Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. 9 Útlönd Utlönd Markos og kona hans eru grunuð um að hafa dregið sér gífurlegt fé á tuttugu ára valdaferli Markosar. Smygláeig- unMækosar Tollgæsla hefur verið efld verulega á flugvellinum í Manila á Filippseyj- um til að koma í veg fyrir smygl á eigum hins útlæga fyrrum forseta Ferdinands Markos, úr landi. Ák- vörðun þessi var tekin eftir að upp- víst varð stórfellt skartgripasmygl, að því er talið er í þágu Imeldu, konu Markosar. Þá íhuga stjórnvöld að svipta þekkta stuðningsmenn. Markosar vegabréfi sínu til þess að koma í veg fyrir atburði af þessu tagi. Sérstök nefnd, sem Aquino skipaði, vinnur að því að rannsaka fjárreið- ur og eignir Markosar og stuðnings- manna hans, sérstaklega í Banda- ríkjunum. Formaður nefndarinnar fór nýverið til Bandaríkjanna, meðal annars til að athuga hvað hæft væri í því að Markos hefði reynt að kaupa sér áhrif i Hvíta húsinu. I samræmi við fyrirmæli Aquino ferðaðist for- maðurinn á venjulegu farrými en ekki því fyrsta. Aquino hefur sagt að ráðherrar hennar megi ekki láta bendla sig við sams konar spillingu og forréttindi og einkenndu tuttugu ára valdaferil Markosar. Vélsleðafár á Finnmörk Læknar og hjúkrunarkonur við sjúkrahúsið í Tromsö í Norður- Noregi vilja láta takmarka notkun vélsleða á Finnmörk. Það er mjög vinsælt tómstunda- gaman að þeysast um sléttur Finn- merkur á vélsleðum. Þessi íþrótt hefur kostað margan manninn líf og heilsu, bæði vegna glannaskapar og aðgæsluleysis en ekki síst vegna ölvunar. í óbyggðum Norður-Noregs hafa menn ekið sleðum sínum eftirlits- laust og slys vegna ölvunar eru ótalmörg á hverju ári og fer fjölg- andi. Starfsmenn sjúkrahúss í Tromsö vilja að yfirvöld reyni að snúa þessari óheillaþróun við með hertu eftirliti og nýjum reglum. Meðal annars vildu þeir hafa sérstaka þyrlu til þess að halda reglu á svæðinu og skapa mönnum visst aðhald. Læknar og hjúkrunarkonur við sjúkrahúsið í Tromsö í Norður- Noregi vilja láta takmarka notkun vélsleða á Finnmörk vegna slysahættu og vaxandi slysatíðni. HUGSKOTS Hafin verður kennsla 10. mars á eftirfarandi námskeiðum: Grunnnámskeið BBC 12 stundir Forritun 2 BBC 12 stundir Ritvinnsla BBC_________________8 stundir Sinclair grunnnámskeið________12 stundir Sinclair tramhaldsnámskeið 12 stundir Sinclair grunn: Kennarar: Sveinbjörn Gröndal, Guðmundur Einarsson Námskeið: mán. 17. mars mið. 19. mars fim. 20. mars lau. 22. mars kl. 21.00-23.00 kl. 21.00-23.00 kl. 21.00-23.00 kl. 21.00-23.00 Grunn BBC: Kennarar: Sveinbjörn Gröndal Guðmundur Ragnar Guðmundsson Námskeið: mán. 17. mars kl. 18.30-20.30 mið. 19. mars kl. 18.30-20.30 fim. 20. mars kl. 18.30-20.30 lau. 22. mars kl. 10.00-12.00 Ritvinnsla BBC: Kennarar: Sveinbjörn Gröndal Ragnar Ómarsson Námskeið: þri. 18. mars kl. 18.30-20.30 fös. 21. mars kl. 18.30-20.30 lau. 22. mars kl. 16.00-18.00 Forritun 2: Kennarar: Sveinbjörn Gröndal, Guðmundur Ragnar Guðmundsson, Sigurður Hr. Sigurðsson Námskeið: lau. 15. mars sun. 16. mars lau. 22. mars sun. 23. mars kl. 10.00-12.00 kl. 12.45-14.45 kl. 10.00-12.00 kl. 12.45-14.45 Sinclair framhald Kennarar: Sveinbjörn Gröndal Guðmundur Einarsson Námskeið: þri. 18. mars sun. 23. mars þri. 25. mars mið. 26. mars kl. 21.00-23.00* kl. 15.00-17.00 kl. 21.00-23.00 kl. 19.30-21.30 • •• • •• •••••• •••••• ••• ••• •••• HUGSKOThf Veltusundi 3b Sími24790 fjögurra mánaða hrakninga á Atlantshafi Einar Geir Einarsen, norskur sjó- maður á litlum fiskibát, sem saknað hefur verið i fjóra mánuði, fannst fyrir skömmu heill á húfi á vélarvana fleytu sinni á miðju Atlantshafi. Einar lagði einn af stað á litlum fiskibát frá Lissabon 31. ágúst í fyrra og var ferðinni heitið til Trinidad. Að sögn Einars bilaði vélin í bátn- um eftir nokkurra vikna siglingu og var hann á reki á vélarvana fleytunni fram í marsmánuð er flutningaskip frá Líberíu fann hann og tók um borð. Sjómaðurinn var furðu hress eftir volkið á úthafinu og sagðist hafa framfleytt sér á regnvatni og fiskmeti er hann veiddi sér til matar. Ekki vildi Einar þiggja aðra hjálp frá flutningaskipinu en endurnýjun á matarbirgðum og hélt áfram för sinni á vélarvana fleytunni. Sagðist hann ótrauður ætla að halda áfram ferða- lagi sínu til Trinidad og treysta því að hafstraumar bæru hann þangað á næstu 40 dögum. Gólfmottur Hringið og fáið nánari upplýsingar. Eigum nú gólfmottumar í stæröinni 120x60 sm - sem krækja má saman á hliðum og endum og mynda þannig stærri flöt. Viljum sérstaklega benda á notkun þeirra á vinnustööum þar sem fólk þarf aö standa viö vinnu og fyrir eru steingólf - einnig hafa þessar mottur veriö notaðar á sundstöðum og íþróttahúsum, í böð og búningsherbergi. Vegna styrkleika síns hafa þessur mottur verið notaöar í bílskúra, undir bíla (þar sem gólf eru lakkmáluð) enda þola þær 40 kg þimga á fersentímetra. Skipta má mottunni í tvennt, eftir endilöngu, þannig aö tvær mottur dugi undir bílinn. Nýbýlaveg 8 (Dalbrekku megln) simi 46216.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.