Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Side 3
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
3
't^hnkr*
Meira atvinnuleysi
en undanfarin ár
Yfirvinna kennara
að nokkru ógreidd
Happdrætti
Krabbameinsfélags;ns:
Bflar, tölvur
og sólarlanda-
ferðir
Happdrætti Krabbameinsfélagsins
er af óviöráöanlegum ástæðum seint á
ferðinni aö þessu sinni en miðamir
hafa nú verið sendir út. Dregið verður
24. desember svo að ekki er langur tími
tilstefnu.
Vinningamir eru nú fjörutiu talsins
og heildarverðmæti þeirra um 3,7
milljónir króna. Þeir eru BMW 520 i ár-
gerð 1985, Peugeot 205 GR árgerð 1985,
3 bifreiðar að eigin vali, 5 Apple //c
tölvur og 30 sólarlandaferöir fyrir tvo
meö ferðaskrifstofunum Orvali og Ot-
sýn.
Starfsemi Krabbameinsfélagsins er
margþætt. Það rekur leitarstöö,
frumurannsóknastofu og krabba-
meinsskrá, gefur út tímaritið Heil-
brigðismál og ýmis fræðslurit og ann-
ast fræðslu í skólum og meðal almenn-
ings. Nú hef ur öll starf semin sem var á
Suðurgötu 22 og 24 í Reykjavik verið
flutt í hið nýja hús Krabbameinsfélags-
ins að Skógarhlíð 8 þar sem mjög góð
aðstaða er til að efla starfið og færa út
kvíamar. Mikið veltur því á að Happ-
drætti Krabbameinsfélagsins verði
áf ram vel tekið af landsmönnum.
-óm
Iðnnemar til
þings
42. þing Iönnemasambands Islands
verður haldið dagana 16. nóv.— 18.
nóv. nk. að Hótel Esju í Reykjavík.
A þinginu verða ræddir hinir hefð-
bundnu málaflokkar Iðnnemasam-
bandsþinga, kjaramál, iönfræðsla og
félagsmál, einnig verður fjallað um
samnorrænt verkefni í tilefni af al-
þjóðaári æskunnar.
Þingiö sækja um 100 fulltrúar iðn-
nemafélaga víðs vegar af landinu með
um 3.000 félaga.
-óm
— atvinnuleysisdagar á árinu 35% fleiri en í fyrra
Atvinnuástandiö í siöastliönum
mánuði var verra en verið hefur hér á
landi um mörg undanfarin ár. I októ-
bermánuöi vom skráðir rösklega 24
þúsund atvinnuleysisdagar á landinu
öllu en þaö jafngildir að 1100 manns
hafi verið á atvinnuleysisskrá allan
mánuðinn eða um 1% af mannafla.
I septembermánuöi voru hins vegar
skráðir 11.600 atvinnuleysisdagar sem
er minna en í nokkrum öðrum mánuöi
ársins. Fjöldi atvinnuleysisdaga hefur
því tvöfaldast mÚli mánaða.
Ástæðurnar fyrir þessari þróun eru
erfiðleikar í útgerð og fiskvinnslu, að
því er segir í yfirliti semvinnumála-
skrifstofa félagsmálaráöuneytisins
hefur sent frá sér. Þar kemur fram að
75% af þessari aukningu milli mánaða
má rekja til sjö staða á landinu, Hafn-
arfjarðar, Akraness, Olafsfjarðar,
Seyðisfjarðar, Eyrarbakka, Vest-
Þurrkaðir
mannaeyja og Keflavíkur. Þessir stað-
ir voru hver um sig með 1000 til 3500
skráða atvinnuleysisdaga í október
vegna lengri eða skemmri stöðvunar
fiskvinnslunnar.
Sem fyrr segir voru atvinnuleysis-
dagar i október rösklega 24 þúsund eöa
um 1% af mannafla. Þetta eru um 10
þúsund fleiri atvinnuleysisdagar en
skráðir voru í október á siöasta ári. Þá
voru skráðir 14.667 atvinnuleysisdagar
sem jafngildir 0,6% af mannafla. 1
október 1982 voru skráðir atvinnuleys-
isdagar 5.585 eða 0,2% af mannafla og í
október 1981 4.497.
Á fyrstu tiu mánuðum ársins hafa
veriö skráðir 317 þúsund atvinnuleysis-
dagar á landinu eöa aö meðaltali 32
þúsund dagar á mánuði. Þetta jafn-
gildir því að tæplega 1500 manns hafi
að jafnaði veriö á atvinnuleysisskrá
eöa 1,2% af mannafla á vinnumarkaöi.
Á sama tíma í fyrra voru skráðir 234
þúsund atvinnuleysisdagar og hefur
þeim þvi fjölgaö um 35% milli ára.
ÖEF
Margir kennarar hafa enn ekki
fengið greitt fyrir yfirvinnu í septem-
ber og eru famir að ókyrrast vegna
þess.
Að sögn Indriða Þorlákssonar í
launadeild f jármálaráöuneytisins er
skýringin aðallega sú að greiðslu-
gögn hafi ekki verið komin fyrir
verkfallið og þegar því lauk hafi ver-
ið búið aö safnast mikið upp af gögn-
um sem nú væri verið að vinna úr.
Sagðist hann vonast til aö mest af
þessu kæmi til greiöslu á morgun,
föstudag. Um siðustu mánaöamót
hafi aöeins verið greidd yfirvinna
þar sem úrvinnsla var einföldust.
„Okkur finnst þaö heldur hart að
þurfa að bíða þetta lengi eftir gjald-
föllnum launum,” sagöi kennari einn
í samtali við DV.” Sérstaklega þó
eftir að ríkið hefur, að því er við telj-
um, brotið á okkur samninga meö
þvi að borga ekki föst laun eins og
gerðist 1. október sl.”
JBH/Akureyri
LUXUSINN
þarf ekki alltaf að vera dýr.
System Z-300 frá
þorskhausar
Hafin er bygging verksmiðju, sem
þurrka mun þorskhausa, í Krossholti
sem er byggðarkjami í Barðastrand-
arhreppi. Er gert ráð fyrir að þurrka
25 lestir af þorskhausum á viku og
munu 10 manns vinna við verkið. Þá
mun verksmiðjan einnig geta þurrkað
loðnu og kolmunna.
Þorskhausar eru þurrkaðir víða um
land og fara allir í útflutning.
-EIR.
er gott dænii iim það
Verð aðeíns kr. 36.900 • “ stgr.
(með 24 banda tónjafnara kr. 44.700.-)
JAPIS hf
BRAUTARHOLTI 2,
SÍMI 27133
• 2X35 sinus vatta magnarí (100 músík vött)
• Hálfsjálfvírkur plötuspilari með
4TP tónhöfuðkerfinu.
• Digital útvarp FM, MB og LB. 8 stöðva minni.
• Tveggja mótora rafeíndastýrt kassettutæki með
DOLBY B og C og því allra besta, DBX.
• Tveir 3 way 50 sinus (100) vatta hátalarar.
• Tvískiptur skápur með reyklítuðu glerí.
Z-300 gæðin koma skemmtilega á óvart.