Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Blaðsíða 3
DV. FÓSTÚDAGim'9. SEPTÉMBER1963. 3 OLIUSKIPIÐ ÞYRILL KYRRSETT Á AKRANESI Olíuskipið Þyrill, sem mikið hefur verið í fréttum undanfama mánuði vegna kyrrsetningar i ýmsum höfn- um erlendis, hefur nú verið kyrrsett enn einu sinni. Gerðist það á Akra- nesi í fyrradag en þangaö kom skipið tilaðlestalýsi. Vmsir aðilar fóru fram á að skipið yröi kyrrsett hér núna. Meðal þeirra var Sjómannafélag Reykjavíkur og Farmanna- og fiskimannasam- bandið en þessir aðilar gera kröfur í laun sem útgerðin skuldar bæði yfir- mönnum og undirmönnum er verið hafa á skipinu undanfama mánuði. Fáir íslendingar voru skráðir á skipið þegar það kom hingað. Bæði stýrimenn og vélstjórar voru útlend- ingar og vélstjóramir þar að auki rétttndalausir. Er verið að kanna ráöningu þeirra og annarra um borð nánar svo og verið að kanna haf- færisskírteini skipsins. tJtgerð Þyrils hefur gengið upp og ofan undanfama mánuði og er skipið orðið þekkt í mörgum höfnum er- lendis vegna vandræða. Hefur það a.m.k. verið kyrrsett einu sinni í Rotterdam i Hollandi; Southampton á Englandi og í tvígang í Hamborg í Vestur-Þýskalandi. Fyrir nokkrum vikum var það kyrrsett í annað sinn í Hamborg vegna vangreiddra olíuskulda. Var vopnaður vörður við skipið en skip- verjar leystu það samt og stungu af úr höfninni. Var það elt uppi af hafnarlögreglunni sem kom um borð vopnuö vélbyssum og færöi það aftur til hafnar. Hingaö kom skipið eftir viðgerö í Danmörku til að lesta lýsi. Var langt komiö aö lesa þaö er það var ky rrsett á Akranesi. -Up- Það er skoskur stæll á Loftleiðum núna. DV-mynd Einar Ölason. Skoskir dagar ólíkir ððrum Sekkjapípa, skotapiis og söngur fylgja skosku skemmtikröftunum sem skemmta i Víkingasal Hótel Loftleiða þessa dagana. „Skoskir dagar hófust um kvöldmatarleytiö í gær og munu standa fram á sunnudagskvöld. Þjóöarréttir Skota verða á borðum en einn af yfirmatreiðslumönnum Stakis hótelanna tilreiðir þá, sá heitir Robert Robertsson. Efnt er til happdrættis meðal gesta sem njóta skosku daganna í Víkinga- sal. Vinningur í því happdrætti er þriggja daga ferð til Skotlands fyrir tvo. Kynning á Skotlandi sem ferða- mannalandi fer fram einnig en sem kunnugt er fljúga Flugleiðir þrisvar í viku milli Keflavíkur og Glasgow. Helgarferð til Glasgow, flug og gisting í þrjár nætur á Stakis hóteli (með morgunmat) kostar frá 8.200 krónum. Aöstandendur skosku daganna á Loft- leiðum eru breska ferðamálaráöiö (BTA), Flugleiðir og Stakis hótelin í Skotlandi. -ÞG Kaupmenn á Suðurnesjum skora á Kaupmannasamtökin: Afgreiöslutími verslana veröi ekki lögbundinn „Það hefur verið stefna hjá Kaup- mannasamtökum Islands að sömu reglur gildi um afgreiðslutíma versl- ana um allt land. En stjóm samtak- anna hefur enn ekki tekið afstöðu til þessarar ályktunar,” sagði Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaup- mannasamtaka Islands, er DV ræddi viðhann. Á fundi, sem Félag kaupsýslumanna á Suðurnesjum hélt nýlega, var eftir- farandi ályktun samþykkt samhljóða: „Við skorum á stjóm og fulltrúaráð Kaupmannasamtaka Islands að hætta að beita sér fyrir lögbindingu á af- greiðslutíma verslana fyrir allt landið. Lítum viö svo á að samningum um af- greiðslutíma verslana sé best varið í heimabyggð enda aðstæður mjög mis-; jafnar til reksturs verslana á lands- byggðinni”. Alyktun þessi var send stjórn og full- trúaráði Kaupmannasamtakanna svo og þingmönnum Reyk janesumdæmis. Afgreiðslutímar verslana hafa verið mikið til umræðu að undanförnu, nú síðast með tilkomu Vörumarkaðarins á Seltjamarnesi. Varðandi það ein- staka mál sagði Magnús að ljóst væri að Vörumarkaðurinn hefði opið lengur en reglugerð um afgreiðslutíma í Reykjavík heimilaði. Kaupmanna- samtökin biðu nú svars bæjarstjómar Seltjamarness við bréfi sem þau hefðu sent henni vegna þessa máls. Meðan svo væri yrði málið í biöstöðu. -JSS Ný slökkvistöð á Reykjavíkur- flugvelli Slökkviliðið á Reykjavikurflugvelll eyglr nú þann mogulelKa ao komast 1 vatns- og vindhelt hús. Verið er að vinna að byggingu á nýrri siökkvistöð á flugvellinum og er vonast til að hún verði tilbúin einhvem timann á næsta ári, það er að segja ef næg fjárveiting fæst til að Ijúka verkinu. Slökkviliðið hefur til þessa haft aðsetur í gömlu húsi sem byggt var á stríðsárunum. Er það löngu orðið úr sér gengið og heldur hvorki vatni né vindi, að sögn slökkviliðsmannanna. En þeir segjast vera orðnir svo vanir því að á þá bæði blási og rigni innanhúss sem utan að þeir séu næstum hættir að taka eftir því. -klp/DV-mynd S. HJÓLKOPPAR í ÚRVALI fyrir 12, 13, 14, 15, 16 tommu felgur. ilnaustKf SÍDUMÚIA 7-9 ■ SÍMI 8Í722 REYKJAVÍK VOLVO 244 DL '78 ekinn 60.000 km, beinsk. Verð kr. 205.000. VOLVO 244 DL '78, ekinn 70.000, beinsk., vökvast. Verð j kr. 215.000. VOLVO 245 DL '76 ekinn 138.000 km, sjálfsk. Verð kr. 165.000. VOLVO 144 DL '74 ekinn 130.000 km, beinsk. Verð kr. 100.000. OPIÐ Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 10-16. VOLVOSALURINN Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 VOLVO 244 GL '82, ekinn 22.000 km, beinsk. m/yfirgír. Verð kr. 395.000. VOLVO 244 GL '82 ekinn 5.000 km, sjálfsk. Verð kr. 430.000. VOLVO 244 GL'81 ekinn 40.000 km, beinsk. m/yfirgír. Verð kr. 360.000. VOLVO 244 GL '80 ekinn 46.000 km, beinsk. Verð kr. 300.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.