Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 18
18 DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNl 1986. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17. tölu- blaði þœs 1985 á eigninni Sléttahrauni 34, 2. h.t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Kjartans Steinólfssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Magnússonar hdl. og Veð- deildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1986 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign- inni Breiðvangi 13,1. h.t.h., B, Hafnarfirði, þingl. eign db. Róberts Jónssonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka islands og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1986 kl. 14.30. ____Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 132., 139. og 146. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Hjallabraut 2, 3. h.f.m., Hafnarfirði, þingl. eign Gylfa Hilmarssonar og Katrínar Hrafnsdóttur, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1986 kl. 15.00. __________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 51., 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign- inni Hólalandi, lóð úr jörðinni Lykkju, Kjalarneshreppi, þingl. eign Magnúsar Kjartanssonar, ferfram eftir kröfu Amar Höskuldssonar hdl„ Brynjólfs Kjartans- sonar hrl., Skúla J. Pálmasonar hrl. og Ólafs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1986 kl. 17.00. _____________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Sigurberg Gröndal húsasmíðameistari Tilboð - reikningsvinna Rakarastofan Klapparstíg Hárgreiðslustofan Klapparstíg Simi 12725 Timapantanir 13010 i -i LÖGFRÆÐINGUR Byggðastofnun auglýsir starf lögfræðings við stofn- unina laust til umsóknar. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytilegt starf sem m.a. felst í ráðgjöf og álits- gerðum ásamt ýmissi aðstoð við fyrirtæki og einstakl- inga í atvinnurekstri á landsbyggðinni, auk innheimtu- starfa. Laun greidd skv. kjarasamningi SlB og bankanna. Skriflegar umsóknir um starf þetta sendist Byggða- stofnun að Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík, og mun með allar umsóknir farið sem trúnaðarmál. LAUSAR STÖEXJR HJÁ _____I REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Staða forstöðumanns við dagheimili/leikskóla Hraunborg, Hraunbergi 10. Staða umsjónarfóstru með dagmæðrum, 75% starf. Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 7. júlí. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur í síma 27277. Staða matráðskonu við dagheimilið Laugaborg v/Leirulæk. Upplýsingar veitir forstöðumaður heimilisins í síma 31325. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. 4 Menning Menning __________Menning Björg Einarsdóttir: Úr ævi og starfi íslenskra kvenna II. Útgef. Bókrún 1986. Stefán frá Hvítadal, eitt af góð- skáldum okkar aldar, segir í ljóði: Hver dáð sem maðurinn drýgir er draumur um konuást. Enn eldra er franskt máltæki þar sem talað er um frama karlmanna, og þýtt hefur verð með spumingunni: Hvar er konan? Að baki þessara orða liggur sú staðhæfing, að fátt umtalsvert myndi eftir karlana liggja, ef þeir væru ekki alltaf að koma sér í mjúkinn og vinna sér álit hjá þeim konum, sem þeir elska. Kannski er líka með þessu einnig sagt, að þótt afrek kvenna hafi lengst af verið van- metin, séu karlamir veikir í sinni alþekktu hégómagimd og hræddir um að konumar skyggi á þá. En þó vita flestir, að konumar em á bak við tjöldin, halda í alla þræði... Og stjóma. En nú þykir konunum loks nóg komið. Nú em tímar þeirra. Á öld tækninnar vinnur meira vit en strit. Þegar á reynir kemur i ljós, að kon- umar em færar í flestan sjó, engu síður en karlamir. Tími og fyrirhöfn Bókin sem hér að ofan er nefnd, er eftir konu sem nú er á miðjum aldri. Hún hefúr áður gefið út Ljós- mæðrasögu í tveimur bindum og fyrsta bindi þessa ritsafns. Björg hefur greinilega eytt miklum tíma og fyrirhöfri í að glugga í bækur, blöð og tímarit á söfiium og tínt þaðan saman margs konar fróðleik um merkar dugnaðarkonur. Hér er svomikið efhi samankomið á 404 stórum síðum, að yfir alla bakka myndi flæða, ef ég ætlaði að segja nákvæmlega frá því um hvað bókin fjallar. Allítarlega er sagt frá æviferli tuttugu og fjögurra kvenna, sem allar eru horfnar af sviðinu, sumar háaldraðar og fyrir mörgum áratugum. Auðvitað kemur margt fleira fólk við sögu. Bókmenntir Jón úr Vör Örannsakanlegir eru vegir ástar- innar. Útlendingar, sem hingað koma, hafa fyrr og síðar haft auga á fleiru en náttúrufegurð, og forvitn- ar hafa stúlkumar okkar lengi verið. Hér er fyrst sagt frá þremur ríkis- mönnum af aðalsættum, sem sóttu sér hingað konuefiii og fluttu með sér í hallir sínar í Austurríki, Port- úgal og Danmörku. Þar varpa þær ævintýraljóma á ættjörð sína sakir fegurðar, kvenlegra dyggða og skör- ungsskapar. Þær verða hjálparhell- ur landa sinna, sem koma á þeirra slóðir. Þess skal getið, að þessar konur eru allar fæddar um og eftir síðustu öld, sú þeirra sem lengst lifir deyr háöldruð 1958. Skörungar Hér segir frá Þóru Gunnarsdóttur, sem ekki fékk að eiga Jónas Hall- grímsson. Sagt er frá skörungunum Bríeti Bjamhéðinsdóttur og aust- firsku mæðgunum Sigríði Þorsteins- dóttur og Ingibjörgu Skaftadóttur, sem vom brautryðjendur í kvenna- baráttu og útgáfú kvennablaða, Iiigibjörgu H. Bjamason, skólastým og alþingismanni, einnig frú Guð- rúnu Lárusdóttur, rithöfundi og þjóðmálaskörungi. Þáttur er um Jarþrúði Jónsdóttur, sem var heit- bundin Þorsteini Erlingssyni, sjálf skáld og forustukona um menntun kvenna. Hún giftist þjóðkunnum rit- stjóra og alþingismanni, en átti sjálf svipmikla sögu. Einn kafli er um listakonumar Olufu Finsen og önnu Pétursson, sem höföu forystu um tónlist í Reykjavík á öldinni sem leið. Sagt er frá Sigríði í Brattholti og Margréti Oddsdóttur, Þórunni Ríc- harðsdóttur Sívertsen, sérstæðum konum, sem of langt mál yrði frá að greina, og alþýðukonu, sem haföi forystu um stofiiun sparisjóðs. Bændakonan Ingunn á Komsá rit- aði í elli sinni athyglisverðar minningabækur. Allttilgreint Þá er ógetið um frásagnir af þrem- ur skólastjórafrúm, Guðlaugu Zakaríasdóttur í Ólafedal, Guðrúnu Hjaltalín og Steinunni Frímanns- dóttur á Möðruvöllum. Kafli er og um Ástu málara. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu er þetta nokkuð efnismikil og nokkuð seinlesin bók. Hér eru rifjað- ir upp æviþættir merkra kvenna, mest eftir prentuðum heimildum, úr blöðum, tímaritum, uppsláttarbók- um, allt tilgreint, eins og vera ber. Stundum hefur höfundur getað bætt við upplýsingum, sem fengist hafa frá ættingjum, afkomendum eða öðm fróðu fólki. Hér heldur ágæt- lega ritfær kona á penna. Eitthvað má að öllu finna. Mér finnst þetta alltof viðamikil bók. Um það þarf að hugsa, að lesendur liggja eða sitja. Fólk, sem farið er að eldast, vill ekki þurfa að hafa þungar bækur í höndum. Þá er og sú hætta að því vaxi í augum efrii stórra bóka, leggi þær frá sér hálflesnar og snerti þær kannski ekki framar. Orðabækur og alfræðirit mega vera stórar, en síður svona bækur. Hér er verið að spara í bókbandskostnaði, en það er mis- ráðið. Þetta er leiðinlegt, því auðséð er að vandamenn þessarar bókar hafa í öllu viljað gera vel. Þetta er að öðm leyti stórvandað rit að ytri gerð. Mikill fjöldi ágætra og oft fá- gætra mynda prýðir bókina. Jón úr Vör. Fróðleg, en þung Björg Einarsdóltir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.