Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982. 13 / sameinuðu þingi sitja allir þingmenn — en mætti ekki kjósa til deilda með mismunandi hætti? fulls, en getur sent þau óðalsþinginu til baka með athugasemdum. Ef óöalsþingið fellst ekki á athuga- semdir lögþingsins og deildirnar ná ekki saman fara frumvörpin til Stórþingsins, sem getur samþykkt frumvarpið með 2/3 atkvæða. En þótt Alþingi skipti sér í deildir eins og norska Stórþingið, þá er vald- svið þingdeildanna sótt til fyrirmynda frá danska Þjóðþinginu, en meðan danska Þjóöþingið var skipt gat hvor þingdeildin fellt mál fyrir hinni og tekið sjálfstætt mál upp eins og hér. Deildaskiptingin komst ekki á hér á landi fyrr en með stjómarskránni 1874. Fram að því var Alþingi ein málstofa. Islendingar óskuöu sjálfir eftir deilda- skiptingu, m.a. til þess að forðast viss- ar hömlur á starfsemi þingsins, sem danska stjómin vildi gera. Of langt mál er aö fara út i þá sálma hér. Upphaflega sátu 6 konungskjömir þingihenn í efri deild af tólf og vom þvi stöðvunarvald þar. Konungkjörið var afnumið og landskjör tekið upp í stað- inn. Landskjör til efri deildar var afnumið 1934. Kjósamámeð misjöfnum hætti Nú segja andstæðingar deildaskipt- ingarinnar, aö það sé út í hött aö hafa tvær deildir, þar sem þær séu skipaðar eins. Því er þá til að svara, að ekkert kemur í veg fyrir að kosið sé með mis- jöfnum hætti til deildanna. Má t.d. hugsa sér, að til efri deildar sé kosið með hliðsjón af byggðasjónarmiðum en til neðri deildar með hliösjón af fólksfjölda, og taka þannig miö af Bandaríkjaþingi. Þá má hugsa sér að setja þá menn í efri deild, sem ekkert umboð hafa frá almenningi til þess að stjórna landinu, en gera þó kröfu um hlutdeild til þess í skjóli valda og em þar til nefndir forustumenn launþegasamtaka og at- vinnurekenda, formaður rithöfunda- sambandsins og Agnar Guðnason. Með þessum hætti mætti setja umræður þessara manna undir opinbert eftirlit með því að láta orðaskipti þeirra og ráðherra fara fram í opinni málstofu, og jafnframt má ákveða í stjórnarskrá vald þessara mann til áhrifa. Meö þessum hætti er efri deild Irska þings- ins skipuð. Enn má svo benda á, að auðvelt er að koma í veg fyrir „stjómskipulegar sjálfheldur” með því að taka alfarið upp norska kerfið. Norðmenn láta vel af því. Það fylgir deildaskiptingunni nefni- lega sá kostur, að þingið verður virk- ara. Hægt er aö afgreiða helmingi fleiri mál með þvi að ræða sitt máliö í hvorri deild, málsmeðferð verður' öruggari af því að smærri nefndir kanna málið. Ef hins vegar á að sameina deildim- ar þá verður málsmeðferð öll stirðari, nefndirnar hljóta að stækka og vinna því hægar. Með öömm orðum: þing- haldið verður dýrara. Margt fleira mætti tína til. Hættan er hins vegar sú að stjórnmála- flokkarnir semji um þetta sín í milli með hliðsjón af stundarhagsmunum sínum. Slíkt myndi ekki gerast, ef kvatt væri samantil þjóðfundar. Haraldur Blöndal. á íslandi Friðarhreyfing lenínista, sem bentum á vitleysumar árum saman, var lítt hlustað og reynt að gera orð okkar tortryggileg af því að aðrir, s.s. kínverskir ráða- menn eða kunnir kratar, sögðu það sama. Friðarhreyfingamar eru flestar; andófssamtök gegn kjarnavopnumj einum. Styrkur þeirra liggur í því að reiði | fólks og Kræösla við vopn þessi getur breytt stefnu hernaðaryfirvalda og minnkað hættuna á notkun þeirra. En veikleikinn liggur í því að friður fellur hvorki né stendur með kjarna- vopnum. Heildstæð friðarhreyfing verður að taka til alis ófriðarins sem risaveldin standa í eöa að baki nú á þessari stundu; þær verða að berjast fyrir lífvænlegri varaastefnu lands og sjáifstæði í varaarmálum; þær verða að berjast fyrlr að sem flestir eigi möguleika á að lifa af ófrið og lifa eftir hann, hversu alvarlegar afleiðingar hann kynni að hafa. Til eru þeir sem þetta vilja innan friðarhreyfinganna, en margir vilja á ekkert slíkt heyra minnst og láta jafnvel eins og aðalatriðið sé að afvopnast einhliða og Ieggjast á grúfu. íslensk friðarhreyfíng Friðarhreyfingin er margþætt. Það sést best á því að hún spannar yfir vítt pólitískt s við. Hér á landi hafa allmargir látiö að því liggja að stofna ætti til breiðrar hreyfingar í þágu friðar. Þar era jafnt prestar, róttæklingar, fram- sóknarmenn, kratar, sjálfstæðis- menn og launaðir eða hugsjóna- blindir talsmenn Kremlar. Það væri ef til vill einhvers virði ef slík hreyfing andæföi kjamavígbúnaði beggja risaveldanna eingöngu. En heldur vildi ég sjá víðtækari stefnu og þá ef til vill töluverða verkaskipt- ingu innan hreyfingarinnar. Nú er landsráðstefna SHA fram- undan. Hún gæti ef til vill hlevpt lífi í umræðu um friðarhreyfingu. Eg legg til að ráöstefnan ræði þessi mál og geri að sínum: 1. Andstöðu við nýju bandarisku kjamavopnin í Evrópu og kröfur um að Sovétmenn eyði SS—20 kerfi sinu um leið og bess er krafist af fiskveiðilögsaga okkar verði tryggt kjarnorkuvopnalaust svæði svo og lofthelgin. Á þetta sérstak- lega við um ferðir og stöðu kafbáta samanber ummæli Benedikts Gröndals um kafbátana við Austurland. 2. Kröfur um að yfirstjóm NATO upplýsi hverjar vamaráætlanir bandalagsins séu hér á landi — þær eru likast ekki til. Samtímis mætti taka undir McNamara- stefnuna í NATO en skv. henni á að leggja áherslu á venjuleg vopn í stað kjamavopna og tryggja að kjarnavopnum verði hvorki beitt að fyrra bragði né slík árás endur- goldin án samráös við andstæö- inginn. 3. Kröfur um tryggar al mannavarair á Islandi. Þaö felur í sér að úrtölum dómsdags- spámanna og bandarískra lækna sem miða afneitun sína á almannavörnum við bandarískar stórborgir er hafnaö með öllu og farið fram á sérstakt gjald á alla landsmenn. 4 .Fullur stuðningur við þjóðfrelsis- baráttu sem nær alltaf beinist á einhvem hátt gegn risaveldunum eða strengbrúðum þeirra. Hér er átt við Afganistan, E1 Salvador og Palestínu svo dæmi séu nefnd, — Pólland eða Puerto Rico. Geti stuðningsmenn SHA sameinast um þetta er líklegt að mun fleiri geti það. Deilumál eins og aðildin að NATO verður eftir sem áður í sviðsljósinu þó því yrði haldið utan við friðarhreyfingu að svo komnu máli. Hitt er svo annað mál að baráttumenn fyrir friði komast ekki hjá að krefjast úrsagnar úr bandalaginu. Fyrr- greind fjögur mál eru þó gott framlag til friðar og nothæft skref til aðbyrjameð. Ari T. Guðmundsson. Aðeins grWir i anga hermálsins — svo som Heiguvíkurmáiið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.