Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Blaðsíða 32
44 DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985. Nýlega birtum v» tvœr sögur af híbýlum tveggja frægra kvlk- myndastjama. Hér er ein til viö- bótar. Ollvía Newton-Jobn býr í verklegu híisi meö spænsku yfir- bragði. Utsýnið úr húsi þessu er ekki af verra taginu, nefnllega Kyrrahafið. t húsl þessu eru fjögur svefnherbergi, álíka mörg eld- stæði, og stórt f jölskylduherbergi. ★ ★ ★ Gamla brýnið og fyirum sjar- mörinn Rock Hudson er um þessar mundir að ieika í kvikmynd einni sem tekin er í Mekka kvikmynd- anna, Hoilywood. t mynd þessari á rokkurlnn að leika elskhuga ungrar og sprækrar stúlku. TU að kappinn gæti staðið undir hlutverkl sínu þurfti að setja hann á vítaminkúr og var dagskammturinn 30 piUur. TU stendur að setja Joan CoUins, Dynasty-leikkonuna á safn. Nei, ekld stoppa hana upp, heldur er það aðeins vaxmynd af henni sem ferásafnið. Það er stjórn Madame Tussauds safnsins sem hefur tekið ákvörðun um að láta gera vaxmynd af frúnni. Hópur manna fór tU Los Angeles að hitta stjörauna i þeim erindagjörðum að taka mái af henni. Hún var mæld hátt og lágt. CoUins tU mikUlar gremju var hver einasta hrukka og misfeUa mæld. Þótti henni sem sjálfsagt væri að horfa fram hjá nokkrum hrukkum, hún hefði nóg með þær á sér þó hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur af hrukkunum á vaxmyndinni líka. Sérfræðingunum varð ekki hnikað, rétt væri rétt, og alit yrði upp á sem nákvæmasta máta. ★ ★ ★ Dustin Hoffman, sá snjaUí ieUt- ari, mun nú íhuga alvarlega að enduraýja klæðaskápinn sinn, þ.e. innihald hans. Ekki yrði þó um karlmannsföt að ræða þvi á dögun- um fékk leikarinn furðuiega heim- sókn. Það var kona sem komin var af léttasta skeiði og sagði honum að hún og margir fleiri kynnu mUdu betur við hann sem konu i hlutverki „Tootsie” en karl. Sögunni fylgdi að kona þessi var engin önnur en móðir... Boy George. Sviðsljósið Sviðsljósið Svið ■ ■■ ■ Þorvaldur i stafni og hljómsveitin fyrir aftan. Þorvaldur slær i gegn á ný Þorvaldur í einu laganna. Af svipn- um afl dæma gæti hann verið afl syngja Á sjó. I nýliðnum febrúar var mikil skemmtun í „Sjallanum” á Akureyri. Þar kom fram, eftir langt hlé, Þorvald- ur Halldórsson, sem söng sig inn í hug og hjörtu landsmanna hér áður. Lagið Á sjó þekkja menn og mörg fleiri. Þor- valdur hafði ekki komiö fram í Sjallan- um í ein 12 ár er hann skemmti þarna á dögunum, en fljótlega varð ljóst að hann hafði engu gleymt. Fjölmennt var á skemmtun þessari og aUir sem vettlingi gátu valdiö komu og komust færri að en vildu. Kona ein sem DV menn hittu á skemmtun þessari sagði að samkvæmt læknisráði ætti hún að halda sig innandyra en ekkert fengi haldið aftur af sér þegar Þorvaldur Halldórsson væri annars vegar. Skemmst er frá að segja að Þorvald- ur sló rækilega í gegn og það ekki í fyrsta skipti. Höfðu menn á orði að hann væri jafnvel betri nú en nokkru sinni. Haft var eftir Ingimar Eydal, stjórnanda hljómsveitarinnar, sem sá um undirleik nú sem svo oft fyrr, að Þorvaldur kæmist bæði hærra og lægra en hann gerði og er þá mikið sagt. Menn skemmtu sér vel í Sjallanum þetta kvöld, svo er fyrir að þakka Þor- valdi og hljómsveit Ingimars Eydal. Hér eru þau hjónin Þorvaldur Halldórsson og kona hans, Margrót Schev- ing. ÞJÓÐRÁÐ Já, í mörg horn er að líta er frægir og valdamiklir gestir koma í opin- berar heimsóknir. Þegar Kaunda, forseti Zambíu, heimsótti Sviþjóö á dögunum var þar grimmdargaddur. Kaunda kallinn er nú ekki vanur svoddan veðráttu og óttuðust menn mjög aö honum yrði meint af. Einn liður í heimsókn for- setans vac aö aka um í hestvagni með Karli Gústaf kóngi. Var mönn- um þetta sérstakt áhyggjuefni og ótt- uðust menn að heitalandsforsetanum yrði meint af. Var því brugöiö á það ráð að hita sessu vagnsins með hita- flöskum áður en hinir háu herrar fengju sér sæti. Gafst þetta ráð vel og Kaunda forseti virtist ánægður með uppátæki þetta sem hélt á hon- um hita á meðan á ökuf erðinni stóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.