Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986. 11 Fréttir Þorsteinn Geirsson og Strober innsigla samkomulag sitt i dómsmálaráðuneyt- inu í gær. DV-mynd GVA Gyðingamir koma og staldra við í sex klukkustundir - engin beiðni frá Israel „Það hefur verið komist að sam- komulagi í þessu máli. Hingað koma á föstudagsmorgun átta til tíu gyðing- ar á einkaþotu. Þeir ætla að halda blaðamannafund undir hádegi þann dag og halda svo heim á ný um klukk- an 15 þennan sama dag,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra í samtali við DV. Eins og kunnugt er af fréttum var haft eftir Jerry Strober, fulltrúa sam- takanna „The National council for Soviet Jewry“, sem beijast fyrir rétti gyðinga í Sovétríkjunum, að dóms- málaráðuneytið hefði neitað leigu- flugvél með hópi gyðinga um borð um lendingarleyfi næsta föstudag. Ætluðu mn 50 málsmetandi gyðingar að koma hingað til lands vegna leiðtogafundar- ins til að vekja athygli á málstað gyðinga í Sovétríkjunum. Steingrímur svaraði því hins vegar til að hertum lendingarreglum væri ekki beint gegn gyðingum sérstaklega. Þessar hertu reglur væru aðhald. - Nú hefur heyrst að hópur gyðinga frá ísrael sé einnig væntanlegur hing- að til lands? „Ég hef óskað eftir því að vera látinn vita um allt sem er að gerast í þessum málum. Það hefur engin beiðni um neitt slíkt komið frá ísrael. Ég get al- veg fullyrt það því ef svo væri vissi ég það,“ sagði Steingrímur Hermanns- son. -KÞ Sfldaisölusamningar: Engin bjartsýni „Það eina sem ég get sagt er að samningaviðræðurnar hefjast í dag, við vitum nákvæmlega ekkert meira,“ sagði Gunnar Flóvenz, fi-amkvæmda- stjóri Síldarútvegsnefhdar, í samtali við DV, aðspurður um síldarsölu- samninga við Sovétmenn sem hefjast hér á landi í dag. Þessi fundahöld áttu að hefast í september en var þá frestað I gær var mikið um fúndahöld hjá síldarsaltendum og sömuleiðis í stjóm Síldarútvegsnefndar. Þeir síldarsalt- endur sem DV héfur rætt við em allt annað en bjartsýnir á þær samninga- viðræður sem nú em að hefjast. Sovétmenn hafa fyrir nokkm sett fram kröfúr um síldarpakkningar sem engin leið er að verða við vegna þess að slík- ar pakkningar em ekki lengur fram- leiddar. Það sem þó mun verða erfiðast að eiga við í samningunum við Sovét- menn er hið lága síldarverð sem Kanadamenn bjóða þeim. Þar að auki munu Kanadamenn hafa gefið í skyn að kaupi Sovétmenn ekki síld af þeim muni þeir missa leyfi til fiskveiða í kanadískri landhelgi en slík fríðindi hafa Sovétmenn nú. íslenskir síldarsaltendur telja sig líka verða að fá hærra síldarverð en þeir fengu í fyrra en þá varð tap á síld- arsöltun hér á landi. Þá munu sjómenn og útgerðarmenn ekki una óbreyttu verði hvað þá lægra en var í fyrra. Það er því hætt við að Gunnar Fló- venz verði að taka á öllu sínu til að ná samningum nú en hann er talinn afar snjall samningamaður þegar um síldarsölu er að ræða. -S.dór. Eskifjörður: Fyrsta sfldin á land Emil Thorarensen, DV, Eskifiiöi; Fyrsta síldin á þessari vertíð barst til Eskifjarðar í gærmorgun. Það var Snæfari RE 76 sem kom með 26 tonn af vænni síld sem fór til frystingar í beitu hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf. og Síldarvinnslunni i Neskaupstað. Hin kunna aflakló, Ingvi Rafn, er skipstjóri á Snæfara og sagði hann í samtali við DV að hann hefði fengið þessa síld i einu kasti í Mjóafirði um miðnætti í fyrrinótt. Ingvi sagðist ekki hafa orðið var við miklar lóðningar f Reyðarfirðinum eða Fáskrúðsfirði. Enn sem komið er liggur verð ekki fyrir, hvorki á síld til frystingar eða söltunar. Síldarsaltendur hefja ekki söltun á síld fyrr en gengið hefur ve- rið frá sölu hennar. Sex söltunarstöðv- ar eru á Eskifirði. Varðskip verður úti fyrir Höfða íslenskt varðskip mun verða á sjón- um úti fyrir Höfða meðan á leiðtoga- fundinum stendur um helgina, að sögn Böðvars Bragasonar, lögreglustjóra i Reykjavík. Skip þetta mun fylgjast með öllum skipa- og bátaferðum á svæðinu. 1 fjör- unni verða svo lögreglumenn og sjá um gæsluna frá sjávarmáli og i kring- um Höfða. -KÞ NUNAERRETTITIMINN! Fazer píanó frá Finnlandi Verð frá kr. 98.800, Mjög góðir greiðsluskilmálar. Frakkastíg 16. Simi 17692. Slappaðu af! Þú veist hvernig það er. Stífur háls eftir margra tíma akstur í bíl. Strengur í baki eða bólgnir fætur eftir erfiðan vinnudag Clairol nuddkoddinn getur hjápað þér, þú lætur hann einfaldlega gæla við hálsinn, hrygginn og fæturna reglulega yfir daginn, þannig að vöðvar haldist mjúkir og blóðstreymið sé eðlilegra. Þeir sem nota Clairol nuddkoddann koma síður þreyttir heim úr vinnunni. Clairol nuddkoddann þarf ekki að tengja við rafmagn, því hann er knúinn af 2 rafhlöðum sem endast í 150 skipti miðað við 10 mín. notkun í hvert sinn. Clairol nuddkoddinn alltaf við hendina. VIÐTÖKUMVELÁMÓTIÞÉR SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.