Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985. 13 Skylda Alþingis — að taka afstöðu í bjórmálinu m „Það hlýtur að vera vilji alþingis- ^ manna að móta hreina stefnu í á- fengismálum, án misréttis milli þegnanna, í stað þess klúðurs sem við núbúumvið.” Fyrir Alþingi liggur bjórfrum- varp. Líklegt er að þetta frumvarp fái stuöning meirihluta þingmanna, en nauman þó. Hugsanlegt er að það verði fellt. Þ6 ég sé stuðningsmaður þessa frumvarps þó tel ég ekki mestu móli skipta hvort frumvarpið verður sam- þykkt eður ei. Eins og mólum er komið tel ég mikilvægast að Alþingi taki afstööu, með eða ó móti bjór, því þó fyrst getur almenningur tekið af- stöðu til stjómmólaflokka og stjóm- mólamanna í kosningum með hlið- sjón af stefnu frambjóðanda í áfengismólum. Það þýðir lítið fyrir frambjóðanda að lýsa yfir í kosningabaráttu að hann sé með eða á móti bjór, ef hann þorir ekki að greiða atkvæði um mólið ó þingi. Meirihluti þingmanna hefur ekki þorað að taka afstöðu i bjórmálinu hingað til. Þeir hafa þvi beitt þeim ráðum sem duga til að koma í veg fyrir að málið nái afgreiðslu. Fram að þessu hafa þau mál sem lúta að auknu frelsi í áfengismálum strandaö í nefndum. Það gerist þannig að nefndarmenn viðkomandi nefnda, sem fjalla um frumvörp um bjór, hafa komið í veg fyrir að málin væru afgreidd út úr nefndinni og þar af leiðandi hafa þau aldrei komiö til atkvæða i þingdeildum. I ár hefur það skeð i fyrsta sinn að frumvarp um sölu og framleiðslu 86. máb i. ..._..;cfarD»*K' 984-*5 Sá. vió frv áfengs bjórs er komið út úr nefnd með stuðningi meirihluta nefndar- manna og nú liggur fyrir að taka það á dagskrá i neðri deild Alþingis. Þó megum við eiga von á öðru leik- afbrigði í baráttu þeirra manna sem ekki eru samþykkir því að þetta mól verði afgreitt og sérstaklega þeirra manna, sem hræddir eru við að láta afstöðu sína í ljós, og það kann að hljóma undarlega, að þaö eru einna helst andstæðingar þessa frum- varps, sem ekki þora aö láta afstöðu - sina í ljós með atkvæði sínu. I stað þess ætla þeir sér aö halda uppi mál- þófi í þingdeildinni, þ.e.a.s. standa klukkustundum saman í ræðustól og tala um allt og ekkert sem við kemur áfengi, í þeim eina tilgangi aö tefja fundahald svo að forseti gefist upp á endanum og fresti afgreiðslu málsins um óákveðinn tima. Eg tel að ef alþingismenn ekki ganga til atkvæöa í þessu máli þá muni Alþingi setja svo niður í augum almennings, aö það muni taka ár eða . Breytinga, 733. brevt. 4 áfena'slh&'^ f tá meit' »' r.'82/l* 1 * * *? 1 ,9*^; Nd. u'» fn 'ö, «6. ‘il 1. »ill bre ■yt. ‘ áfe, í.f»n£'S' ‘ ‘»i»sh »>á I. 732, °y»n, Ki áfeng«v fwua ú\ \ancis\ns "^gu ^j'önefn, Fríi nr. efrid; niciri bl. *209, arálit '69 og ’ />d k Ws). » />„ ‘CrJ»rn lrPi() “'hu, uf»d;„ 'glln rSÍÓ, 'un 2. 1984 (107. löggjafarþing) - 86. mál. Nd. 88. FRUMVARP TIL LAGA um breytingu á áfengislögum, nr. 82/1969. Flm.: Jón Guðmundur Sophusson Baldvin Hannibalsson, Ellert Einarsson, Guðrún Helgadóttir B , Schram, Friðrik Atcug’" °£' • M\t ■rpnii ilu>». ,n 7 :i,i bn 'n»br6^»»íli -V"W i"1 J ’»e0 'k.r°r» kuridt "> b, ■ höh:nþa' "^gar . e»p t er»lu. »ar , ad „Mairihluti þingmanna hafur akkl þorafl afl taka afstöflu I bjórmóllnu hingafl til. ráflum sam duga til afl koma I vag fyrir afl móllfl nói afgroiflslu." gerOUr **//«,_______ Þeir hafa þvi beitt þeim Kjallarinn STEFÁN BENEDIKTSSON, MIMGMAÐUR BANDA- LAGS JAFNAÐARMANNA jafnvel óratugi fyrir Alþingi að ávinna sér traust almennings á ný. Það getur verið að bjórmálið sé ekki merkilegast allra mála. En þetta mál er samt sem áður dæmi- gert að því leyti, að hér er verið að fjalla um mólefni sem brennur á vörum mjög margra landsmanna, bæði andstæðinga og fýlgjenda bjórsins, og það er enginn annar aðili á Islandi en Alþingi sem getur dregið hreinar og klárar línur í þessu máli og breytt því klúöri, sem við búum nú við, í skiljanlega áfengisstefnu yfirvalda. Eg er staðráöinn í því, ef alþingis- menn, samstarfsmenn mínir, ætla sér enn eina ferðina að koma í veg fyrir að hægt verði að greiða atkvæði í bjórmálinu, að leggja þá fram frumvarp, sem banni algerlega allan innflutning á bjór, sem heimilaður hefur verið hingað til og einnig sölu á bjórlíki. Það hlýtur að vera vilji al-- þingismanna að móta hreina stefnu i áfengismálum, án misréttis milli þegnanna, i stað þess klúöurs sem viðnúbúumviö. Stefán Benediktsson, 8. þingmaður Reykvikinga. Yfir 700 fóstur- deyðingar árlega Frétt um fjölgun fósturdeyðinga, sem birtist hér i blaðinu 22. marz, hlýtur að hafa vakið ugg í brjósti margra lesenda. Skv. bráðabirgða- tölum frá skrifstofu landlæknis voru þsr 687 árið 1983, sem er 12% auknlng frá árinu áður — á sama tima og fólksfjölgun i landinu var rétt rúmlega 1%. Þegar til lengri tíma er litið verður hin öra fjölgun fósturdeyðinga enn meira áberandl Frá 1974 (siöasta árinu fyrir gildistöku nýju laganna) til 1983 höfðu þær rúmlega þrefaldazt — áaðeins9árum. Hlutfallslega lýkur nú æ fleiri þungunum með fósturdeyðingu. 1971- 75 endaði að meðaltali ein af hverjum 25 þungunum á þann hátt (skv. grein S.V. i siöasta árgangi blaösins 19. júni). En árið 1983 var á- standið orðiö slíkt, að einni af hverjum 7,36 þungunum lyktaði með , fósturdeyðingu (fósturlát eru ekki talin hér með, tölur um þau eru ekki tiltækar). Heildartölur um fósturdeyðingar á sL ári eru ekki ennþá komnar fram, en nokkur visbending fæst meö þvi aö athuga f jölgunina á þeim staö, þar sem fram fara flestar fóstur- deyöingar ó landinu, á fæðingardeild Landspitalans. Arið 1983 fóru þar fram 545 slikar „aðgerðir”, en áriö 1984 voru þær 569 (upplýsingar Sig. S. Magnússonar yfirlæknis). Ef sam- bærileg fjölgun hefur oröið annars staðar á landinu, hafa f ósturdeyðing- ar veriðum717 órið 1984. „Félagslegar ástæður” í 90% tilvika Þegar skoöaö er, hvar ástæðan fyrir þessari gífurlegu fjölgun ligg- ur, kemur í ljós, að rúmar 9 af hverjum 10 fósturdeyðingum eru nú framkvæmdar af félagslegum á- stæðum eingöngu. Fyrir gildistöku núverandi laga (1975) var ekki unnt að fá fósturdeyðingu af félagslegum óstæöum einum saman, heldur urðu læknisfræðilegar ástæður að eiga a.m.k. einhvern hlut í forsendum umsóknar. Reyndar munu ákvæðin um þær læknisfræðilegu ástæður oft hafa verið túlkuð meö frjálslegasta móti á árunum eftir 1970, þegar kröfur fóru aö koma fram um rýmk- un löggjafarinnar. Mun það hafa verið ein helzta skýringin á hinni undarlegu f jölgun fósturdeyðinga úr 99 órið 1970 upp í 224 órið 1973. (Arin 1961—70 voru fósturdeyðingar að meðaltali83áóri.) Með þeirri hlutfallsskiptingu, sem nú er orðin greinileg (þ.e. yfir- gnæfandi fjölda félagslegra á- stæðna), er ljóst, að af hverjum 700 fósturdeyðingum eru einungis um sjötíu af læknisfræðilegum ástæðum (ýmist einum sér eða í bland við félagslegar ástæður). Þetta sýnir okkur hvort tveggja: að heimildir til fósturdeyðinga voru misnotaðar jafnvel fyrir lagasetninguna 1975 og að i reynd eru það hinar „félagslegu ástæður”, sem eru okkar langstærsti vandiíþessuefni. Heilbrigð börn heilbrigðra mæðra Fró 1972 til 1983 fjölgaði fóstur- deyöingum um 545 (þ.e. 349%). Á sama tima fækkaði fæðingum um 216 (4,7%). Frá 1970 til 1983 varð fólks- fjölgun í landinu tæplega 17%, en á þeim tima f jölgaði fósturdeyðingum um594%! Stærsti orsakavaldurinn getur ekki dulizt neinum: Á tíu árum, frá 1974 til 1984, hefur f ósturdeyðingum af félagslegum ástæðum eingöngu fjölgað úr núlli upp í uálægt 645. Lái mér það hver sem vill, að í þessum tölum þykist ég sjá ömurleg- an vitnisburð um siðferðisþrek þjóðarinnar. Hversu lengi má bíða þess, að Alþingi taki undir þau frum- vörp, sem Þorvaldur Garðar Kristjánsson o. fl. hafa flutt um, að stöðva beri fóstureyðingar af félags- legum ástæðum og að í staðinn skuli félagsleg aðstoð viö mæður aukin til muna? Reyndar tel ég engu síður mikilvægt, að þeim fósturdeyðingum linni, sem hafa að forsendu heilbrigðisóstæður móður eða bams, þvi að réttur móðurinnar til full- kominnar heilsu getur ekki jafnazt á við sjálfan grundvallarrétt bamsins til lífs: og það að deyða bam vegna þess, að það er vanheilt á einhvern hátt (eins og nú er iðulega gert á fimmta mánuði meðgöngunnar), er ekkert annað en siðleysi, þar sem til- gangurinn er látinn helga meðalið. Avinningur annarra getur ekki réttlætt það að tortima lífi saklausr- ar mannvem — og vafasöm spá um erfiöleika eða vansælu bamsins sjólfs í framtíöinni gefur okkur eng- an rétt til að taka ákvörðun um deyðingu þess, ekki frekar en við höfum heimild til að deyða lamaða menn eða langlegusjúklinga. En þótt ég geti ómögulega fallizt á það siðferði að heimila fóstur- deyðingar í nefndum tilvikum, þá ó ég samt ennþá erfiðara meö að skilja þaö fólk, sem réttlætir það, að fóstur sé deytt af félagslegum ástæðum. Eg hlýt að taka undir með sr. Arelíusi Níelssyni, er hann segir í JÓN VALUR JENSSON CAND. THEOL. bréfi til min: „Eitt er vist, mér finnst sem lögin um fóstureyðingar heilbrigðra bama heilbrigðrar móður séu svartasti blettur í allri sögu Alþingis á Islandi.” Ur félagslegum erfiðleikum ber að leysa meðfélagslegumaðgerðum, en ekki með því að ryðja úr vegi sak- lausum aðilum. Eg fæst ekki til að trúa því, að þessi þjóð, sem býr við umtalsverða velsæld,geti horft upp ó það til lengdar, að árlega séu deydd af félagslegum ástæðum hátt á sjöunda hundrað bama, sem öll em heilbrigð og eiga sér heilbrigðar mæður. 1 viðtalsþætti hér i blaðinu 1. þ.m. lýsti Jón Baldvin Hannibalsson þeirri skoðun sinnL að takmarka beri fósturdeyðingar og leyfa þær ekki af félagslegum ástæðum. Yfir- lýsing hans kann að marka tímamót, þegar haft er i huga, aö rúm sex ár eru siðan Þorvaldur Garðar bar fyrst fram frumvarp sama efnis, og er þetta vonandi visbendiug um, að alþingismenn séu nú reiöubúnir til að takast á við þetta alvarlega mál. Jón Valur Jensson. „tJr félagslegum erfiðleikum ber að leysa með félagslegum aðgerðum, en ekki með því að ryðja úr vegi saklausum aðilum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.