Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 33
DV. FIMMTUDAGUR28. OKT0BER1982. 33 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Geir Haarde í prófkjör Geir H. Haarde, hagfræö- ingur hjá Seölabankanum, hefur ná ákveöið aö gefa kost á sér í prófkjör sjálfstæðis- manna í Reykjavík fyrir væntanlegar þingkosningar. Geir er núverandi formaður Sambands ungra Sjálfstæðis- manna. Hann telst tU and- stæðinga dr. Gunnars. Knappur fyrir- mannadregill heldur Framsókn ekki á mottunni Þegar Koivisto Finnlands- forseti kom hér á dögunum var að sjálfsögðu ryksugaður rauðl dregUlinn sem tignar- menn ganga eftir í heimsókn- um hér. Atvinnuveislufólk úr st jórnarráðinu veitti þvl helst atbygU að dregUUnn var nokkuð aukinn og endurbætt- ur. Þá rifjaðist upp heimsókn Kristjáns konungs 10. þegar hann kom hingað tU lands ásamt drottningu sinni hinn 18. júní 1936. Hermann Jónasson, forsætisráðherra og frú hans, stóðu fremst á Faxagarði og heilsuðu þau konungshjónunum fyrst. Á leiðinni upp eftir rauða dregiinum atvikaðist það svo að sögn, aö Hermann gekk á honum miðjum um stund. Hermann . var afburða myndarlegur maður og sómi að framgöngu hans. Þótti þó einhverjum miður að konung- ur varð stuttan spöl að víkja af dregUnum rauöa. Gekk hann þá utan hans viö hUð forsætisráðherra. Var ekki orð á þessu gert að neinu ráði. Einhverjir móðg- uðust fyrir hönd konungs. Sættust menn þó á að þetta væri fyrirboðiþess, aðFram- sókn myndi eftlr þetta halda sérámottunni. Ekki mun nú talið að sú fróma spá hafi nokkru sinni gengið eftir. Nýleg stækkun á dreglinum kemur að minnsta kosti i veg fyrir tUtakanlegt plássleysi, jafnvel þótt dig- urra fyrirfólk en Vigdís og Koivisto þurfi þar að deila rúmi. Sjónvarpið farið að huga að ára- mótaskaupi Undirbúningur að næsta áramótaskaupl sjónvarpsins er hafinn. Andrés Indriðason, Þráinn Bertelsson og Auður Haralds munu að þessu sinni sjá um skaupið. Andrés mun stjórna upptöku og Þráinn leikstýra. Skaupiö mun verða með hefðbundnu sniði. Áætlað er að upptökur hefjist 13. desember. Hver verður leik- listarstjðri? Utvarpsráð fjallaði í fyrra- dag um ráðningu leildistar- stjóra útvarps. Mun ráðið væntanlega segja álit sitt á málinu næstkomandi þrlðju- dag. Ráðningarvaldið er í höndum útvarpsstjóra. Sjö sóttu um leiklistarstjór- ann: Árni Ibsen, Eyvindur Erlendsson, Flosi Úlafsson, Hafliði Arngrimsson, Hall- mar Sigurðsson, Jón Viðar Jónsson og Öskar Ingimars- son. Óskar verður að teljast iíklegastur þar sem hann hef- ur verið starfandi leiklistar- stjóri frá því Klemenz Jóns- son hætti. Matthías upp- lýsir Danskinn Matthías Johannessen skáld og ritstjóri skrifaði grein í danska biaðið Ber- ingske Tidende I byrjun september síðastliðins. Grein Matthíasar var athugasemd við grein sem kona að nafni Mette Wings hafði skrifað. „Hún talar um norræn mál I grein sinni,” skrifar Matthías. „Og hver eru svo þessi norrænu mál? Auövitað bara danska, sænska og norska.” Gagnrýnir Matthías frúna fyrir að gleyma islenskunni og færeyskunni. „Ég vil mjög gjaman upp- lýsa frúna og aðra Dani, sem halda að Norðurlönd séu að- eins þrjú fyrraefnd lönd, aö íslenskan er best varðveitta norræna tungan,” segir rit- stjórinn. „Til að geta lesið hið forna norræna mál verða menn að kunna ísiensku,” segir Matthías meðal annars í greta stani. KristjánMár Unnarsson. Eldhúsinnréttingar úr eik hagstæðastar og vinsæiastar i dag. Jón Pétursson stendur við eina sem fram- ieidd er hjá J. P. Innréttingum. O V-mynd G VA Innréttingar ódýrari en fyrir tuttugu árum „Ýmsar breytingar hafa átt sér stað er varða útlit og efnisval innréttinga á þessum tuttugu árum,” sagöi Jón Pétursson húsgagnasmiöameistari er blm. gekk í smiðju til hans á dögunum. Fyrirtækið J.P. Innréttingar hf. var stofnað árið 1962 og var þá til húsa í þröngu húsnæði vestur í bæ. „Áður voru svo til allsráðandi á markaðnum innréttingar með renni- hurðum, sem alveg eru horfnar í dag. Fólk valdi áður nær eingöngu tekk og gullálm í innréttingar. Þá voru hurðir til dæmis ýmist spónlagðar eöa plast- lagðar, en nú eru flestar hurðir massíf- ar og svo til allar innréttingar smíðað- ar úr eik. Það er tískusveifla í þessu eins og öðru,” sagði Jón. Fyrirtækiö er nú til húsa í Skeifunni og þar er vélakostur og vinnuhagræð- tag með því besta sem hér gerist. Eldhúsinnréttingar frá fyrirtækinu hafa veriö fluttar út til nágrannalanda og í Svíþjóð hefur framleiðsla fyrir- tækisins fengið gæðamerkingu, (Möbelfakta) sem er staðfesting á aö gæðakröfur neytenda eru uppfylltar. „I dag framleiðum við allar innrétting- ar og þær eru þrisvar sinnum ódýrari, miðað við laun en þegar við byrjuð- um,” sagði Jón Pétursson. „Efnið er ódýrara og svo hefur hagræðingin bæði í flutningum og vinnu áhrif á kostnaðarverðið. Eldhúsinnréttingar kosta í dag á milli fimmtíu og áttatíu þúsund krónur. Og ef tekið er annað dæmi þá kosta baðinnréttingar um átján þúsundkrónur.” Við fyrirtækið starfa þrír starfs- menn við teikningar innréttinga og ráðgjöf fyrir neytendur sem koma með teikningar af húsakynnum sínum til þeirra. Engin svartsýni er í forráða- mönnum fyrirtækisins, þrátt fyrir aukinn innflutning innréttinga. „Við teljum okkur uppfylla kröfur ís- lenskra neytenda og verð á okkar framleiöslu er hagstæðara. Við höfum líka (rú á að fólk velji íslenskt,” sagöi JónPétursson. -ÞG Aðalfundur í kvöld Aðalfundur Samtaka um frjálsan út- varpsrekstur verður haldinn á Hótel Söguíkvöldkl.8. Auk venjulegra aöalfundarstarfa verður rætt um stöðuna í útvarpsmál- um. Frummælandi verður Gísli Baldur Garðarsson, lögfræðingur sem mun ræða um frumvarp Friðriks Sophus- sonar um frjálsan útvarpsrekstur og tillögur útvarpslaganefndar í lagalegu og pólitísku samhengi. Að sögn Magnúsar Axelssonar, for- manns Samtaka um frjálsan útvarps- rekstur, er mikill hugur í samtaka- mönnum um að f ylgja málum eftir. „Það er mikið á döfinni. Jafnvel alþýðubandalagsmaðui-inn í útvarps- laganefndinni talar um að það sé sjálf- sagt að gera róttækar breytingar á út- varpslögunum. Og allir nefndarmenn viöurkenndu í raun að rýmka ætti reglurnar. Við erum því bjartsýnir á að útvarpsrekstur verði senn í það minnsta frjálsari en áður.” Klæðningar ogviðgerðir á öllum gerðum bólstraðra húsgagna. Aklæði og leður fyrir- liggjandi. Bólstrun Bjarna Guðmundssonar Hólavegi 78 Breiðholti Símar 78020 — 71538 (Áður Laugarnesvegi 52). Rafsuðuvélar og vír Haukur og Ólafur Ármúla 32 - Sími 37700. TIL SÖLU Varahlutir og aukaútbúnaður á J.C.B. III —D 1978, opnanleg afturskófla. Snjóskófla. Olíuverk nýtt, afturdekk á J.C.B. felgum. Uppl. í símum 36135 og 44018. HÚSNÆÐITIL LEIGU Til leigu húsnæði fyrir tjaldvagna, húsvagna, bif- reiðar o.fl. Til greina kemur að leigja húsnæðið undir vörugeymslu. Upplýsingar í síma 85521. xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx X X X X X X X X X X X X X X X X X X X FRÁ CAPELLU - FRÁ CAPELLU Vetrarvara frá Klaus Stilman pils- sídbuxur-blússur-buxnapils CAPELLA KJÖRGARÐI, CAPELLA KJÖRGARÐI. x X x x x x x x x x x x x x x x x xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx TRÉSMIÐUR Fyrirtæki óskar eftir trésmiöi til starfa í um þaö bil 6 mánuöi viö innréttingasmíði til aðstoðar föstum trésmiði fyrir- tækisins. Fast mánaðarkaup. Lítil eftirvinna. Tilboð sendist auglýsingadeild DV Þver- holti 11 fyrir 5. nóv. nk. merkt: „Trésmiður 699”.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.