Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Ágúst-heimilisbókhaldið: Lægst meðal tal hjá sex manna fjölskyldu — tveggja manna f jölskylda lægst síðast, hæst nú Upplýsingaseölar til samanbnrðar á heimiliskostnaöi voru fleiri í ágúst en í júlí, eftir því sem fleiri seölar berast okkur er uppgjör marktækara. Sumar- leyfi bókhaldara hafa þó enn áhrif á þátttöku og útkomu. Við greindum frá því í gær á neytendasíðunni aö landsmeðaltal matarkostnaðar hafi hækkað eftir okkar tölum um 5,8%. Meðaltal eftir fjölskyldustærðum er nokkuð öðruvísi fyrir ágúst en það var mánuðinn á undan. I júlí hafði tveggja manna fjölskylda lægsta meðaltal í matarkostnaði, en í ágúst kemur sama fjölskyldustærö út með hæsta meðaltal. Við ætlum aö birta hér tölur fyrir báða mánuðina til samanburðar: Meðaltal eftir fjölskyldustærð. Matur og hreinlætisvörur. \gúst '82 veggja manna fjölskylda meðaltal kr. 1.247,- riggja manna fjölskylda meðaltal kr. 1.081,- jögurra manna fjölskylda meðaltal kr. 1.105,- imm manna fjölskylda meðaltal kr. 1.101,- :x manna fjölskylda meöaltal kr. 957,- ömannafjölskylda meðaltal kr. 1.125,- iu manna fjölskylda meöaltal kr. 1.022,- W'82 veggja manna fjölskylda meðaltal kr. 820,- riggja manna fjölskylda meðaltal kr. 821,- jögurra manna fjölskylda meðaltal kr. 1.117,- imm manna fjölskylda meöaltal kr. 1.957,- ;x manna fjölskylda meðaltal kr. 1.006,- lömannafjölskylda meðaltal kr. 1.053,- Hælsta meöaltal fyrir einstakling er kr. 1.247, í tveggjamanna fjölskyldu er lægst kr. 957, í sex manna fjölskyldu . Mismunurinn er30.3%. Þegar litið er á lægsta meöaltal í júlí er munurinn 52%. Flestir seðlar bárust frá fjögurra manna fjölskyldum og eftir kenningunni ætti sú útkoma að vera einna marktækust. Meðaltalsút- koman h já þeirri f jölskyldustærð er kr. 1.105. Upphæðir á seðlum frá fjögurra manna f jölskyldum eru ákaflega mis- jafnar og rétt að líta á þær hæstu og lægstu. Ein fjögurra manna f jölskylda á Norðurlandi hefur meöaltal í matar- kostnaði kr. 565, sem er lægsta talan í þessumflokki. Hæsta talan sem viö höfum frá fjög- urra manna fjölskyldu er kr. 1.980, á einstakling (kr.1.415,--j.Þarnaer geysi- mikill munur á matarkostnaði, þó um sömu fjölskyldustærð sé að ræða. Þessir upplýsingaseðlar eru báðir frá fjölskyldum á Norðurlandi. Þegar við svo lítum á tölur frá fimm manna fjöl- skyldum er þaö sama upp á teningn- um. Ein fimm manna fjölskylda á Austurlandi kemst af með mat og hreinlætisvörur fyrir kr. 601, fyrir hvem einstakling. En einstaklingar innan sömu fjölskyldustærðar þurftu kr. 2.017 í síðasta mánuði hjá fjöl- skyldu sunnanlands. Mismunurinn á hvað þessar tvær fjölskyldur, sömu stærðar, þurfa til matarkaupa er kr. 1.416. Margir em ósáttir við lágt meðaltal í matarkostnaði, sem við reiknum út hér mánaöarlega eftir innsendum upplýsingaseðlum. En eins og sjá má á ofangreindu er ákaflega misjafnt hvað fólk kemst af með fáar eða margar krónur til matarkaupa mánaðarlega. Þaö er meðaltalið sem við reiknum út. Tökum dæmi í framhaldi af því sem sagt er hér áður: Einn einstaklingur eyðir kr. 750, í mat á mánuöi, næsti eyðir kr. 2.000. Meöaltalið er þá kr. 1.375. Síöan er þaö hvers og eins að meta hvor talan, tvö þúsund krónur eða sjö hundruð og fimmtíu er raunhæfari þegar hann roetur eigin eyðslu. -ÞG Upptýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér oröinn virkur þátttak- andi i upplýsinganúðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjðlskvldu af sðmu stærð og yðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt heimilis- txki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í september 1982 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað • kr. Alls kr. FÖSTUDAGSKVÖ LD IJI5HUSINU11JI5 HUSINU OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 I KVOLD Nýjar vorur í öllum deildum OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9-12 MATVÖRUR RAFLJOS FATNAÐUR REIÐHJÓL HÚSGÖGN RAFTÆKI Jli f #■ ■ ■ m l_ A A A A A A , Jón Loftsson hf __ Hringbraut 121 B e5 CŒI a'ÍMMElOr, , x E E5 E CL3 EJQUaqrP'T^! ^i i—- i—. LJ i—i i ,J í—l iq j y uaiFiiauuHiiwiiiaiÍ!,, Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.