Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRIL1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd MORÐ FYRIR 1400 KR. Tveir strákar, 17 og 18 ára gamlir, eru fyrir rétti í Noregi sakaðir um óhugnanlegt morð á 67 ára gömlum manni í fyrrahaust. Strákarnir heimsóttu gamla manninn, sem þeir höfðu hitt einu sinni áður. Hann grunaði ekkert og bauð þeim að boröa og gista hjá sér. Þá réðust þeir á hann og lömdu hann. Maðurinn hélt fyrst að þetta væri grín. „Þegar honum skildist að þetta væri alvara hrópaði hann á hjálp. Þegar við slógum, hristist hann til og því bundum við hann við sófann með símaþræði, sagði annar unglingur- inn. Gamli maðurinn dó loks þegar annar þeirra hoppaði á maganum á Bretar og Sovétmenn reka sendimenn á wx/ honum. sínar. Þeir höfðu 1.400 krónur nota til að kaupa fylgihlut sem Upp komst um drengina þegar þeir íslenskar upp úr krafsinu. myndi auka kraftinn í mótorhjólinu stæröu sig af morðinu við vinstúlkur Peningana ætluðu strákamir að þeirra. Sovétmenn ráku í gær þrjá breska stjómarerindreka úr landi. Bretar svömðu fyrir sig um hæl og ráku þrjá sovéska sendimenn frá Bretlandi. Breska utanríkisráðuneytið sagði í gær að Sovétmenn hefðu rekið Bretana Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- ritari DV í S víþjóð: „Þetta er samkunduhús djöfulsins,” hrópuðu nokkrir félagar úr sértrúar- hreyfingunni Maranata i Storkyrkan í Stokkhólmi, og reyndu þar með að trufla guðsþjónustu sem þar stóð yfir. Guðsþjónustan var haldin til stuðnings málstað kristinna kynhverfinga. Kirkjugestir sungu bandaríska negrasálmipn „We shall ocercome” meöan ókvæðisoröin dundu á þeim. Kom til slagsmála í kirkjunni er kirkjuverðir og óeinkennisklæddir lögreglumenn reyndu að f jarlægja þá úr landi eftir að Bretar sendu tvo Sovétmenn úr landi vegna njósna. Þá hefðu Bretar samstundis ákveðið að rekaþrjáíviðbót. Mennimir, sem Bretar sögðu vera njósnara, vom sjóherfræðingur og sem ónæöinu ollu. Málefni kristinna kynhverfinga hafa verið mjög til umf jöllunar í f jölmiðlum að undanfömu, ekki síst eftir að Bertil Werkström erkibiskup hafði lýst þeirri skoðun sinni og meirihluta sænsku biskupanna að kristnir kynhverfingar ættu að lifa einlífi og neita sér um allt kynlíf þar sem það ætti heima innan hjónabandsins einvörðungu. Þessi ummæli Werkströms erki- biskups ollu miklum úlfaþyt meöal kristinna kynhverfinga og hafa tals- menn þeirra hótað að ganga úr kirkj- imni og segjast ekki eiga samleið með yfirmaður Aeroflot-flugfélagsins, Oleg Los og Vyacheslav Grigorov. Bretar segja að þeir þrír sem þeir ráku úr landi til viöbótar, hafi einnig gert nokkuð það sem „samrýmist ekki opinberum starfa þeirra,” það er svo þröngsýnni kirkju. En það em ekki allir forystumenn sænsku kirkjunnar sammála Werk- ström um þetta mál. I hópi þeirra sem hafa aðra skoðun á málinu eru Krister Stendahl, Stokkhólmsbiskup og fyrr- um prófessor við Harwardháskólann í Bandaríkjunum, svo og Ludwig Jöns- son, prestur í Storkyrkan íStokkhólmi. Það voru þeir tveir sem stóðu fyrir guðsþjónustunni sem olli svo mikilli heift. „Kærleikurinn er inngrip Guðs í líf okkar og sérhver maður hefur rétt á kærleikanum. Þar eru kynhverfir njósnað, á venjulegu mannamáli. Bretamir sem þurftu að yfirgefa Sovétríkin eru John Marshall sjóher- fræðingur, Martin Nelson aðstoðarsjó- herfræðingur og ungfrú Elizabeth Robson vísindaráðg jafi. menn engin undantekning og þeir hafa líka rétt til líkamlegrar tjáningar hans, það er samfara,” sagði Ludwig Jönsson meðal annars. Krister Stendahl sagði í sjónvarps- viðtali að lokinni guösþjónustunni að Svíar vildu sýnast frjálslyndir en þeir væru furðu fordómafullir um margt. Hann sagðist óttast að fjölmargir liti á sjúkdóminn AJDS sem guðlega refs- ingu yfir kynhverfingum. Hann sagðist ekki verja vændi, hvorki meðal kynhverfra né annarra, en ekki bæri að meina þeim er bæru ást til eigin kyns að njóta hennar. Krakarar verjast Lögreglu í Amsterdam mistókst að henda 200 krökurum út með valdi úr byggingu sem þeir höfðu tekið traustataki. Krakarar eru þeir sem vegna heimilisleysis yfir- taka auðar byggingar. Tilraun lögreglu til að fá krakar- ana út úr byggingu í miðri Amster- damborg varð að bardaga þar sem krakarar köstuðu steinum að lögreglu og lögregla notaði kylfur gegn þeim. Um níu lögreglumenn meiddust litillega og fjórir krakarar voru handteknir. Byggingin sem ráðist var á var ein af höfuðstöðvum krakara í Amsterdam þangað til í október, þegar lögregla náði að henda hinum óboðnu ábúendum út. Nú hafa krakarar komist aftur í bygginguna. Það á að breyta henni í skrifstofuhúsnæði. Um 7.000 krakarar eru í Amsterdam. Frelsisfylking dýra frelsar Hópur sem kallar sig Frelsisfylk- ingu dýra rændi um helgina 250 dýrum frá rannsóknarstofu Kali- fomíuháskóla. Þar voru dýrin notuð til rannsókna. Fylkingin tilkynnti ránið til ýmissa dýraréttindahópa í Kali- fomiu. Háskólalögregla staðfesti ránið og sagði að skrár og tölvur í háskólanum hefðu verið skemmd- ar. Fylkingin stal 21 ketti, 35 kaninum, 38 dúfum, niu villtum pokarottum, fleiri en 80 stökk- músum og asískum apa. Aliyev á uppleiö Geidar Aliyev er ungur maður á uppleið innan sovéska valdapíra- mitans. Það sást þegar hann hélt mikilvæga ræðu á fjöldasamkomu innan Kremlarmúra. Ræðan var haldin i tilefni þess að 115 ár em liðin frá fæðingu Lenins, stofnanda Sovétrikjanna. Þessi árlega ræða er talin mikilvæg og góð vísbending um frama innan flokksins. Gorbatsjov og fyrirrennarar hans, Tséménko og Andropov, héldu allir þessa ræðu áður en þeir voru kosnir í formannsembætti flokksins. Aliyev er einn af þremur aðstoðarmönnum Tikhonovs for- sætisráðherra og er talið lfklegt að hann muni taka við af honum. SLEGIST í KIRKJU í STOKKHÓLMI Heíuröu gert þér grein íyrir því aö milli bíls og vegar eru aöeins íjórir lóíastórir íletir. Aktu því aöeins á viöurkenndum hjólböröum. Sértu aö hugsa um nýja sumarhjólbaröa á íólks- bílinn œttiröu aö haía samband viö nœsta umboösmann okkar. PÚ ERT ÖRUGGUR Á GOODfYEAR FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING HF Laugavegi 170-172 Simar 21240-28080 HUGSIÐ UM EIGIÐ ÖRYGGI OG ANNARRA Flestar stœrdir íyrirliggjandi — HAGSTÆÐ VERÐ —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.