnu- daginn fyrr í mánuðinum. Ætli þessir i fáu aiþýðubandalagsmenn sem geta haldið á penna séu allir í útlöndum oig ungkommamir komnir í bindindi eftir séniversferðina frægu? Eða er annað sem veldur? Heiftin, sundrungin og óánægjan var síik innan Alþýðubandalagsins eftir hrakfarir flokksins í sveitar- stjóroarkosningunum, að Þjéðvfljinn neyddist til að leyfa mönnum að tappa af á síðum blaðsins. Að öðram kosti hefði allt sprungið í loft upp með háum hvelli. Ólafur friðar- postuli Grímsson reit grein um stjóromál á sunnudegi og fór þar með ófriði að Svavari formanni. f framhaldi af því ákváðu prestar að halda þing og ræðd-um friðarhreyf- ingar. Næst ruddisf Garðar sjó- maður Sigurðsson fram á sunnu- dagssíðu Þjóðvfljans - og hreytti ómældum skit i Ólaf friöarpostula. Prestar ákváðu þá að friðarstefna þeirra færi fram norður á Hólum en ekki i Skálholti. 1 veikri von um að drepa innan- flokksdeilunum á dreif mundaði Ragnar fjármálaráðherra penna sinn í sunnudagsstjóramálum Þjóð- vfljans og lýsti með fjálglegum orðum árangrinum af störfum ríkis- stjóroarinnar: Landið að sökkva í skuldum og atvinnuleysi á gægjum við næsta horo. Viðbrögðin við sunnudagshugvekju ráðherrans urðu þau, að ungkommar birgðu sig upp af séniver og lögðust út í óbyggð- um þar sem þeir drukku frá sér allt vit. Munu fæstir þeirra hafa þurft miUð. Einum tókst þó að smefla af nokkrom myndum fyrir Þjóðvfljann áður en óminnishegrinn leysti hnnn undan flokkslegum þjáningum. Prestaþingið á Hólum felldi bindindismál út af dagskrá en deflur um friðarmál risu þar hátt. Enn kemur sunnudagur á síðum Þjóðviljans og kirkjusíða þeirra Alþýðubandalagsmanna lögð undir innbyrgðis vopnaskak að venju. Nú er það Ásmundur verkalýðsforingi sem bítur í skjaldarendur, stekkur hæð sina í öllum herklæðum og varpar spjóti sinu af afli inn í miðjar herbúðir óvinarins — sjálfar rit- stjóraarskrifstofur Þjóðviljans. Jafnframt leggur Asmundur ör á streng og sendlr rakleltt til flokks- bræðra sinna í Eyjum og viðar. Prestaþingið sameinast um að biðja fyrirfriði. Þegar hér er komið sögu hefur útbreiðsla Þjóðvfljans á sunnu- dögum aukist að mlklum mun. Óbreyttir flokksmenn spyrja hver annan furðu lostnir, hvort það geti verið að það eigi að breyta Þjóðvilj- anum í þeirra eigið málgagn? Flokksherrarnir sem öliu ráða voru hins vegar áhyggjufullir. Þótti sem þarna hefðu þeir eldar verið kveiktir er erfitt gæti reynst að slökkva. Er jafnvel talið að leitað hafi verið álits háttsetts manns hjá Brunabóta- félaginu. En af sellufundum þessum fréttist ekkert út til almennra lesenda Þjóðvfljans. Þeir biðu spenntir eftir næsta sunnudagsblaði. Hver skyldi leggja undir sig stjóro- mál á sunnudegi í þetta sinn? Blaðið var rifið út þegar það barst á blað- sölustaði síðastliðinn laugardag. En mikfl urðu vonbrigðin þegar það kom í ljós að þaraa var ekki að finna staf um st jóromál á sunnudegi. Ef undan er skilið smáskítkast ung- komma í garð vinstri meirihlutans heitins, fyrir að sinna í engu hús- næðlseklunnl i Reykjavik, var allt slétt og feflt á siðum sunnudags- blaðsins. Burðarásinn i blaðinu var viðtal við biskupinn yfir tslandi um fríðarmál. Viðtal þetta bar svohljóð- andi fyrirsögn yfir þvera síðuna: „Slíöra þú sverðlð”. Dyggir Iesendur sunnudags- Þjóðvflja horfa nú fram á tfl- breytingarlausar helgar þar sem fátt verður til að gleðja andann. Fyrst var Flosi höggvinn og svo fór hin skemmtisíðan sömu leið. Svarthöföi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.