Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 13
DV. MANUDAGUR14. FEBRUAR1983. 13 margt sameiginlegt með, aö þegar þingmaöur tekur við ráöherrastörfum fellur umboð hans sem þingmanns niður og varamaður tekur við. Hér er reyndin sú að varamenn eru meira og minna á þingi fyrir ráðherra og báðir halda laununum fyrir þingstörf. Við hverja stjómarmyndun fjölgar ráðherrum og auk þess verður algeng- ara aö ráöherrar taki sér aðstoöar- mann eða jafnvel menn. Að hluta, til að vinna störf sem þeir treysta ekki ævi- ráðnum ráöuneytisstjórum fyrir, og hins vegar til að létta af sér eigin störfum, m.a. af því þeir gegna tveimur. Þá má nefna að varamenn taka oft sæti á þingi af litlu tilefni m.a. af því flakki þingmanna vítt og breitt um heiminn eru engar skorður settar. Þaö eru því margar leiðir nærtækar til þess að draga úr kostnaði viö þing- haldið sem vega þyngra en fjölgun þingmanna í 63, sem virðist eina leiðin sem samkomulag getur náðst um til þess að jafna atkvæðisrétt dálítið. Bráðabirgðalög Hvað eftir annað hafa ríkisstjórnir sett umdeild bráðabirgöalög og stöðugt er gengið lengra í að stjóma landinu meö slíkum lögum. Virtur lög- maður skrifar kjallara í DV þann 26/1 og telur þar að í þessum efnum sem öðrum breyti tillögur stjórnarskrár- nefndar litlu og því miður er mikiö til í þessu varðandi útgáfu bráðabirgöa- laga, aö ööru leyti er fullyrðingin röng. Hér er reyndar um £itt af þeim atriöum að ræða sem fram koma tvö álit um. Fulltrúar Alþýðuflokksins leggja til að heimild til útgáfu bráöabirgðalaga verði felld niður, enda þingmenn á launum allt áriö og vandkvæðalaust að kveðja þing saman með stuttum fyrir- vara. Af einhverjum ástæðum hefur lögmanninum sést yfir að geta álits Alþýðuflokksins, svona rétt eins og þegar Morgunblaðið fjallar um mál þeirra sem blaöið vill síður vekja athygli á. Heimild til útgáfu bráða- birgöalaga er frá þeirri tíð aö þing sat aðeins skamman tíma og samgöngur voru aö mestu á hestum. Slík heimild mun fátíð eöa óþekkt í stjómarskrám á Vesturlöndum, enda með öllu óþörf. Eignarréttur Lengi hefur verið deilt um hversu langt eignarréttur eigi að ganga og þá alveg sérstaklega varðandi lönd. I þeim efnum er ekki skýrar ákveðið í dag en svo að Hæstiréttur hefur nánast auglýst eftir lögum þar um, sbr. dómur um Landmannaafrétt. Fárán- legar bætur eru áformaðar vegna Blönduvirkjunar og stöðugt er deilt um hve djúpt niður í jöröina svokallaöir landeigendur eiga. Samkvæmt núgild- andi reglu fer vart milli mála að bónd- inn á Kirkjubóli átti Vestmannaeyja- gosið. Víðar er eignarréttur á reiki. Algengt er að stjórnvöld geri upp- tækan gengismun af fiskbirgðum og út- hluti síðan að eigin geðþótta. Síðustu dæmi þar um er margendurtekin upp- taka á hluta af væntanlegum gengis- mun af skreið, sem síðan er dreift til bjargar vonlausustu fyrirtækjum eftir smekk jafnvel einstakra ráðherra. Hvað myndu eignarréttardýrkendur segja um að gengismunur af álbirgð- um væri notaður til þess að styrkja járnblendið og hvað kemur til að gengismunur af prjónavörum er ekki notaður til þess að greiða fyrir útflutn- ingi á dilkakjöti? Stjórnarskrámefnd skilaði áliti í þrennu lagi um eignar- réttinn og eignarnámsbætur, sem allar ná heldur skammt. Fróðlegt væri að sjá „kjallara” frá virtum lögmönnum um þessi efni og fleiri kynnu að hafa skoðun á þeim. Val frambjóðenda — Persónuval Svo virðist sem virðing þingmanna fari síþverrandi, en ekki fer þó milli mála að almenningur hefur valið sér þessa þingmenn sem fá síðan afleitan vitnisburð. Flestir þingmenn em nú valdir í svokölluðum prófkjömm, en þeim fjölgar ört sem hallast að því að þau séu ekki heppilegasta lausnin á framboðsmálum. Eitt af því sem stjómmálamenn hafa marglofsungið er persónuval í kosningum, þ.e. að kjósendur raði sjálfir þegar þeir kjósa. Sú aðferð hefur víða veriö tekin upp, sums staðar tvöföld kosning, val á lista og einnig frambjóöendum. Sjálfsagt hefði verið að setja í nýja stjórnar- skrá eða kosningaiög ákvæði um sem víötækast persónuval, þá yröi ekki um- deilt hver raðar á listann. Þingmenn einir geta breytt stjórnarskránni Tillagan að nýrri stjómarskrá, sem loks hefur verið lögð fram, er að sjálf- sögðu ekki óumdeilanleg fremur en önnur mannanna verk. Ekki ætti að vera umdeilt að í flestu stefnir hún í rétta átt. Við allmargar greinar koma fram fleiri en ein tillaga. Þar verður Alþingi að skera úr um. Hér hefur aðeins verið fjallað um fá atriöi sem ætla mætti að almenningur léti sig varða, en þau eru miklu fleiri. Almenningsálitið gæti haft veruleg áhrif á gerðir og skoðun þingmanna við afgreiðslu nýrrar stjómarskrár en til þess þarf fólk aö vera upplýst og látafrá sérheyra. Nú er gert ráð fyrir að ákvörðun um þingrof verði í höndum Alþingis en ekki eins manns, forsætisráöherra, sem segja má að hafi erft þennan mikilsverða rétt frá kónginum. Ennfremur að Alþingi starfi í einni deild en ekki tveimur sem miðaöist við að konungurinn veldi í aðra. Þá er gert ráö fyrir að Alþingi láti nefndir fylgjast með að ákvörðunum þess sé framfylgt og þannig mætti lengi telja. Nú em liðin 40 ár síöan þingmenn hefðu átt aö koma því í verk að setja lýðveldinu stjómarskrá, en það geta þeir einir gert eftir þeirri sem nú er í gildi. Víki þeir sér undan þessari frum- skyldu sinni á þeirri forsendu að þeir þekki ekki málið nógu vel, mun þeim fjölga sem lítils meta þá. Því mega þeir illa við og þjóðin alls ekki. Ólafur Björasson, Keflavík. Bandalag jafnaðarmanna — HVERNIG STJÓRNKERFI? Þeim er ætlað það göfuga hlutverk að brjótast með einum eða öðrum hœtti inn i... . Framkvæmdastofnun.' Nýjar leiðir Við viljum fara öðm vísi að. Við viljum aðskilja gersamlega lög- gjafarvalds (Alþingis) og fram- kvæmdavalds (ríkisstjómar). Það þýðir einfaldlega að þegar einstakling- ar, konur eða karlar, eru kosnir til þjóðþingsins, þá er þeirra starfi að setja almennar leikreglur, og það sem ekki skiptir minna máli, að hafa eftirlit með því að þessum sömu leik- reglum sé fylgt. Þetta eiga að vera störf löggjafarsamkomunnar og önnur ekki. Alþingi á að hafa eftirlit með stofnunum framkvæmdavaldsins en ekki taka beina þátt í stjómun þeirra. Ef valdi er misbeitt í ráðuneyti eða í hverri annarri stofnun framkvæmda- valdsins, ef fjármagni er misskipt, ef einstaklingum er hyglað óeðlilega, þá er það Alþingis að gera athugasemdir eöa breyta leikreglunum, þyki ástæða til. Borgaramir eiga aö hafa mikil- væga vöm í slíkum störfum löggjaf- ans. Þjóðkjör framkvæmdavalds Við leggjum til að framkvæmdavald, forsætisráðherra, sé kosinn beinni kosningu, í tvöfaldri umferð, nái enginn helmingi atkvæöa í þeirri fyrri. Með því vinnst margt. Kosningaréttur er jafnaður að því er framkvæmda- valdið varðar. Skynsamlegt jafnvægi næst milli sjónarmiða þéttbýlis annars vegar og sjónarmiða dreifbýlis hins vegar. Hlutverk löggjafans á að vera að setja leikreglurnar; hlutverk fram- kvæmdavaldsins aö framkvæmda þær. Og ef upp kemur ósættanlegur ágreiningur, sem getur veriö þó það sé varla líklegt, hef ur hvor aðilinn um sig rétt til þess að knýja fram þjóðarat- kvæði; þar sem auðvitað hver einstakl- ingur fer með eitt og jafnt atkvæði. Og við leggjum til að æðstu embættismenn ríklsins séu ráðnir til fjögurra ára; og að aðeins sé heimilt að ráða þá tvívegis til sama starfs. Tökum dæmi . — útvarpið Setjum svo að þjóðin hafi kosiö tiltekinn einstakling sem handhafa framkvæmdavalds — í tvöfaldri umferð; og í kosningu þar sem sérhver einstaklingur hafði eitt og jafnt at- kvæði. Setjum svo að sá skipi með sér ríkisstjórn og hafi sagt fyrirfram hverjir sætu í þessari ríkisstjórn. Setjum svo að eitt af kosningamálum hans hafi verið að gera þyrfti veiga- miklar breytingar á rekstri út- varpsins; meira af þessu eða minna af hinu. Eðlilegt væri að við áramót eftir kosningar heföi ný ríkisstjóm heimild til þess að ráða nýjan útvarpsstjóra til þess að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Að öðm leyti á Ríkisút- varpið (sem og aðrar stofnanir ríkisins) auðvitað ekki að lúta beinum afskiptum stjómmálavaldsins frá degi til dags. Hins vegar setur löggjafinn al- mennar reglur um Ríkisútvarpið og út- varpsstarfsemi almennt talað, þar sem auðvitað á að afnema einokun. Eftir sem áður þarf að tryggja sér- stöðu Ríkisútvarpsins, t.d. með því að þeir hafi rétt til auglýsinga. En það er ekki aðalatriöi málsins. Hitt er aöalat- riði, að löggjafinn á að geta gert sínar athugasemdir, hafi til dæmis lög um hlutleysi, eða hver önnur lög verið brotin, eftirá. Slíkt eftirlitsvald álög- gjafinn að hafa, og þeim skyldum, til dæmis vegna kvartana borgaranna, á hann að gegna fyrir opnum tjöldum. Hafi fólkið í landinu kosið sér nýja stjórn, ný sjónarmið, ný stefnumið, þá á sú stjóm auðvitað að geta fylgt fram slikri stefnu. En hún breytir ekki reglunum; það gerir löggjafarvaldið. Og löggjafarvaldið hefur ennfremur eftirlit með því að leikreglunum sé fylgt. Framkvæmdavaldið skipar bankastjóra, forstjóra Pósts og síma, eöa hvaöa annan af æöstu embættis- mönnum ríkisins; löggjafinn setur leikreglurnar sem þessar stofnanir þurfa að fara eftir; og hefur eftirlit með þvi að eftir slíkum leikreglum sé fariö. Það er auövitað deginum ljósara aö þetta er krafa um hreinlegt stjóm- kerfi. Hitt er líka deginum ljósara að þeir sem 'eru andstæðastir þessum hugmyndum em flokkahestar, sem hvíla í baksviði stjómmálaflokkanna, en koma gjarnan að kosningum loknum, einkum ef vel hefur gengið, og (vilja „sitt”. Þetta er þetta óopinbera valdakerfi, sem lekur i gegnum flokka- kerfið, þvert og endilangt, stendur saman þétt og fast gegn utanaðkomandi ógnunum við s jálft sig, ræður að mestufyrir fjölmiðlunum; og er samtryggt í hegöan, háttum og stíl. Valdakerfið lítur svo til, — og það með réttu — að Bandalag jafnaðar- manna sé slík utanaðkomandi ógnun. Þess vegna láta þeir eins og þeir láta. Vilmundur Gylfason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.