Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 16
 Spurningin Fylgdist þú með söngva- keppni sjónvarpsstöðva í Evrópu síðastliðinn laug- ardag? Gunnhildur Jónsdóttir: Já, ég gerði það. Eg er mjög ánægð fyrir hönd Noregs, fannst vinningslag- ið sæmilegt. Annars eru lögin í keppn- inni ekki fyllilega í takt við tímann. Rannveig Haraldsdóttir afgreiðslu- stúlka: Eg mátti ekki vera að því að fylgjast meö keppninni í ár en ég er fylgjandi því að við Islendingar tökum þátt í henni ef við höfum efni á því. Guðrún Gunnarsdóttir afgreiðslu- stúlka: Já. Mér fannst hún ágæt og vinnings- lagið hressilegt. Við eigum tvímæla- laust að vera með að ári. Guðbjörg Gísladóttir starfsstúlka: Já, og fannst hún skemmtileg. Það voru mörg góð lög í keppninni og persónulega fannst mér lagið frá Austurriki bera af. Arnar Simonarson fiskvinnslumaður: já, hún var mjög góð. Eg er hiklaust á því aö viö Islendingar tökum þátt í keppninni næsta ár. Jónas Ásbjörnsson sölumaður: Já. Keppnin var ágæt skemmtun. Mér fannst írska lagið best. DV. MIÐYIKUDAGUR 8. MAI1985. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur LAUNAMÁL VERK- TAKAFYRIRTÆKJA Kristinn Snæiand skrifar: Síðastliðið ár hefur nokkuö borið á væringum innan Verktakasambands Islands. Hverjar ástæður deilna þar eru skal ekkert sagt um hér annað en það að meöal verktaka eru aðilar sem bjóða svo niður verk að ríkiö eða aðrir útboðsaöilar fá verkin unnin fyrir tæplega helming áætlaðs kostn- aðar. Oánægjan hefur haft í för með sér úrsögn Hagvirkis hf. úr Verk- takasambandinu. Orsögn Hagvirkis hefur fylgt að ráðamönnum þar verður tilefni til sérstakrar gagnrýni á Istak, Islenskt verktak hf. Ekkert get ég sagt um ágreiningsefni þau sem þarna eru á ferðinni en Hagvirk- ismenn láta jafnan fylgja í niörandi tón að ISTAK sé í eigu erlendra aðila. Nú skal því ekki neitaö aö Phil og sön í Danmörku munu eiga hlut í ISTAK. Hitt ætti að vera Hagvirkismönnum umhugsunarefni að þekkt er að kjarasamningar hafa veriö svo hag- stæðir hjá ISAL sem er einvörðungu í eigu erlendra aðila að verkalýðsfé- lög keppast hvarvetna við stóriðju á Islandi að ná „ISAL” samningum. ISTAK, sem er hins vegar aöeins að hluta í eigu erlendra aðila, hefur einnig greitt sínu fólki laun, sem eru það ég best veit mun hærri en al- mennt gerist í verktakaiðnaði. Auk þess greiðir fyrirtækið verkamönn- um, bílstjórum og vélavinnumönn- um mun hærri laun en almennt heyr- ist að gert sé í þeim störfum. Af viö- ræðum minum við bílstjóra hjá verk- tökum, m.a. Hagvirki, virðist mér ljóst að meginmunurinn á því að starfa hjá Hagvirki eða ISTAK felist í því að viö sem störfum eða störfuð- um hjá ISTAK bárum mun meira úr býtum á tímann en félagar okkar hjá Hagvirki. Bílstjórum hjá Hagvirki og reynd- ar einnig ráðamönnum fyrirtækisins til fróðleiks skal þess getið að þegar ég hætti hjá ISTAK (sem bíistjóri) eftir aðeins 8 mánaða starf þann 10. mars sl., voru tímalaun min 104,09 á tímann í dagvinnu að viðbættum bón- us sem var 12 til 15 kr. á tímann. Lág- markslaun min sem bíistjóra hjá ISTAK voru þannig 116 kr. á tímann. Vegna þeirra launa, sem mér skilst að séu greidd hjá Hagvirki, óska ég starfsmönnum þess fyrirtækis til hamingju, ef þeim tækist að fá sína ráðamenn til þess að selja útlendum aöilum verulegan hluta fyrirtækis- ins. Til félagsmálaráðherra: HVENÆR FÁUM VIÐ LÁNIÐ? Elín Albertsdóttir skrifar: Mitt í öllum umræðum um húsnæðis- vanda ungs fólks hefur algjörlega gleymst aö minnast á alla þá sem bíða og hafa beðið lengi eftir húsnæðislán- um. Þess vegna langar mig að spyrja á opinberum vettvangi hvenær úthlutun þeirra lána, sem sótt var um í byrjun júlí á síðasta ári, fer fram. Svarið sparar sjálfsagt mörg símtölin til stofnunarinnar. Þá má minna á að margir hafa þurft að taka bankalán upp á þetta væntan- lega húsnæðislán, endalausar fram- lengingar á þeim lánum eru ekkert gamanmál fyrir þá sem þurfa að standa í þeim. Þá get ég einnig sagt að það var í byrjun september sl. sem ég fékk svar frá Húsnæðisstofnun um að lánið hefði verið samþykkt. Nú er ég hins vegar orðin leið á að heyra ekkert meira.. . Sigurður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar: Okkur er vitaskuld ljóst að þetta er búið að dragast allt of lengi. Það er unniö aö undirbúningi þess að útborg- un geti farið fram en því miður er ekki hægt að segja til um dagsetningu enn- þá. Vinnubrögð bankaráðs- manna fordæmd Skattgreiðandi skrifar: Aliur almenningur fordæmir furðu- leg vinnubrögð bankaráðsmanna er þeir samþykktu bílastyrki til banka- stjóra aö upphæð 450 þúsund krónur á ári, vísitölutryggt. Þetta er slíkt regin- hneyksli að það er skýlaus krafa al- mennings að bankaráðsmennirnir segi tafarlaust af sér. Á sama tíma og bannað er með lögum að tryggja verkamanninum mannsæmandi laun rétta þessir bankaráðsmenn banka- stjórum þreföld verkamannslaun á silfurfati. Bankastjórar eru með hæstu laun 80—100 þúsund krónur á mánuði og eiga enga bílastyrki að hafa. Bankaráösmenn hafa brugöist því trausti sem þeirn var sýnt og eiga hik- laust aö segja af sér. Ef þeir vilja halda í þennan bitling á ráðherra bankamála að taka af skarið og gefa þeimfrí. Það bragða væntanlega margir undir aig betri fœtinum i sumar og ferðast hér heima eða erlendis. GOn FERDABLAÐ Ferðakona skrifar: Ég mátti til með að setja á blað nokkrar línur til DV, eftir að hafa lesiö rækilega ferðablaöið sem út kom með DV, sl. miövikudag. Ferðablað þetta er sérstaklega vel unnið og vandað aö þaö langbesta sem ég hefi lesið um ferðamál í dag- blööum. Mætti þar margt upp telja sem er mjög gott og fróðlegt, en ég vil þó einungis geta um eitt, en það er ferðasaga sem er skráö eftir Jónu Gísladóttur um ferð hennar og eigin- manns hennar til Italíu sumarið 1983. Eg hefi sjálf farið á þennan staö og í þær ferðir sem Jóna getur um og það var mér mikil upplifun að lesa frásögnina. Eg bókstaflega lifði upp mína ferð og hygg að svo hafi verið um fleiri sem lásu frásögnina. Eg vil hrósa Jónu fýrir nákvæma lýsingu og skemmtilega frásögn og gæti ég tekið undir allt sem Jóna segir, en lætþetta nægja. Eg vil beina því til ritstjómar DV að birta í blaöinu meira af svona lif- andi efni, en ég held að lesendur hafi mjög gaman af svona frásögnum. Mlkll um- skipti hafa átt sér stað á efri vellinum I Laugardal siðan þessi mynd var tekin. Takk fyrir gervigrasið Knattspymuunnandi hringdi: Mig langar til að þakka iþróttayfirvöldum fyrir gervigrasvöllinn I Laugardal. Það hefur sýnt sig é fyrstu leikjunum I Reykjavikurmótinu að með velllnum féum við betri knattspymu. íslendingar: SÝNIÐ NÚLIT Þrjár konur á Höfn í Hornafirði höfðu sambaud: Við erum alveg hissa á því að ekki skuli enn vera búið að leysa íslenska fangann á Malaga út. Nú eru Is- lendingar þekktir fyrir söfnunargleöi. Við skorum því á verslanir að láta bauka liggja frammi fyrir samskot til fangans. Peningana er síðan hægt að senda á DV. Þetta eru nú ekki nema 100 þúsund krónur sem þarf til að leysa manninn úr prísundinni. Við skorum á fólk að sýna lit og hjálpa manninum, þetta er nú einu sinni landi okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.