Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Blaðsíða 30
30
4 manna Dallas
hústjöld, kr. 19.880,-
6 manna Dallas
hústjöld, kr. 25.040,-
Póstsendum
Seglagerðin Ægir
sími 13320-14093.
LOFTÞJÖPPUR
Fyrirliggjandi
ioftþjöppur
í stærðum frá
210-650 l/mín
með eða án ioftkúts
Mjög hagstætt verð
Útsölustaöir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Sími (91J20680
STRAUMRÁS SF.—Akureyri
Slmi (96)26988
r
LANDSSMIÐJAN HF.
MEIRA
EN
VENIULEG
MÁLNING
STEINAKRÝL___
hleypir raka mjög auöveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
STEINAKRÝL er mjög veöurheldin
málning og hefur frábært alkaliþol
og viöloöun viö stein.
STEINAKRÝL stendur fyrir sinu.
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
Framkvæmdir á fullu þessa dagana. Sex ýtur, þrjár gröfur, einn veghefill auk alls kyns tækja. Um 35 menn starfa við vegaframkvæmdirnar i Gunnólf-
svíkurfjalli.
Komnir upp á toppinn
á GunnólfevíkurQalli
]ón G. Hanksscm, DV, Akureyii:
Gunnólfsvíkurfjall heitir fjallið.
Það skagar upp úr við Bakkaflóann
og er komið hressilega í fréttimar
vegna ratsjárstöðvanna, sem þar á
að reisa, á toppnum, í 719 m hæð,
en til þessa hafa allar framkvæmdir
á fjallinu verið í sambandi við veginn
þangað upp. Hann verður tilbúinn í
október, fyrsti bíllinn hefur þegar
farið upp. Það gerðist kl. 16.00 þann
29. júní. Merkur áfangi.
„Við byijuðum á framkvæmdum
hér 1. nóvember, það er satt að segja
óvenjulegur tími til að leggja veg
sem þennan en þetta hefur gengið
ágætlega,1' sagði Jón Gunnþórsson,
verkstjóri hjá Gunnólfi hf. á Bakka-
firði, sem annast vegagerðina.
Hann er engin smásmíði, vegurinn
upp Gunnólfsvíkurfjall, um 10 km
og snarbrattur á köflum. Sem dæmi
hækkar hann um 300 m á þriggja
km kafla, sem er með hvorki meira
né minna en 16 beygjum. Þetta er
sikksakk upp á leið.
„Þessa dagana erum við að
sprengja og ýta í vegarstæðið," sagði
Jón Gunnþórsson. „Vegurinn sést
hvergi frá byggð. Mesti brattinn er
um 10% á veginum."
Að sögn Jóns verður Gunnólfe-
víkurfjall örugglega vinsæll áning-
arstaður ferðamanna í framtiðinni,
svo víðsýnt er frá fjallinu. „Það er
hér talsverð umferð upp á fjallið, til
að skoða,“ sagði Jón.
Jón Gunnþórsson verkstjóri stjórnar aðgeröum á Gunnólfsvikurfjalli. Hér
er hann kominn upp á toppinn í 719 m hæð. Lapplanderinn á myndinni
fór fyrstur bíla upp á fjallið kl. 16.00 þann 29. júní sl.
Gunnólfsvíkurfjall. Vegurinn upp á fjallið sést hvergi ur byggð.
Mælingamenn að störfum
ekki eru þeir í skýjunum.
um 700 m hæð á Gunnólfsvíkurfjalli. Oftar en
Aukið amfetamín á
fíkniefhamarkaðnum?
Logreglan og tollgæslan hafa lagt
hald á rúmlega eitt kíló af amfetam-
íni það sem af er árinu. Alls voru
gerð upptæk 970 g á öllu árinu í
fyrra. Þá hefúr verið lagt hald á tæp
5 kg af hassi á þessu ári. 9 kg voru
gerð upptæk á öllu árinu í fyrra.
Þetta kemur fram í yfirliti yfir
starfeemi fíkniefhadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík sem nær yfir fyrra
helming þess órs. Að sögn lögregl-
unnar berast fíkniefriin eftir sem
áður nær eingöngu frá Hollandi og
nágrannalöndum þess.
Hass og amfetamín eru þau efni
sem ríkjandi eru á fíkniefnamark-
aðnum hér. Ekkert hefur verið gert
upptækt af LSD á þessu ári né held-
ur kókaíni. Engu að síður telur
lögreglan að þessi efhi séu í umferð,
þó í litlu mæli sé.
Alls hafa 156 einstaklingar verið
kærðir fyrir brot á fíkniefnalöggjöf-
inni það sem af er árinu. Þar af eru
131 karl og 25 konur. Kærur voru
412 allt árið í fyrra.
-ÞJV
ÓSA/SiA