Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1983, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1983, Blaðsíða 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR1983. 15 „Það er Ijóst, að þingkjörnir fulltrúar hafa ekki siðferðisþroska til að láta af pólitískri ósvífni, sem nú viðgengst," segir greinarhöfundur. ósvífnin er fólgin í þeim mannréttinda- brotum, sem leiöa til mismunandi skattbyrði hjóna eftir því, hvort annað hjóna eða bæði vinna úti. Þingmaður fær traust kjósenda í prófkjöri til setu á þingi fyrir ákveðinn flokk. Hann segir sig úr flokknum, — en situr áfram á þingi og stofnar nýj- an flokk! Fyrir hvaða flokk situr þing- maðurinn, fyrir þann, er hann sagði sig úr, — eða þann, sem ekki hefur enn verið kosinn? — Pólitísk ósvífni og siðlaus þar aö auki þótt löglegsé, sam- kvæmt samtryggingakerfi flokkanna. Nýjar og skyndilegar álögur á bif- reiðaeigendur með því að skylda þá til að greiða eina krónu af hverju kílógrammi sem bifreið þeirra vegur er dæmi um fáheyrða pólitíska ósvífni. Sú staðreynd, aö virkjuö vatnsorka að verömæti 40 milljónir dollara rennur til sjávar á næstu f jórum árum, eins og fram kom á viðskiptaþingi Verslunarráðs Islands fyrir skömmu, — það er líka pólitísk ósvífni, — og sök stjórnmálaflokkanna allra f jögurra. Því miður er Sjálfstæöisflokkurinn þar ekki undanskilinn, því að hann hefur viðurkennt kommúnista sem eitt hinna íslensku stjórnmálaafla, — hefur ekki einu sinni útilokað aö mynda með þeim ríkisstjórn, ef svo bæriundir! Og með því að viðurkenna kommúnista sem eitt stjómmálaaflið hér á landi er þeim veittur aögangur að lífæðum þjóðfélagsins, efnahags-, orku- og atvinnusviðum. Er þetta ekki samtrygging ósvífninnar? Og nú hafa fulltrúar allra sam- tryggingarflokkanna samþykkt að leggja fram frumvarp aö nýjum stjómskipunarlögum og breyttum kosningalögum, sem leiða til fjölgunar þingmanna í 63! Þar með hafa stjórnmálaflokkamir endanlega brotiö allar brýr að baki sér til samkomulags og sátta viö um- b jóðendur sína, k jósendur. Það er ljóst, að þingkjörnir fulltrúar hafa ekki siöferðisþroska til aö láta af pólitískri ósvífni, sem nú viðgengst. — Viö þessu á almenningur svör. Eitt þeirra er fólgið í því að láta kosningar sem vind um eyru þjóta á kjördegi, og allt þar til kynslóðaskipti tryggja, aö ósvífni í pólitík þykir ekki lengur sniðug. Geir R. Andersen. Menning Menning Menning Tvær sómakonur Guðný Guðmundsdóttir. ur. Og hvernig hefði list hans orðið hefði hann lifað að enduróma í tónum þær hræringar sem urðu þegar korpórállinn frá Korsíku fór aö hafa endaskipti á hlutunum? G-moll- sinfónían númer tuttugu og fimm er gott dæmi um ótal tilraunir snillings- ins til að brjótast úr viöjum tiskunn- ar — ítölsk að gerð, en í moll. En kannski voru þaö líka í og með hinar ströngu viðjar tískunnar sem gera manni svo augljóst hversu miklu framar hann stóð samtímatónskáld- um sínum velflestum. Hljómsveitinni okkar tekst yfir- leitt vel upp við Mozart undir stjóm Jacquillat og hér var ekki um neina undantekningu frá þeirri reglu að ræöa. Þá var komið að einleikurum kvöldsins, þeim Guðnýju Guðmunds- dóttur og Ninu Flyer. Hvoruga þarf að kynna fyrir islenskum tónleika- gestum. Oft hafa þær leikiö vel sam- an, en sjaldan — ef nokkum tíma sem nú. Gyðjan og skáldið er einn allsherjar samtalsþáttur einleiks- hljóöfæranna, sem hljómsveitin fær Tónleikar Sinfónluhljómsveitar islands í Háskólabíói 17.febrúar. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einleikarar: Guöný Guömundsdóttir og Nina Flyer. Efnisskrá: Wolfgang Amadeus Mozart: Sinfónía í g-moll nr. 25 KV 183; Camille Saint Saéns: La Muse et le Poéte f. fiðlu, celló og hljómsveit, op. 132; Johannes Brahms: Konsert f a-moll f. fiðlu, celló og hljómsveit op. 102. Fá tónskáld hefur tískan njörfað jafnrækilega niður og Wolfgang Amadeus Mozart. Ekki var fjöturinn Tónlist Eyjólfur Melsted lagður á Mozart einan, en sárast finnur maður til með honum — öðr- um fer fjöturinn einhvern veginn bet- að mynda fallegan flúrramma utan um. I leik einleikaranna í þessum fína glitvefnaði Saint-Saens fólust fy rirheit um það sem á eftir kæmi. Áheyrendur biðu því spenntir eftir þeim volduga tvíleikskonsert Brahms, og ekki voru þeir sviknir. Þær Guðný og Nina magna upp allt hið besta hvor hjá hinni, og hljóm- sveitin stóð einhuga að baki þessum tveimur sómakonum. EM Prófkjör Sjálfstæðisflokksins i Reykjanes- kjördæmi26.-27. febr. 1983. STUÐNINGSMENN ÓLAFS G. E/NA RSSONA R hafa opnað skrifstofu að Skeiðarási 3, Garðabæ Ihús Rafboða hf.h Skrifstofan verður opin kl. 17—22 virka daga og kl. 13— 19 um helgar. SÍMI 54555. er viö hæfi að gefa því létta og laglega skó aö trítla á. ^JfvannBergsbrfcbur Þess vegna höfum viö tekið upp ítalska kvenskó í miklu úrvali, - fallega og netta eins og vorskór eiga að vera. Sjáumst í nýrri og vandaðri versiun. SÍÍmmiíenn.braiiur LAUGAVEGI 71 AKUREYRINGAR! ALMENNUR BORGARAFUNDUR Hvað er til ráða í atvinnu- og iðnaðarmálum? Hvaða nýiðnaður kemur til greina? Hvernig má skapa ný atvinnutækifæri og auka at- vinnuöryggi? Reynt verður að svara þessum spurningum á al- mennum borgarafundi í Hótel KEA fimmtudag- inn 24. febrúar klukkan 8.30. FRAMSÚGUERINDI FLYTJA: Árni Gunnarsson alþingismaður. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastj. Iðnþróunar- félags Eyjaf jarðar. Hörður Jónsson, framkvstj. þróunardeildar Iðntæknistofnunar. Jón Helgason, formaður Einingar. Ingólfur Arnason rafveitustjóri. Fundarstjóri verður Ingólfur Jónsson, formaður Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi. Frummælendur svara fyrirspurnum. Fjölmenniö á fundinn og takið þátt í umræðum um mesta hagsmunamálið: ATVINNUÖRYGG- IÐ. ALÞÝÐUFLOKKURiNN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.