Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982. D SKRIFA AD UFA” Margeirsson í helgarvtðtali hennar í læsilegan texta. Eg las í gegnum dagbækumar, bréfin og úr- klippurnar, raðaði þeim saman, gróf upp fyrrverandi mann hennar Henrik, sem býr í Osló, og tók viðtöl við hann. Ræddi við dóttur hennar, Sif, hringdi út og suður, hlustaði á viðtalaupptökumar frá Kaupmanna- höfn en allt kom fyrir ekki — ég fann ekki formið. Svo var það einn daginn að þeirri hugmynd laust niður að láta Guð- mundu tala beint til lesandans og þurrka skrásetjarann út. Skyndilega varð mér Ijóst að þetta var eina lausnin. Þannig höfðum við unnið saman á einlægan og trúverðugan hátt og hún haföi gefið sig alla i þá vinnu og gert mér kleift að sjá inn i sálu sina og lifa lifi sínu. Eg man að heilu eftirmiðdagana sátum við ým- ist saman og hágrétum eða veltumst um af hlátri. Þetta var makalaus tví- leikur sem ég held aö ég muni aldrei upplifa aftur. Ég fór því smám saman að hugsa eins og hún, allt að þvi lifa eins og hún. Þá tólf mánuði sem ég vann að bókinni lifði ég lífi hennar í sextíu ár. Hugarþel það sem Guðmunda hafði gefið mér í samvinnunni fleytti mér áfram í textanum og gerði mér kleift að færa líf hennar í orð líkt og hún hugsaði þau; skrifaði út frá hennar eigin brjósti. Og ég mun alltaf dást aö Guðmundu fyrir þann þrótt og hug- rekki sem hún hafði í slíka vinnu, að ýfa upp sár sem tekið höfðu alla æv- ina að gróa, geta endurlifað einstaka atburði með lifandi minni og leggja sannleika lifs sins á borðið. Enda sagöi hún við mig þegar ég fór fram á að skrá lífssögu hennar: „Já, með einu skilyrðL Að við segjum sann- leíkann!” — Hyggurðu á fleiri endur- minningarbækur, álíka þeirri sem fjallar umlíf Guðmundu? „NeL ég held ég eigi mjög erfitt með að skrifa aðra eins bók og Lífs- játningu. Þaö þarf að minnsta kosti mikið til að svo verði. Ástæðan er einkum sú að samvinnan var svo ein- stök á milli okkar Guðmundu, og ég held að ég komist aldrei i þann sama ham og ég var í þegar ég skrifaöi Lífsjátningu.” Sfíkarbækur eru lygasögur — Hvað finnst þér almennt um ís- lenskar æviminningabækur? „Ja, ég get bara sagt það aö þessi bók min um Guðmundu er hreinlega skrifuð til höfuös íslenskum ævi- sögum fyrr og nú. Mér hefur fundist flestar íslenskar endurminninga- bækur svo einstaklega falskar og smekklausar. I Lífsjátningu er reynt að lýsa margflóknu lifi einnar per- sónu, og guð minn almáttugur, hvað er eðlilegra en þar sé þreifað á nokkrum neikvæðum persónuein- kennum viðkomandi einstaklings? Og ég held að almenningur hafi kunnað að meta þá viðleitni. Hvað er falskara en að fela þá en tíunda einungis það góða sem viðkomandi hefur gert um ævina? Hvað er smekklausara en að hylma yfir mis- tök hans og misgjörðir en greina einvörðungu frá velvilja hans og afrekum? Ef þessi smekkleysa og þetta fals er stundað í ævisagnaritun — sem mér hefur fundist hafa verið allt of mikiö um á þessu sviði hér- lendis — þá held ég að mun betra sé heima setið en af stað farið. Það er hrein óvirðing viö þann sem skrifaö er um, að tæpa aðeins á hinu góða í honum, en gleyma afganginum. Slíkar bókmenntir eiga einfaldlega að nefnast lygasögur — og þær eru þaö.” — Vikjum að ritstörfunum og eðli þeirra. Hvað þýðir það í þínum huga aðsinnaþeim? „Fyrir mig er aö skrifa að lifa. Ef ég á að líta á mig sem rithöfund, þá vil ég segja, að einhver ótrúleg þörf fyrir að skapa, sem ekki er hægt að skilgreina, ýti mér út í þetta. En hvað er sköpun? Og ég trúi þvi að það hafi allir einhverja óskilgreinda þörf innra með sér sem þeir verða að fá útrás fyrir. Ef menn geta hinsveg- ar ekki veitt þessari þörf útrás þá upphefst, að ég held, óskapleg van- liðan innra með fólki. Og nú ætla ég að vera dálítiö heim- spekilegur um stund og þruma í fá- umorðumút minnilifsskoðun: Þegar fólk tekur að hugsa um til- gang lífsins og eðli, þá hlýtur það fyrst að merkja ringulreiðina sem rikir allt í kringum mennina, og þá er ekkert eðlilegra en að þeirra æðsta ósk verði aö fá röð og reglu á líf sitt. Og lausnimar eru margar. Og þótt þær kunni að þykja ólíkar inn- byrðis þá eiga þær allar rétt á sér, svo framarlega sem það er mannin- um til góðs. Menn geta farið að trúa, hellt sér út í pólitík og tekið að trúa á kenningar, sumir flýja vitanlega út í dóp og brennivín. Listamenn sem upplifa kannski þetta allt reyna, ef þeir taka sjálfa sig alvarlega, að útskýra umhverfi sitt og tilveru með því að teikna á blað, skrifa á örk, höggva i stein eöa annað. En með þvi að umbreyta ákveðnu efni á þennan hátt eru lista- menn að reyna að átta sig á lífi sínu og öðlast öryggi í allri þeirri ringul- reið sem viðgengst í kringum þá. Það að vera listamaöur er i mínum huga að vera glöggur áhorfandi, skýr skil- greinandi og vandaður handverks- maður. Þess vegna er öll mikil sköpun undirorpin greind og ögun.” Bókin á að fjal/a um manninn — Þú talar nokkuð um þörfina fyrir að skrifa. Heldur þú að hún muni endast þér allt þitt lif eða mun hún dvína meðárunum? „Eg held að ritþörfin sé eitthvað sem verður alltaf í mér og muni fylgja mér allt mitt líf. ET ég færi að flýja þessa þörf þá er allt eins vist að ég fylltist örvilnan. Á það vil ég ekki hætta. En vissulega er spumingin um rit- höfund ekki bara spuming um að geta skrifað, heldur einnig um pen- inga. Ef menn ætla aö lifa sem rit- höfundar, þá verða þeir að geta selt býsnin öll af bókum. Og það er eng- inn hægðarleikur. Það er ekki auð- velt að skrifa bók sem fjöldanum fellur í geð, það vita allir. Og góðar bækur eru oft illseljanlegar og öfugt. Það er samt ekki þar með sagt, að svo illa sé farið fyrir bókinni aö sölu- möguleikar stjómi skrifum rithöf- unda hérlendis. Það kann að vera í sumum tilvikum, en ég vona að það sé aö miklum minnihluta. Eg held aö þeir sem skrifi bækur af þörf séu miklu fremur að gera slíkt af ein- skærri hreinskilni við sjálfa sig heldur en vegna peninganna. Eg vona að minnsta kosti að svo fari ekki með mig að peningar ráði mínu stílbragði. Við skulum heldur vona að það verði öfugt.” — Hvað á bók að geyma svo frómt séspurt? „Hún á að geyma eitthvað kjam- yrt um manninn. Hún á fyrst og fremst að fjalla um manneskjuna. Annað er málþóf sem kemur fesand- anum ekkert við. Manneskjan á að vera miðpunktur ellegar hringmiðja þess sem skrifað er um. Og það á að lýsa tilfinningum og manngerð henn- ar svo náiö og svo skilmerkilega að lesandinn sjái eigið lif í skuggsjá sögupersónanna. Lesandinn á aö geta kynnst þessari manneskju eins vel og um raunverulegan einstakling væri að ræða og hann á aö geta þekkt hana og hugsað til hennar allt sitt líf. Hún á að verða honum minnisstæð, ekki sem einhver afreksmaður eöa kynjavera, heldur sem vera gædd til- finningum, skynfærum og háttemi. Þannig á bók að vera. Hún á að fjalla um manninn, um okkur sjálf eins og við erum i veruleikanum hvert svo sem form hennar er.” — Við höfum varið miklu plássi í rithöfundinn í þér. Víkjum að manninum án stílvopnsins. Hvemig virðirðu fyrir þér lífið? , JVfér finnst lífið hættulega stutt — og dýrmætt. Og þar eð ég trúi engan veginn á framhaldslíf þá nenni ég ekki að eyða því í eitthvert daglegt brauðstrit. Eg vil lif a lifinu lif andi og upplifa það eftir minum eigin leiðum. Ég hef til að mynda ekki eirð í mér til að stunda vinnu frá níu til fimm. Það horfir við mér sem afkáraleg eyðsla á lífi. Eg vil geta ferðast sem mest, koma sem viðast við og njóta þess sem völ er á í henni veröld. En þetta em forréttindi. Og ég játa það fúslega, að ég er geysilegur lifsnautnamaöur. Mér leiöist ládeyða og einfaldir lífshættir. Ég hata kotungshátt, smámunasemi og þröngsýni. Og hef skömm á óþarfa hófsemi. Helst vil ég eta öll epli Edengarðs. Allt sem mikill kraftur er í og mikiö líf í er mín dásemd. Og síst vil ég láta mata mig á því sem ég á annað borð á kost á að kanna sjálfur. Og helst vil ég upplifa hlutina en ekki bara skoða þá.” Hvort byhJngarbroddurinn srtur enn eftir ífófírí.__ — Þú gefur út tvær nokkuö ólikar bækur fyrir næstu jóLHvorug þeirra er hrein skáldsaga. Má ekki vænta einnar slíkrar frá þér á næstu árum? ,,Ég er búinn að ganga með hug- mynd að ákveðinni skáldsögu í maganum í ein fimm ár. En það er bara með skáldsögu, að svo fjandi erfitt er að búa tU eina svo góða að hægt sé að haf a gaman af hennL Góð skaldsaga að minu mati þarf að vera margbreytileg í uppbygg- ingu, flókin í hugsun en einföld að forminu til. Og sist mega átök fylgja því að lesa hana. Þegar svo til alls þessa er litið, þá hrekkur maður svo í kút að hugsunin ein um að skrifa skáldsögu verður til þess að manni fallast alveg hendur.” — Hvað gengurðu með í kollinum semúr ættiaðverða skáldsaga? „Þaðer ummínakynslóð.hvemig hún varð fyrir þessum aldahvörfum á árunum þegar hún var að vaxa úr grasi og hvað úr öllu þessu fólki varð svo á endanum. Þaö held ég að sé nokkuð athygUsvert. Við vitum að þessi þjóðfélagsbylting hafði ofboðs- leg áhrif á mína kynslóð. Fólk varð altekið af þess'um nýja hugsunar- hætti og það er gaman til þess aö hugsa hvort eitthvaö af þessum byltingarbroddi situr enn eftir í fólki og hvort einhverjir hafi afneitað hwi- um að öllu leytL Þetta timabU er svo rosalega merkilegt i mínum huga að mér finnst fuH ástæða til að skrifa um það. Og leiöir þess fólks sem upplifði það einna helst, eru ekki síður athyglisverðar. En ég er einnig með margar aðrar hugmyndir í kollin- um.” -SER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.