Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Blaðsíða 15
 15 1) Komposition. Valtýr Pétursson — í Listmunahúsinu Um þessar mundir stendur yfir í Listmunahúsinu viö Lækjargötu sýning á gouachemyndum eftir Valtý Pétursson sem hann málaði á árunum 1951—1957. Sýningin er opin framtilS. apríl. Ný byrjun Með nokkurri einföidun er gjarnan sagt að eftir síðari heimsstyrjöld hafi abstraktlistin greinst í tvær að- skildar myndgerðir: lýríska og geo- metríska abstraktion. Sú síðar- nefnda átti marga upphafs- og fylgis- menn í Frakklandi á seinni hluta 5. áratugarins og má segja að hún hafi bðkstaflega slegiö í gegn í Frakk- landi um 1950. Sá sem bar hvað hæst í flokki geometrískra málara var Vasarely. Geometríska abstraktmálverkið var meiri háttar bylting. Mun dýpri heldur en t.d. kúbisminn og abstrakt- listin hafði verið í byrjun aldarinnar. Því nú var búið að þurrka út alla fígúratífa vísun og afmá öll tengsl við bókmenntimar eða dulspekina. Þetta var ný byrjun. Málverkið var orðið umfram allt spursmál um form og liti, jafnvægi og spennu, flöt og rými, óháð hinni löngu evrópsku listhefð. Og í ummælum listamanna frá þessum tíma kemur það greini- lega fram að þeir litu á geometríuna sem nýja tegund af list, fullkomna nýsköpun. Hrein geometría Valtýr Pétursson listmálari var í Frakklandi á þessum tíma og virðist hafa hrifist einkar fljótt af þessari myndgerð því hann er einna fyrstur íslenskra listmálara til að sýna myndverk þar sem öll náttúru- upplifun er horfin af myndfletinum og eftir standa aðeins hrein geo- metrísk form og litir. Málverk Valtýs Péturssonar í Listmunahúsinu falla undir hreina geometríska abstraktion. öli til- finningasemi og allt skraut er víös fjarri í þessum verkum. Málverkið er fyrst og fremst myndbygging, út- hugsað kerfi þar sem form og litir eru nákvæmlega útreiknaðir og ihugaðir á myndfletinum. Þetta eru vitsmunalegar samstillur þar sem er leitað eftir jafnvægi í kyrrstöðu, rök- réttri svörun forma og fastri mark- vissri hrynjandi. Öll myndhugsunin er beisluð, mismunandi eftir mynd- um, en þó má seg ja að í hverri mynd sé um að ræða andstæður sem takist á. Lóðréttum línum er svarað með láréttum línum, rýmisverkun einstakra forma er svarað með sterkri flatarverkun heildarinnar og hreyfing er ávalit beisluð, stífluð Myndlist Gunnar B. Kvaran með skilgreinanlegu afmörkuðu ferli. » Sögulegar myndir Innan þessa hreintrúarkerfis, sem af mörgum var talið vera endapunkt- urinn á plastískri listsköpun, manns- hugurinn átti vart aö getað náð. lengra, er í raun lítið svigrúm fyrir persónuleika listamannsins. Lista- menn urðu fremur hluti af stóru list- heimspekilegu kerfi. Valtýr Péturs- son vann innan þessa kerfis og virðist hafa komist niður á margar sannfærandi niðurstöður. Því mynd- verkin hér á sýningunni eru flest í háum gæðaflokki. Á þessum sex árum virðist listamaðurinn hafa þaulkannað möguleika málverksins, fundið ný og ólík sjónarhom en þó á- vallt yer'ð trúr frumhugsun geo- metríunnar. Þessi sýning í Listmunahúsinu er sterk og sannfærandi.’ Auk þess sem hún er söguleg staðfesting á stöðu Valtýs Péturssonar í íslenskri lista- sögu. Nú ætti enginn listunnandi að láta sig vanta í Listmunahúsið. -GBK. LADA 1300 er sá ódýrasti í LADA fjölskyld- unni og er hann jafn- framt fyrirrennari allra LADA bíla. Hann hefur sýnt ótvíræða kosti sína hér á landi sem sterkur, traustur, ódýr ( rekstri og ekki slst fyrir sparneytni, ekki skemmir endursöluverðið en það hefur frá upphafi verið með því besta. Alls hafa verið seldir um 600 bílar af þessari gerð og sýnir það hversu vinsæll og traustur hann er. Nú er hann afgreiddur með endurbættu bremsukerfi og 1300 sm3 vél og eyðslan allt niður I 6 I. á 100 km. við bestu aðstæður. Þú færó mikið fyrir peningana þína ( LADA. Verðið er ótrúlegt, aðeins kr. 163.000,- Lán kr. 83.000,- Þér greiðið kr. 80.000,- Skiftiborð Verslun 38600 39230 Verðlisti yfir Lada-bifreiðar fyrir handahafa örorkuleyfa. Lada 1300 Lada 1200 station Lada 1500 station Lada 1500 Safír Lada 1600 Canda Lada Lux Lada Sport Verkstæði 39760 kr. 106.600 kr. 113.600 kr. 124.300 kr. 118.100 kr. 128.000 kr. 135.400 kr. 216.600 Söludeild 31236 Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf Suðurlandsbraut 14 SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLT111, SÍMI 27022. OPIÐ: virka daga kl. 9—22, laugardaga kl. 9—14, sunnudaga kl. 18—22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.