Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Minnstu ekki á það ógrátandi
Eg verð að segja alveg eins og er,
ég steinsvaf yfir sjónvarpinu í gær-
kvöldi. Dagskrá sjónvarpsins, svo
ekki sé minnst á útvarpið, er yfirleitt
svo drepleiðinleg að það er varla
hægt að ætlast til þess af fólki að það
haldi út heilt kvöld fyrir framan
skjáinn. Um tíuleytið tókst mér þó aö
þvinga upp ööru augnalokinu og var
það gert af stakri skyldurækni. Þá
blöstu viö Rachel Ward og de
Bricassart í faðmlögum. Eg hélt
hann væri prestur! Væmin og leiðin-
leg ástarvella. Ég hef heyrt á það
minnst að bókin sé ágætis afþreying
en sjónvarpsframleiðendur í Holly-
wood eru ekki af baki dottnir frekar
en fyrri daginn og tekst að gera úr
Þyrnifuglum dúkkulísuþátt líkt og
Dallas.
Næst vaknaði ég við að einhver
karl með rauöan vefjarhött lét móð-
an mása á bjagaöri ensku. Hérna var
reyndar á feröinni ágætis fræðslu-
þáttur um hinn herskáa Bose, vand-
ræðasegg og kommúnista, sem sætti
sig ekki við aðferðir Mahatma Gand-
his í sjálfstæðisbaráttu Indverja. Að
Gandhi sæti og spinni á spunavélina
allan sólarhringinn taldi Bose að
hjálpaöi Indverjum lítið og vildi
meiri blóðsúthellingar.
Næst hrökk ég upp með andfælum
við hljóöið í stillimyndinni en þá
slökkti ég á s jónvarpinu.
Elín Hirst
IngimarEydalkennari:
Alæta á allt útvarpsefni
Mér gefst aðeins kostur á að horfa
á sjónvarp í miðri viku því ég er yfir-
leitt alltaf að spila um helgar. Og
þegar ég gef mér tíma til að horfa í
miðri viku þá verð ég að segja að
mér finnst dagskráin oft á tíðum
heldur þunn. Það mætti t.d. að
ósekju hafa færri dýralífsmyndir.
Varðandi útvarp má eiginlega segja
að ég sé alæta á allt útvarpsefni. Ég
vona líka að Rúvak okkar hér sé á
réttri leið með innleggi sínu í dag-
skrá rásar 1. Útvarpið verður að
leggja áherslu á aö laða fólk að
tækjunum með því að reyna að sníða
dagskrána að þörfum fólks á hinum
ýmsu tímum dagsins meöan sjón-
varpið aftur á móti hefur sinn fasta
tíma þar sem nánast er um skyldu-
neyslu áhorfandans að ræöa.
Varðandi hin nýju útvarpslög er
það mín skoðun að í þeim efnum
eigum við Islendingar að flýta okkur
hægt. Vissulega er hvorki útvarp né
sjónvarp hafið yfir alla gagnrýni en
þessir miðlar veita fólki hvar á
landinu sem það býr sömu þjónustu
ef undanskilin er rás 2. Þetta eru
hlutlausir miölar meö mikiö
afþreyingarhlutverk. Mér finnst
slæmt til þess að hugsa ef einhverjir
aðilar færu aö nota þessa fjölmiðla í
skjóli fjárhagslegra yfirburöa.
Kristjana P. Helgadóttir læknir lést 8.
nóvember sl. Hún var fædd 5. ágúst
1921, dóttir hjónanna Helga Ölafssonar
og Þóru Guðrúnar Kristjánsdóttur.
Kristjana lauk kandidatsprófi frá Há-
skóla Islands 1948. Varð hún fyrst
aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum og síðan
á Landspítalanum. Áriö 1949 lagöi
hún leiö sína til Kanada og fór til
Winnipeg. Þar lagði hún stund á sér-
nám í barnalækningum. Sumariö 1952
kom hún heim og var starfandi læknir í
Reykjavík upp frá því. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Finnbogi Guð-
mundsson. Þau eignuðust eina dóttur.
Útför Kristjönu verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15.
Þorsteinn Olafsson tannlæknir lést 6.
nóvember sl. Hann fæddist í Reykjavík
21. desember 1920, sonur hjónanna
Kristínar Guðmundsdóttur og Olafs
Þorsteinssonar. Þorsteinn lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1940 og kandidatsprófi í
tannlækningum árið 1947. Sama ár
kvæntist hann eftirlifandi konu sinni,
Olöfu Vilmundardóttur. Þau hjónin
eignuðust tvö börn. Útför Þorsteins
verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Vigdís Hermannsdóttir kennari lést 8.
nóvember sl. Hún fæddist að Glitstöð-
um í Norðurárdal 12. júlí 1920, dóttir
hjónanna Hermanns Þórðarsonar og
Ragnheiöar Gísladóttur. Vigdís lauk
kennaraprófi frá Kennaraskóla Is-
lands vorið 1942 og söngkennaraprófi
árið 1951. Síðustu starfsárin starfaði
hún í Hlíðaskóla. Útför hennar var
gerð frá Fossvogskirkju í morgun kl.
10.30.
Rósa Guðmundsdóttir, Þinghólsbraut
34 Kópavogi, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn
15. nóvember, kl. 15.
Halldór Helgi Jóhannesson frá
Móbergi, Lindargötu 62, sem lést í
Landakotsspítala 9. nóvember, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 16. nóvemberkl. 13.30.
Gimnar Johnsen, Marklandi Garðabæ,
sem lést 9. þessa mánaðar, verður
jarðsunginn frá Garðakirkju, Garða-
bæ, laugardaginn 17. nóvember kl.
13.30.
Guðjón Magnússon frá Olafsfirði,
Bergstaöastræti 9B Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu á
morgun, föstudaginn 16. nóvember, kl.
15.
Adam Magnússon, Bjarkarstíg 2 Akur-
eyri, lést í Fjóröungssjúkrahúsinu að
kvöldi 12. nóvember.
Katrín Pálsdóttir frá Hörgslandi á Síðu
andaðist 13. þessa mánaðar.
Guðmundur Ól. Friðriksson prentari
andaðist 13. október í Vancouver í
Kanada. Útförin fór fram þar.
Guðný Friðbjarnardóttir frá Klaustur-
hólum, Njörvasundi 7 Reykjavík, er
lést 6. þessa mánaöar, verður
jarðsungin frá Stóruborgarkirkju
laugardaginn 17. nóvember kl. 13:
Franziska Karólína Sigurjónsdóttir,
Vatnsstíg 9 Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 15. nóvember kl. 13.30.
Gunnar Baldvinsson, Hæðargaröi 16,
andaðist í Borgarspítalanum 5.
nóvember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Guðmundur H. Eiríksson trésmíða-
meistari, Merkigarði Eyrarbakka,
verður jarðsettur frá Eyrarbakka-
kirkju laugardaginn 17. nóvember ki.
14.
Siglingar
Akraborg:
Vetraráætlun Akraborgar hefur tekið gildi.
Virka daga fer skipið f jórar ferðir á dag milli
Akraness og Reykjavíkur. Á sunnudögum
þrjár ferðir. Þá er fyrsta ferðin með skipinu
kl. 11.30 frá Akranesi og kl. 13 frá Rvík.
Þannigeráætlunin.
Frá Akranesi Frá Rvik
kl. 8.30 kl. 10.00
kl. 11.30 kl. 13.00
kl. 14.30 kl. 16.00
kl. 17.30 kl. 19.00
Yfir vetrarmánuðina eru engar feroir eftir
kl. 19.00.
Pass með tónleika í Safari
Þungarokkshljómsveitin Pass heldur tónleika
fimmtudagskvöldið 15. nóvember í Safari. Á
efnisskránni er eingöngu frumsamið efni.
Pax Vobis á Hótel Borg
Hljómsveitin Pax Vobis mun halda tónleika í
kvöld á Hótel Borg. Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni af nýrri plötu sem út kemur á
föstudaginn. Húsið verður opnað kl.21.
Liðsmenn hljómsveitarinnar eru Ásgeir
Sæmundsson, Skúli Sverrisson, Þorsteinn
Jónsson, Þorvaidur Þorvaldsson og Þorsteinn
Gunnarsson sem tók sæti Steingríms Ola.
Einnig má geta þess að Pax Vobis kemur
fram í Safarí á föstudags- og laugardags-
kvöld.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudaginn 18. nóvember: Kl. 13:
Ekið í Kjósarskarð að Stóra-Sauðafelli,
gengið með Laxá að Þórufossi og Pokafossi
þar sem bíllinn bíður. Þetta er auðveld göngu-
leið og fossar í klakaböndum. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bil. Frítt fyrir börn í fylgd full-
orðinna. Verð kr. 350,-
Ferðafélag islands.
Kaupmálar
Eftirtaldir kaupmálar hafa verið skrá-
settir við borgarfógetaembættið í
Reykjavík í júnímánuði 1984 og er
skrásetningardags getið innan sviga.
Milli Emils Hilmars Eyjólfssonar,
Lindargötu 39, Reykjavík, og Cather-
ine Dory Anne Kunslich Eyjólfsson,
s.st. (1.)
Milli Ingibergs Olafssonar, Nýlendu-
götu 7 Reykjavík, og Margrétar
Bjömsdóttur.s.st. (12.)
Milli Friðjóns Eyjólfssonar, Skaftahlíð
28 Reykjavik, og Guðnýjar Gunnars-
dóttur, s.st. (15.)
Milli Ragnars Hilmis Ragnarssonar,
Hofteigi 36 Reykjavík, og Asu Lindu
Guðbjörnsdóttur, s.st. (19.)
Milli Eric J. Ericsson, Hörðalandi 2
Reykjavík, og Kristjönu R. Söebech,
s.st. (26.)
Milli Magnúsar Heiðars Jónssonar,
Mýrarási 10 Reykjavík, og Inge
Christiansen, s.st. (28.)
Milli Birgis Rafns Jónssonar, Vestur-
ströndll Seltjarnamesi, oglngibjarg-
ar Norberg, s.st. (28.)
Milli Sturlu Más Jónssonar, Sund-
laugarvegi 9 Reykjavík, og Steinunn-
ar Pálsdóttur, s.st. (28).
Milli Daníels Oremus, Keflavíkurflug-
velli, og Margrétar Amórsdóttur, Bú-
landi34 Reykjavik. (29).
Milli Sigf úsar Thorarensen, Stóragerði
20 Reykjavík, og Hjördísar Þorsteins-
dóttur.s.st. (29.)
Eftirtaldir kaupmálar hafa verið
skrásettir við borgarfógetaembættið í
Reykjavík í maímánuði 1984 og er
skrásetningardags getið innan sviga.
Milli Valdimars Jóhannssonar, Greni-
mel 21 Reykjavík, og Ingunnar
Ásgeirsdóttur, s.st. (4.)
Milli Skúla Sigurðssonar, Grenimel 42
Reykjavík, og Kristínar Þ. Hauksdótt-
ur.s.st (4.)
Milli Sævars Péturssonar, Jómfelli 18
Reykjavík, og Ragnheiðar Sigurðar-
dóttur,s.st. (4.)
Milli Reynis Armannssonar, Fum-
gerði 19 Reykjavík og Stefaníu Guð-
mundsdóttur, s.st (4.)
Milli Þórðar Viöars Magnússonar,
Laugavegi 82 Reykjavík , og Sigrúnar
Vilbergsdóttur, s.st. (10.)
Milli Valdimars H. Jóhannessonar,
Miðleiti 1 Reykjavík, og Margrétar
Gústafsdóttur, Háaleitisbraut 34
Reykjavík (10.)
Milli Þorsteins Héðinssonar, Hraunbæ
116 Reykjavík og Maríu Birnu
Gunnarsdóttur, s.st. (11.)
Basarar
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Hinn árlegi basar Kvenfélags Haligríms-
kirkju verður í félagsheimili kirkjunnar laug-
ardaginn 17. nóvember og hefst kl. 14. Tekið
veröur á móti basarmunum i féiagsheimilinu
á fimmtudag milli kl. 17 og 22, föstudag milli
kl. 15 og 22 og fyrir hádegi á laugardag.
Tilkynningar
Haustfagnaður Átfhaga-
samtaka Héraðsmanna
verður í Domus Medica föstudaginn 16.
nóvember. Hefst kl. 20.00 stundvíslega með
félagsvist. H.G. tríó leikur fyrir dansi frá kl.
23.00.
Fressköttur í
óskilum á Eiðistorgi
Ungur grábröndóttur fressköttur með hvíta
bringu er í skilum á Eiðistorgi. Hann er
ómerktur en greinilega heimilisköttur.
Upplýsingar í síma 617016.
Bella
En þegar þú ert að baksa við
þennan bil þinn, þá kvartarðu
aldrei yfir því hvað erfitt er að
skiljast við hann.
„Hlegið í gegnum tárin",
sýning í IMýlistasafninu
Þessa dagana sýnir Emil Gunnar
Guðmundsson ljósmyndaröð „Hlegið í gegn-
um tárin” í neðri sal Nýlistasafnsins.
Sýningin er haldin í tengslum við leiksýningar
Eggleikhússins á leikritinu „Skjaldbakan
kemst þangað lika” og er opin öllum almenn-
ingi á miðasölutíma leikhússins kl. 17—21.
Ljósmyndasýningunni lýkur um leið og sýn-
ingum Eggleikhússins.
Kirkjudagur Óháða
safnaðarins
veröur haldinn sunnudaginn 18. nóvember.
Kaffi í Kirkjubæ eftir messu. Þeir sem vildu
gefa kökur komi þeim i Kirkjubæ milli kl. 10
og 12 á sunnudag.
Hjálpræðisherinn,
Kirkjustræti 2
I dag og á morgun föstudag veröur almenn
samkoma kl. 20.30. Majoramir Elsa og Kar-
sten Akerö syngja og tala. Kaffiveitingar á
f östudagskvöld. Allir velkomnir.
Ný snyrtivöruverslun
á Laugavegi
Opnuð hefur verið ný og glæsileg snyrtivöru-
verslun að Laugavegi 61—63. Þar eru seldar
franskar snyrtivörur enda heitir verslunin
París. Eigendur verslunarinnar eru Magnea
Rögnvaldsdóttir og Bjami Gunnar Gylfason.
Áhersla verður lögð á kynningu og sölu á
frönsku hágæðasnyrtivömnum Stendhal og
Sothys. Edda Ríkharðsdóttir innanhússarki-
tekt hannaði verslunina.
Minningarkort líknar-
sjóðs Áslaugar Maack
fást á eftirtöldum stöðum: Pósthúsinu við
Digranesveg, Kópavogi, Bókabúðinni Vedu,
Hamraborg 5, öglu Bjarnadóttur, Urðarbraut
5, s. 41326, Sigríði Gísladóttur, Kópavogsbraut
45, s. 41286, Helgu Þorsteinsdóttur, Drápuhlíð
25, Rvík,s. 14139.
Afmæli
90 ára er í dag, 15. nóvember,
Ingjaldur Jónsson fyrrum skipstjóri og
húsasmiður, Rauðalæk 13 hér í bæ, nú
á Hrafnistu í Reykjavík.