Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 41
DV. LAUGAHDAGUR26. MAÍ1984. óttur — Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur JVK*n: Liö Þróttara keppnistímabilið 1984. setti skiálfta í menn” —segir Ásgeir Elíasson, þ jálfari og leikmaður Þróttar „Það var agalegt að tapa leiknum gegn Fram niður í jafntefli. Það var ekki óheppni heldur klaufaskapur og skortur á skynsemi. En við erum ákveðnir í að leggja ekki árar í bát heldur berjast áfram af fullum krafti og vinna leiki í sumar,” sagði Ásgeir Eliasson, þjálfari og leikmaður Þrótt- ar í 1. deild í samtali við DV. ,,Eg hef þá bjargföstu trú að Is- landsmótið í sumar verði bæði jafnt og skemmtilegt. Eg hef séð flestalla leik- ina í sumar og mér finnst knattspym- an ekkert lakari en hún var í fyrra og þá var hún góð. Við Þróttarar eigum að geta blandað okkur í baráttuna um Islandsmeistaratitilinn en til að svo verði þurfum viö að hafa fyrir hlutun- um. Það má ótrúlega lítið út af bera hjá liði sem er í toppbaráttu svo að það sé ekki komið von bráðar í fallbaráttu. Eftir tvo fyrstu leikina hjá okkur verð ég að viðurkenna að ég er ekki eins bjartsýnn og ég var áður en mótið hófst en hef samt trú á því að við verð- um meðal efstu liða þegar upp verður staöiö í haust. Fyrstu leikimir í 1. deild hafa ein- kennst af taugaveiklun leikmanna en það rennur af þeim þegar líða tekur á mótið. Þá hefur völlurinn í Laugardal ekki hjálpað til. Það vill oft verða mik- iö hnoð á vellinum sökum þess hversu mjór hann er. Hvaö viðkemur tauga- veikluninni þá held ég að þriggja stiga reglan hafi fengið menn til að skjálfa. Það munar miklu hvort þú færð ekkert stig og tapar eða sigrar og færð þrjú. Mér finnst það blóðugt að lið sem vinn- ur leik, 1—0, fái þrjú stig þó svo að það hafi ekkert átt í leiknum. Það hefði ef til vil verið nær að gefa liðunum þrjú stig fyrir tvegg ja marka sigur. Eg hef séö öll liðin í 1. deild leika i sumar nema Keflavík og hallast að því að Skaginn verði mjög ofarlega. Eg sé ekkert sem bendir til þess að þeir Skagamenn verði lakari en í fyrra. Þeir gætu allt eins orðið sterkari. I minum huga er það stór spurning hvort einhverju öðru liði í deildinni tekst að halda í við þá. Þetta er spurn- ing um heppni. Eg held að önnur lið en Skagamenn þurfi á heppni að halda ef þau ætla að veita þeim keppni. Annars eru liöin frekar jöfn og allir virðast geta unnið alla. Skaginn getur þess vegna tapað fyrir öllum liðum í deild- inni. Annars eru svona spádómar vafa- samir og þegar svona fáir leikir eru búnir er varla hægt að spá nokkru af viti,” sagði Asgeir. „Byrjaði 9 ára að æfa" Asgeir Elíasson byrjaði ungur aö iðka knattspyrnu. Hann var níu ára þegar hann hóf aö æfa og aila tíö síðan hefur hann verið í baráttunni en hann er 34 ára gamall. Ferillinn er því orð- inn langur. „Eg er ekkert farinn að spá í að hætta. Eg hef gaman af þessu, þaö er númer eitt og tíminn einn verður að leiða það í ljós hvenær ég hætti í knatt- spyrnunni.” Asgeir hefur um árabil verið einn besti leikmaður okkar og hefur aö baki 31 landsleik fyrir Island. Þá er hann enn í dag leikjahæsti ieikmaðurinn hjá Fram en með því félagi lék Asgeir eins og kunnugt er áður en hann gekk til liðs við Þrótt fyrir fjórum árum. „Kemur maður í manns stað" Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvað muni eiga sér stað með Þrótt- arana þegar Páll Olafsson handknatt- leiksmaður yfirgefur liðið vegna OL. Við inntum Asgeir eftir því. „Það kem- ur alltaf maður í manns stað en sá sem tekur við af Páli, ef hann hættir að leika með okkur, verður að leika jafn- vel og Páll hefur gert. Eg kvíði því ekk- ert sérstaklega og ef hann fer þá kem- ur vel til greina að brjóta einn fingur eða svo,” sagði Ásgeir og glotti við tönn. -SK. Asgeir Eliasson, þjálfari Þróttar. Ásgeir með flesta landsleiki GunnarIngvason hefur ieikið flesta ieiki fyrir Þrótt í meistaraflokki. Hinn gamalreyndi kappi Gunnar Ingvason er leikjahæstur Þróttara frá upphafi. Gunnar hefur leikið 238 lelki með meistaraflokki. Jens Karls- son kemur næstur með 213 leiki, Sverrir Brynjólfsson er í þriðja sætl með 212 leiki, Halldór Bragason 211, Haukur Þorvaidsson 184, Omar Magnússon 186, Axel Axeisson 174, Jóbann Hreiðarsson 174, Guðmundur Gislason 174 og Daðl Haraldsson 172. Asgelr Eliasson hefur leikið flesta landsleiki Þróttara. Leikirnir eru orðnir 31 en flesta lék hann reyndar með Fram. Axel Axelsson iék 3 landsleiki, Jóhann Hreiðarsson ehm leik og sömuleiðls Póll Ólafsson. ■ -SK. ■ I I ■ I I róttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur—Þróttur^-Þróttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.