Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNl 1985. 31 íþróttir íþróttir fþróttir fþróttir Guðmundur Steinsson hefur átt skot að KR-markinu. Stefán ver en Guðmundur Torfason (innfelld mynd) var nærstaddur og átti ekki í erfiðleikum með að skora. Þriðja mark Fram. ta var besti leikur- já okkur í sumar” fason, Fram, eftir að lið hans hafði sigrað KR, 4:1, f gærkvöldi smáheppni verð komin á annan tuginn. Jósteinn Einarsson og Bjöm Rafnsson áttu báðir mjög góð fsri en mark KR kom ekki fyrr en tveimur mínútum fyrir leikslok. Hálfdán Oriygsson einlék þá í gegn um stóran hluta Framvamarinnar inn í víta- teiginn þar sem Jón Sveinsson sá ekki annað fært en að bregða honum. Ur vitinu skoraði, síöan Bjöm Rafnsson örugglega. Framliöiö var ótrúlega sterkt i þessum leik. Guðmundur Steinsson fór á kostum í fyrri hálfleiknum er hann tætti slaka KR-vömina i sig hvað eftir annað. Omar Torfason barðist allan tímann mjög vel eins og er reyndar hægt aö segja um alla leikmenn liðsins. Þeir vom í flestum tilvikum nokkrum skrefum á undan leikmönnum KR í hvert einasta einvigi og það var ekki fyrr en í lokin aö þeir svartröndóttu komust inn í leikinn. Vömin var veikasti hlekkur KR í leiknum, engin varnarmanna þeirra virtist eiga möguleika á því aö hemja fríska Framarana. Þá vom miðjuleik- mennirnir allt of seinir og fylgdu aldrei nægjanlega vel eftir. Þaö vakti nokkra furðu að Gordon Lee, þjálfari KR, sá ekki ástæðu til að gera n»inar breytingar á liði sínu þrátt fyrir slakan leik. Fram: Friörlk Friöriksson, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson, Asgeir Elíasson, Fétur Ormslev, Viöar Þorkelsson, Kristinn Jónsson, Omar Torfason, Guömundur Torfa- son, Guðmundur Stelnsson. KR: Stefón Jóhannsson, Gunnar Gíslason, Hálfdán örlygsson, Jakob Pétursson, Jósteinn Einarsson, Willum Þórsson, Agúst Már Jónsson, Asbjörn Bjömsson, Björn Rafnsson, Sæbjöm Guðmundsson, Július Þorfinnsson. Dómari var Friöjón Eðvaldsson og stóö hann sig vel þrátt fyrir nokkra smámuna- semi. -fros. Tvö mörk á fyrstu sex mínútunum — var meira en Blikastelpumar réðu við ítoppslagnum gegn ÍA í 1. deild íslandsmótsins í kvennaknattspymu Hið unga og stórefnflega lið Akrauess i kvennaflokki vann i gær- kvöldi dýrmætan sigur á Breiðabliks- stúikunum er Uðin léku á Kópavogs- vellinum i 1. deild kvenna í gærkvöldl. Skaglnn vann, 3—1, og hefur því byrjað keppnistimabflið mjög vel, hefur fuUt ! hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sina. ' Akranes fékk óskabyrjun, skoraði | tvisvar á fyrstu sex mínútunum, fyrra I markið kom á 2. mínútu er boltinn fór í hönd einnar Blikastelpunnar innan vitateigs og úr vítinu skoraöi Ragnheiður Jónsdóttir örugglega. Fjórum mínútum seinna bætti Laufey Sigurðardóttir öðru marki við er hún nýtti sér varnarmistök Kópavogs- búanna. Á 30. minútu leiksins fór boltinn i eina Skagastúlku innan teigs. Vítaspyma, sem Ásta María Reynis- dóttir tók, Vala Ulfljótsdóttir mark- vöröur náði að verja en boltinn barst aftur út til Ástu, sem uröu ekki á mis- tök, 2—1. Síðasta mark leiksins kom einnig í fyrri hálfleiknum. Haildóra Gylfadóttir skallaði þá boltann í net Blikanna eftir aukaspymu Guörúnar Gísladóttur. Þrátt fyrir mikla sókn Kópavogs- stelpnanna náöu þær ekki að skora mark í seinni hálfleiknum og Skaginn stendur nú best að vígi, eftir aö hafa leikið útileiki gegn bæði Breiðabliki og Val. Liðið er mjög ungt og hefur veriö í stöðugri sókn á undanförnum árum og kannski næsta „gullöld” Skagamanna verði í kvennaknattspymunni. Blikastelpumar hefðu með ssaá- heppni getað staðið uppi sem sigurveg- arar. 2—0 forskot var þó of stór biti fyrir liöið að kyngja. Þær geta þó hugg- aö sig við það að halda forystunni í deildinni á betri markatölu en Skaga- stelpurnar en einum leik fleira. -fr0g. • Ástön ViTla mun leika ] i íHensonbúningum i I — ánæstakeppnistímabili | Enska 1. deildarllðið Aston Villa mun leika í islenskum búningum næsta vetur. Halldór Einarsson, forstjóri Henson, hefur átt í vlðrcð- um við félagið og mun nú ekkert standa i veginum fyrir þvi að enska iiðið klæðist Henson búningum næsta vetur. Siðasta vetur lék liðið í húningum frá hinu þekkta f ranska fyrirtæki Le Coq sportlf. Ekki hefur verið gengið endan- lega frá samningum en reiknað er með að það verðl i næstu vtku. -fros Palli samdi við Dankersen Enn ein skrautf jöðrin horfin úr íslenskum handknattleik „Ég er nýkominn frá Þýska- landi þar sem ég skrifaði undir eins árs samning við Dankersen,” sagði handknattleiksmaðurinn Páll Olafsson í samtali við DV í gsr. Páll mun þvi ekki leika hér á landi næsta vetur, enn ein skraut- fjöður handknattleiksins farin á brott. „Eg kannaði aðstæður hjá Dankersen og leist mjög vel á allt sem ég sá. Eftir það var ekki um annað að ræða en skrifa undir samning sem ég er mjög ánægður með. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,” sagði Páll Olafsson sem heldur til Þýskalands eftir um það bil einn mánuð. Það er þvi endanlega ljóst að Páll leikur ekki fleiri leiki með Þrótti í 1. deildinni i knattspymu. -hsim/SK. Besti árangur í ár hjá Soffíu Rósu Soffía Rósa Gestsdóttir úr Héraðs- sambandinu Skarphéðni náði besta árangri islenskra kvenna í kúluvarpi í ár þegar hún varpaði 13,89 metra á kastmóti Armanns á þriðjudags- kvöld. Guðrún Ingólfsdóttir, KR, sem nýbyrjuð er að keppa á ný, varp- aði 12,71 m. Annar besti árangurinn í ár. Guðrún á Islandsmetið, 15,40 m, sett 1982. Eggert Bogason, FH, er orðinn mjög öruggur i kringlukastinu. A mótinu á þriðjudag kastaði hann 57,64 metra. Pétur Guðmundsson, HSK, kastaði 46,10 m. Það er besti árangur hans. Olafur Unnsteins- son, HSK, kastaði 38,86 m á þriðja motinu i röð. Besti árangurinn í „old boys Ookki" hér i ár. Guðni Sigurjónsson, KR, kastaði 36,42 m og Valbjörn Þorláksson, KR, 35,66 m. önnur úrslit á mótinu urðu þessi: Kúluvarp karla 1. Pétur Guðmuudssou, HSK 15,75 2. Guðni Slgur jónsson, KR 12,58 Kriuglukast kvenua 1. Guðrún Ingðlfsdéttir, KR 47,96 2. Margrét Úskarsdðttir, 1R 41,96 3. Soffia R. Gestsdðttlr, HSK 38,26 A Reykjavíkurmótinu um siðustu helgi sigraði Gunnlaugur Grettisson, IR, i háslökki. Stökk 1,95 m — ekki 1,90 m eins og skýrt var frá í DV. Jóhann Jóhannsson, IR, sigraði í 100 m hlaupi á 10,8 sek. Hann hljóp á 10,5 sek. i undanrás, ekki 10,6 eins og mis- ritaðist. ÚU. Sumarferð Þróttar Farin verður fjölskylduferð í Þórsmörk helgina 12, —14. júlí. Nánari upplýsingar og skráning í ferðina í félags- heimilinu, sími 82817, fyrir 30. júní. Stjórnin. Ylý, sendinq FRA FRAKKLANDIOG HOLU\NDI LAUGAVEGI28 s. 621331 SSár Jitm QcdlabuxwiO Botir Cj B uxun □ 'Jakkan □ Skifntur □ 'JakkafcytEJ ÞAÐ ER ÞESS VIRÐI AÐ LÍTAVIÐ ORÐ LAUGARDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.