Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
Útlönd
9
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Frægasti glæpa-
maður Svía aft-
ur kominn á kreik
Eftir eitt bankaránið leit Olofsson þannig út þegar hann var leiddur í f angelsið.
gekk ekki lengi laus því að hann hef ur verið handtekinn
fyrir st jórnun fíknief nasmyglhóps
Svartsýnismennimir höfðu rétt fyrir
sér og Clark Olofsson, frægasti af-
brotamaður Svía, hélt ekki lengi heit
sín um að þræða hinn þrönga stíg
dyggðarinnar eftir aö hann var látinn
lausúrfangelsi.
Þessi 37 ára gamli fyrrverandi
bankaræningi var handtekinn íBrussel
í vikunni, grunaður um að standa að
baki smygli á 25 kg amfetamíns til
Svíþjóðar.
Það var í apríl í vor sem Olfosson
varð loks frjáls maður en 21 ár ævi
sinnar hefur hann verið á betrunar-
hælum og í fangelsum. Vegna alls um-
talsins, sem afbrotaferill hans hefur
fengið, birtust við hann viðtöl í
sjónvarpi og blöðum um það hvernig
hann ætlaði að byrja nýtt líf.
Maðurinn, varð nær heimsfrægur i
gíslaráninu í Stokkhólmi 1973, einnig
vakti hann á sér athygli í fangelsinu
þegar belgísk stúlka giftist honum
meðan hann enn afplánaði dóm og
hann varð tiiefni deiiu þegar yfirvöld
gáfu honum undanþágu til þess að
sækja nám í blaðamennsku utan fang-
elsisins.
Sænska frjálslyndið í meðferð fang-
ans virtist í þessum viðtölum hafa
borið árangur. Hann sem áður var
talinn forhertur glæpamaður gekk út i
apríl, forbetraður, héldu menn.
Sænskir lögreglumenn hugsuðu þó
sitt og voru ekki eins bláeygðir og aðrir
réttvísinnar þjónar. Þeir héldu uppi
njósn um Olofsson og urðu þess varir
að hann hitti strax eftir að hann losnaði
ýmsa miður þokkaöa menn sem
grunaðir eru um skuggalíferni á glæp-
anna refilstigum.
Kvöldið áður en Olofsson var hand-
tekinn í Brussel, að beiðni sænsku lög-
reglunnar, voru fjórtán manns hand-
teknir í Stokkhólmi og hald lagt á 15 kg
af smygluðu amfetamíni. Lögreglan
teiur þó að smyglað hafi verið inn 25
kg. Meðal hinna handteknu var 22 ára
gömul vinkona Olofsson.
Þótt Oiofsson flytti til Belgíu fylgist
lögreglan samt meö honum. Hún vissi
að þrátt fyrir að maöurinn væri at-
vinnu- og tekjulaus bjó hann á dýrustu
hótelum í svokölluöum „kaupsýslu-
ferðum” til Hollands og Portúgal.
Fyrr í sumar handtók lögreglan
mann í grafhýsi í kirkjugarði í Stokk-
hólmi og fann hjá honum 5 kg amfeta-
míns. Rannsóknin varð til þess að auka
gruninn á að Olofsson hefði, um leið og
Austurrískir dátar drógu á land í gær
vopn og falsaða breska peningaseðla
sem nasistar höfðu fleygt í Toplitz-
vatn í stríðslok.
Þessi fundur var að tilvísan Hans
Fricke líffræðings sem hefur
rannsakað vatnið í dvergkafbáti. Hann
segist hafa séð þar ógrynni af fölskum
sterlingspundum, eldflaugaeldsneyti,
sprengjum og eldflaugaskotpöllum.
Hefur dvergkafbátur hans verið not-
hann kom út úr fangelsinu, tekið
forystu fíkniefnasmyglhóps.
Hleruð voru símtöl Olofsson og vin-
konu hans í Sviþjóð þar sem Olofsson,
staddur í Portúgal, var að ræða
hvernig honum yrðu sendar háar fjár-
aður við björgunina úr vatninu. Karfa
er látin síga niður á botn til kafbátsins
sem fyllir hana með griparmi sínum.
„Þriðja ríkið” átti leynilega til-
raunastöö við vatnið á stríðsárunum
þar sem gerðar voru tilraunir með ný
vopn til sjóhemaðar. Þar var til dæmis
eldflaugum skotið úr kafi á nærliggj-
andikletta.
Vatnið er einn km á breidd en rúmir
hæðir til að standa undir kaupum á
amfetamíni.
En þegar Olofsson var handtekinn
um helgina var auðséð að hann óraði
ekki sjálfan fyrir því að lögreglan hefði
haft hann grunaðan um græsku og ekki
ginið við sögunni um betrunina.
hundrað metrar þar sem það er dýpst
og er súrefnislaust þegar komið er
niður fyrir 20 metra dýpi. Margir kaf-
arar hafa látið þama lífið í leit að f jár-
sjóðum sem sögur herma að nasistar
hafifólgiðí vatninu.
Tímaritinu Stern tókst að ná
einhverjum af fölsuðu sterlingspunds-
seðlunum úr vatninu fyrir tveim ára-
tugum og lýsti Englandsbanki því yfir
að þeir væru snilldarvel gerðir.
Kafa eftir nas-
istafjársjóðum
NÚ GETUR ÞÚ KEYPT NOTAÐAN BIL
T TT A A /^T T NU ublUn PU ivKiri wvihi
tlj/1 /lLxLi BJÓÐUM MEÐAL ANNARS:
il»r
FIAT ARGENTA '82, flaggskip með öllu.
Verð kr. 350 þús.
FIAT UNO '83, eftirsóttur bíll, 3ja dyra, lítið ekinn.
Verð kr. 195 þús.
RENAULT TL 20 '78, blár, framhjóladrifinn.
Verð kr. 175 þús.
BENZ 250 '71, gotteintak.
Verð kr. 140 þús.
FIAT127 '74, duglegur í ófærðinni.
Verð kr. 35 þús.
SAAB 99 71, svartur, 4ra dyra.
Verð kr. 65 þús.
PEUGEOT 504 '73, kostar ekki mikið.
Aðeins kr. 40 þús.
. „V LfV'- • i
FORD BRONCO '66, róttur bíll fyrir veturinn
á kr. 90 þús.
FIAT131/12000'82,
5 gira, m/rafm. í rúðum.
Verð kr. 205 þús.
BÍLAÚRVALIÐ
ER SÍBREYTILEGT
FRÁ DEGI TIL DAGS.
CHEVROLET NOVA 73, rauð, tveggja dyra, vel
útlítandi fyrir aðeins kr. 85 þús.
FIAT125 P '81, rauður, litur vel út.
Verðkr. 110 þús.
CITROÉN GS 76,
sparneytinn, ódýr
á aðeins kr. 50 þús.
EGILL , SKIPTIVERSLUN MEÐ NOTAÐA BÍLA
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944— 79775
- EV. KJÖRIN ERU
BESTU KJÖRIN
OPIÐ LAUGARDAG
10-16
notodir bílor í eigu umbodssins